Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 1
FERÐALÖG VESTUR NJÓTTU LÍFSINSMEÐFRAM STRÖNDINNI ÁHERSLAN NÚ ÁMARKAÐSMÁLIN Kavalan-viskíið þroskast hratt í hitanum íTaívan 8 Harður slagur er háður í Bandaríkj-unum um samkeppnislagafrumvarpsem beint er að tæknirisunum. 10 V ÐSKIPTA 11 Karl hjá Florealis segir hráefnisskort hafagert vart við sig í faraldrinum en nú hafiverðhækkanir tekið við. ÞARF AÐ GRÍPA INN Í? MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Ísland færist hægt upp lista IMD Ísland bætir stöðu sína og færist upp um fimmsæti, úr 21. í 16. sæti, í árlegri samkeppnis-úttekt IMD-viðskiptaháskólans í Sviss á sam-keppnishæfni ríkja. Íslendingar reka þó ennlestina í samanburði við hin norrænu löndin,þar sem Danmörk er fremst meðal þjóða.Niðurstöður úttektar IMD liggur nú fyrir enúttektin er ein sú umfangsmesta í heimi og hef-ur verið framkvæmd í 32 ár. Úttektin byggist á255 mælikvörðum, bæði haggögnum sem safn-að er saman og alþjóðlegri stjórnendakönnunsem þúsundir stjórnenda fyrirtækja og annarrasamtaka taka þátt í. Fjallað verður um nið-urstöður úttektarinnar á fundi Viðskiptaráðs og Arion banka í höfuðstöðvum bankans í dag. Þarmunu Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion,Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra og Magn- ús Harðarson, forstjóri Nasdaq á Íslandi, fjallaum þýðingu úttektarinnar fyrir íslenskt við-skiptalíf. Samkeppnishæfni Íslands hefur batnað áliðnum áratug en mestu framfarirnar hafa orðiðí skilvirkni atvinnulífs og samfélagslegum inn-viðum. Ísland kemur þó illa út þegar kemur aðerlendri fjárfestingu og alþjóðaviðskiptum, þarsem við erum nærri 30 sætum neðar en meðal-tal Norðurlandanna. Sá liður hefur þróast tilverri vegar undanfarinn áratug sem bendir tilþess að tiltrú umheimsins á íslenska hagkerfinufari dvínandi. Þannig mælist bein erlend fjár-festing sem hlutfall af landsframleiðslu svo lágað Ísland skipar 61. sæti af 63 í úttektinni. Heiltyfir færist Ísland úr 55. í 58. sæti hvað alþjóða-viðskipti snertir en fer úr 52. í 49. sæti varðandialþjóðlega fjárfestingu á milli ára.Danmörk er í efsta sæti listans og veltir þarSviss úr sessi sem er í 2. sæti. Þá koma Singa-púr, Svíþjóð og Hong Kong í næstu sæti þar áeftir. Öll hin norrænu löndin, fyrir utan Íslandsem er í 16. sæti, raða sér meðal tíu efstu sæta.Ísland er þó það land sem bætir sig mest á milliára. Gísli Freyr Valdórssongislifreyr@mbl.is Samkeppnishæfni Íslands hefuraukist en við stöndum þó illa þeg-ar kemur að erlendri fjárfestingu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ísland hefur bætt sig á liðnum árum í mælingum á samkeppnishæfni þjóða, en er þó eina landið á Norðurlöndum sem nær ekki á topp tíu lista IMD-viðskiptaháskólans og situr í 16. sæti. EUR/ISK 155 150 145 146,85 Úrvalsvísitalan 3.500 3.300 3.100 2.900 2.700 2.500 14.12.'21 14.6.'22 3.251,70 2.648,64 Þegar Pétur Þ. Óskarsson var ráð-inn framkvæmdastjór Moggann að ferðaþjónustan hafi náðvopnum sínum hraðar en nokkurþorði að vona. Því sé raunhæft aðhingað komi um þrjár milljónir er-lendra ferðamanna 2030, eða 700þúsund fleiri en metárið 2018. Stærstu greinarnar lendum mörkuðum. Unnið sé aðþeim verkefnum í Bandaríkjunum, íKanada, í Asíu, á Norðurlöndunumog í Evrópu. Pétur kveðst sannfærður um aðframundan sé framfaraskeið eð Meiri þróttur í ferðaþjónustu en spáð varPétur Þ. Óskarsson, fram-kvæmdastjóri Íslandsstofu,segir ferðaþjónustuna aðrétta úr kútnum af munmeiri þrótti en spáð var. M I Ð V I K U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 138. tölublað . 110. árgangur . ALDREI VERIÐ STERKARI EN EFTIR FÓTBROT MIKILL KRAFT- UR Í FERÐA- ÞJÓNUSTUNNI ÁFANGA- STAÐIR FYRIR VESTAN VIÐSKIPTI 12 SÍÐUR FERÐALÖG 16 SÍÐURVANN FJÓRFALT 23 Sauðfjárbændur munu fá 23 pró- sentum hærra verð fyrir afurðir sín- ar, frá Sláturfélagi Suðurlands, SS, í haust. Um er að ræða óvenjumikla hækkun, að sögn Steinþórs Skúla- sonar, forstjóra SS. „Við erum að koma til móts við gríðarlega hækk- un rekstrarvöru hjá bændum. Sauðfjárbændum sérstaklega þar sem áburður veg- ur hlutfallslega þyngra hjá þeim en öðrum.“ Hver afurða- stöð gefur út verðskrá á hverju ári þar sem fram kemur það verð sem hún er tilbúin að greiða fyrir kjötið. Steinþór rekur ekki minni til þess að nokkurn tíma hafi afurðaverð hjá SS hækkað jafnmikið og fyrirhugað er að það geri í haust. Verulegur hluti þessara hækkana mun smitast út í verðlagið, enda lítið svigrúm til aukinnar hagræðingar innan afurðastöðva, að mati Stein- þórs. Þannig mun íslenskt lamba- kjöt hækka í verði, en þó ekki jafn mikið og afurðaverðið. SS hefur tek- ið lítil skref verðhækkana frá ára- mótum, til að mæta áföllnum kostn- aðarhækkunum og fyrirsjánlegri verðhækkun til bænda. Erfitt að hagræða tímabundið Í skýrslu spretthóps matvæla- ráðuneytisins eru áform um að veita afurðastöðvum undanþágu frá sam- keppnislögum svo þeim verði fært að sameina krafta sína og hagræða í rekstrinum. „Þetta er auðvitað búið að vera kappsmál afurðastöðvanna og bænda um langan tíma.“ Innflytjendur kjötafurða eiga nú um tuttugu prósenta markaðshlut- deild hér á landi í svína-, kjúklinga- og nautakjöti, að sögn Steinþórs. „Stór innflytjandi til Íslands er til dæmis fyrirtækið Danish Crown. Sameiginleg velta allra íslenskra af- urðafyrirtækja er um 5 prósent af veltu þess, en við megum samt ekki vinna saman.“ Hann minnist þess að síðasta haust hafi verið lofað að heimila samvinnu afurðastöðva en það hafi þó aldrei verið efnt. „Það sem ég staldra við í þessum tillögum er að það er talað um tíma- bundna heimild. Það er erfitt að hagræða milli afurðastöðva tíma- bundið; ef þetta á að skila árangri þarf að fara í varanlegar breyting- ar.“ Hann kveðst vilja fara svipaða leið og farin var með mjólkuriðn- aðinn, þar sem hagræðing hafi tek- ist vel. »4 SS boðar methækkun á afurðaverði til bænda - Lambakjöt verður dýrara - Þörf á varanlegum breytingum Steinþór Skúlason Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Sigrún Sigurðardóttir var hvað eftir annað virt að vettugi þegar hún þurfti að fara með dóttur sína þrisvar á tíu dögum á bráðamóttöku Landspít- alans til að fá loks grun hennar stað- festan um að dóttirin, nýbökuð móðir, væri með heilahimnubólgu. „Það er náttúrulega enginn sem kemur að sinna henni og mér finnst hún vera að deyja í höndunum á mér, hún er svo mikið veik. Það endar með því að ég brest í grát og heimta að það komi læknir – þá gerist eitthvað. Þá koma læknir og hjúkrunarfræð- ingur og hún er sett í herbergi þar sem er fylgst með lífsmörkum. Ef hún hefði verið ein þarna, þá hefði ekkert verið gert,“ segir Sigrún Sig- urðardóttir um aðra heimsókn þeirra mæðgna. „Ég sagði í hvert einasta skipti að ég héldi að þetta væri heilahimnu- bólga því önnur dóttir mín var næst- um dáin sex ára úr heilahimnubólgu, þannig að ég þekki einkennin,“ segir Sigrún og bætir við: „Svo verður maður svo reiður eftir á þegar það sem maður hélt er rétt og það er búið að láta hana kveljast svona lengi.“ »6 „Fannst hún vera að deyja“ - Ítrekað hunsuð inni á bráðamóttöku Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bráðamóttaka Í þriðja skipti var loks athugað með heilahimnubólgu. „Það gleður mig að fólk skuli líta svo á að ég hafi skilað leik- húsinu einhverju sem er þess virði að minnast á,“ segir Ólafur Haukur Símonarson sem í gær tók við heiðursverðlaunum Sviðslistasambands Íslands 2022 fyrir framúrskarandi ævi- starf í þágu sviðslista á Íslandi. Sýning ársins var 9 líf eftir Ólaf Egil Egilsson í leikstjórn höfundar. Flest verðlaun hlaut Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Alls skiptu átta sýningar með sér verð- launum kvöldsins sem voru veitt í 19 flokkum. »24-25 Íslensku sviðslistaverðlaunin, Gríman, voru afhent í 20. sinn við hátíðlega athöfn í gærkvöldi Morgunblaðið/Eggert Ólafur Haukur Símonarson heiðursverðlaunahafi ársins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.