Morgunblaðið - 15.06.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Rússneskir embættismenn létu þau
boð út ganga í gær að þeir hygðust
gefa úkraínskum her- og öðrum and-
spyrnumönnum sem hafast við í
Azot-köfnunarefnisverksmiðjunni í
borginni Severódónetsk tækifæri til
að leggja niður vopn og gefast upp í
dag.
Borgin og verksmiðjan hafa hvor-
ar tveggju á síðustu vikum orðið eins
konar suðupunktar átaka rússneska
innrásarhersins og Úkraínumanna
og er talið að mörg hundruð manns,
hermenn sem óbreyttir borgarar,
dvelji nú í verksmiðjunni, þar á meðal
í sprengjubyrgjum í kjöllurum henn-
ar, og leiti þar skjóls fyrir linnulítilli
stórskotahríð Rússa.
Tólf stunda svigrúm
Samkvæmt yfirlýsingu Rússa í
gær bjóðast þeir til að leyfa óbreytt-
um borgurum að yfirgefa verksmiðj-
una í friði og spekt, en hvetja úkra-
ínska hermenn til að „láta af
glópslegri mótspyrnu sinni og leggja
niður vopn“ á sama tíma.
Kveðst rússneska varnarmála-
ráðuneytið bjóða mannúðlega aðgerð
til að koma borgurum af vígasvæðum
Severódónetsk og muni leiðin verða
greið í 12 klukkustundir í dag, frá
klukkan átta að morgni að Moskvu-
tíma til átta í kvöld, það er fimm til
fimm að íslenskum tíma. Óbreyttu
borgararnir verði fluttir til borgar-
innar Svatóvó í Lúhansk-héraðinu.
Með tilboðinu fylgdi sú ásökun af
hálfu rússneska varnarmálaráðu-
neytisins að úkraínskir hermenn not-
uðu óbreytta borgara í Azot-verk-
smiðjunni sem mannlega skildi, ekki í
fyrsta sinn frá upphafi innrásarinnar
sem slíkar aðdróttanir hafa heyrst
frá Rússlandi og hefur þeim jafnóð-
um verið andmælt frá Kænugarði.
Skipi hermönnum uppgjöf
Stjórnvöld þar í borg segja fleiri en
500 óbreytta borgara í felum í verk-
smiðjunni sem erfitt sé að veita mik-
inn stuðning í sprengjuregni Rússa á
borgina en talið er að mun fleiri her-
menn séu innan veggja hennar, jafn-
vel allt að 2.500. Kveðst rússneska
ráðuneytið hafa sent stjórnvöldum í
Kænugarði tilboð sitt um rýmingu
verksmiðjunnar og hvatt þau til að
skipa hermönnum sínum að gefast
upp.
Kringumstæður í Severódónetsk
þykja keimlíkar umsátri Rússa um
Azovstal-stáliðjuverið í Maríupól í
maí þar sem hundruð höfðu einnig
leitað skjóls fyrir sprengikúlum.
Lauk því með uppgjöf og handtóku
Rússar þá sem út gengu.
AFP/Aris Messinis
Eimyrja Reykjarmökkurinn stígur til himins í Severódónetsk og byrgir sýn.
Bjóða 12 stunda smugu
- Hermenn í Azot-verksmiðjunni gefist upp og óbreyttir gangi á brott óáreittir
- Úkraínskir hermenn láti af „glópslegri mótspyrnu“ og leggi niður vopn
Í ranni netverslunarrisans Amazon
er því gert skóna að drónar taki að
færa varninginn heim, eigi síðar en á
þessu ári, með þjónustu sem fyrir-
tækið nefnir Prime Air. Verða það
íbúar kaliforníska bæjarins Locke-
ford sem fyrstir fá að reyna þessa
nýjustu þjónustu sem Amazon hefur
boðað um árabil en fram til þessa
strandað á ýmsum tæknilegum at-
riðum. Þá hafa tilskilin leyfi látið
bíða eftir sér.
„Fyrirheit um afhendingu með
drónum hljóma eins og vísindaskáld-
skapur,“ segir í tilkynningu frá Ama-
zon, en nú sé engu að síður komið að
því og muni upplifun íbúa Lockeford
ríða baggamuninn um fyrstu skref
þessarar nýstárlegu þjónustu fyrir-
tækisins. Verða drónarnir forritaðir
til að skila varningnum af sér í görð-
um þessa 4.000 íbúa bæjar og mun
flug þeirra byggjast alfarið á eigin
skynjurum sem gera þeim kleift að
forðast önnur flugför, fólk, gæludýr
og aðrar hindranir.
Markmiðið verður, að sögn Ama-
zon, að koma innkaupavörum þess
örugglega í hendur kaupenda á inn-
an við klukkustund. Fyrirtækinu
hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa-
ítrekað gefið innistæðulaus loforð
um upphaf þessarar þjónustu, í því
augnamiði að vekja athygli á Prime-
þjónustu sinni. Þannig hafi forstjór-
inn, Jeff Bezos, lofað því árið 2013 að
innan fimm ára skyldi Amazon fylla
himinhvolfið heimsendingadrónum.
Árið 2019 átti þjónustan að komast í
gagnið „á næstu mánuðum“.
Í apríl fjallaði Bloomberg-frétta-
stofan um áhyggjuraddir tengdar
öryggismálum svo umfangsmikilla
vöruflutninga í lofti. Amazon svaraði
fullum hálsi og fullyrti að verksvið
dróna fyrirtækisins rúmaðist innan
„allra reglugerða“ sem við ættu. Er
því ekki örgrannt um að íbúar
Lockeford bíði nú fyrstu vörusend-
inga sinna með eftirvæntingu.
Enn boðar Bezos
drónasendingar
- Smábær í Kaliforníu tilraunasetur
Ljósmynd/MRT
Drónasending Þetta gæti orðið al-
geng sjón um loftin blá á árinu.
Fjöldi íbúa Henan-héraðsins í Kína
rekur sig nú á veggi víða, er ekki
hleypt inn í almenningssam-
göngutæki, verslanir og byggingar
ýmsar. Er Covid-smáforrit stjórn-
valda þar að verki sem fólk þarf að
nota til að skanna QR-kóða sem
opnar því dyr. Það sem meira er
virðast þeir sem hremmingunum
sæta allir skipta við sömu fjóra
bankana en kröftug mótmæli við-
skiptavina risu í maí þegar bank-
arnir lentu í vanda sem gerði það
að verkum að viðskiptavinir gátu
ekki tekið út reiðufé. Ná ofsókn-
irnar jafnvel til ættingja viðskipta-
vina en smáforritið skikkaði dóttur
eins þeirra í sóttkví að ósekju, segir
hún.
KÍNA
AFP
Maður veiruprófaður í Henan-héraði.
Smáforrit stjórn-
valda tyftir þegna
Danska lög-
reglan kveður
nokkra breyt-
ingu hafa orðið á
stemmningunni í
kringum lands-
leiki í knatt-
spyrnu upp á síð-
kastið og telur
ástæðu til að
vara við inn-
lendum fótbolta-
bullum. Geri
bullur þessar sér leik að því að
mæta á vettvang, þar sem leikir eru
sýndir á risaskjám, til dæmis í
Fælledparken á föstudag þar sem
landsleikur við Króata var sýndur,
stofna þar til átaka, grýta flöskum
og dósum og hegða sér almennt
eins og umskiptingar. Kveður varð-
stjóri ótækt að fólk noti leikina til
að fá útrás fyrir slagsmálaþörf.
DANMÖRK
Lögregla varar við
fótboltabullum
Dósum grýtt við
sýningu knattleiks
í Kaupmannahöfn.
Lögreglan í suðausturumdæminu í
Noregi hefur birt upptökur úr
tveimur öryggismyndavélum mat-
vöruverslunarinnar Coop í bænum
Kongsberg frá kvöldi 13. október í
fyrra, sem öruggt er að fáum íbúum
bæjarins líður úr minni í bráð. Myrti
Espen Andersen Bråthen fimm
manns og særði þrjá þetta kvöld, er
hann fór um bæinn vopnaður boga
og örvum auk eggvopns. Um er að
ræða mannskæðustu árás í Noregi
frá því 22. júlí 2011.
Lögreglan hafði ekki hugsað sér
að birta upptökurnar en að sögn Ola
B. Sæverud, lögreglustjóra, var
ákvörðun tekin um birtingu eftir að
sérfræðingar við Lögregluháskól-
ann höfðu farið yfir viðbrögð lög-
reglu í Kongsberg þetta kvöld og
skilað af sér skýrslu.
Með ör í bakinu
„Núna, þegar skýrslan liggur fyr-
ir, höfum við engin rök fyrir því að
birta ekki þetta efni. Við gerum okk-
ur ljóst að almenningur er forvitinn
um einmitt þennan hluta aðgerð-
arinnar,“ segir Sæverud við norska
ríkisútvarpið NRK. Lögreglunni var
legið á hálsi fyrir að hafa misst af
Bråthen eftir að hann hljóp út um
neyðarútgang verslunarinnar og
ekki fundið hann á ný fyrr en hann
hafði orðið fólkinu að bana.
Á hljóðrás annars myndskeiðsins
má heyra í brunaviðvörunarkerfi
verslunarinnar, sem Bråthen virkj-
aði frá lager hennar. Annars staðar
má sjá lögregluþjóninn Rigoberto
Villarroel með ör í bakinu en Bråt-
hen tók þegar að skjóta af vopni sínu
er hann sá til lögreglu sem fór í
fyrstu inn í verslunina án varn-
arbúnaðar á borð við skotheld vesti.
Hörfaði lögregla því undan örva-
hríðinni og sætti árásarmaðurinn þá
lagi, forðaði sér út um neyð-
arútganginn og hvarf sjónum lög-
reglu í um hálfa klukkustund.
Birta upptökur frá Kongsberg-árásinni
- Ekki rök fyrir leynd eftir að skýrsla
sérfræðinga Lögregluháskólans barst
Ljósmynd/Norska lögreglan
Hæfður Villarroel með ör í baki.