Morgunblaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 Börnin þín voru þér svo dýr- mæt og þau voru gjörsamlega allt þitt líf enda áttu mikið hrós skilið fyrir hvað þú varst alltaf með krakkana þína og varst svo ótrúlega duglegur elsku Georg minn. Þú varst besti faðir í heimi fyrir elsku börnin og gerðir allt með þeim. Ég er svo ánægð að hafa feng- ið að vera frænka þín og hafa fengið að þekkja þig í öll þessi ár sem ég hef verið til. Ég er ánægð með að hafa fengið að búa til minningar með þér, er svo ánægð með að hafa getað fíflast með þér og ég er svo endalaust ánægð fyrir allan tím- ann sem við höfum átt saman með fjölskyldunni, þú kenndir okkur svo margt og mikið. Þú ert sá allra fallegasti engill sem er kominn upp til himna. Ég skil ekki hvað þessi heim- ur er ósanngjarn og af hverju hann tók þig frá okkur. Þessi heimur er gjörsamlega óútreiknanlegur. Ég vildi óska þess að við gæt- um fengið einhver svör, af hverju þú varst tekinn frá okkur. Ég sætti mig bara ekki við að þú sért farinn og að ég muni aldrei sjá þig aftur en ég hef mikla trú á að þú sért núna að syngja og semja þessi fallegu lög. Ég mun alltaf sakna þín og elska þig elsku besti yndislegi Georg minn. Fljúgðu eins hátt og þú kemst, fallegi engill, og við sjáumst þegar minn tími kemur. Hvíldu í friði engillinn minn. Þín frænka, Lilja. Elsku Goggi. Ég var svo heppin að fá að kynnast þér 1998 þegar þú komst inn í líf okkar fjölskyldunnar með bros á vör. Þú áttir eftir að verða órjúfan- legur hluti af fjölskyldunni og því upplifði ég þig sem nokkurs konar stóra bróður. Ég átti það til að öfunda þig af athyglinni sem þú fékkst en þú áttir hana algjörlega skilið. Þú komst inn í fjölskylduna sem púslið sem vantaði og kláraðir púslið. Það var alltaf gaman að vera í kring- um þig og þú smitaðir alla með gleðinni og drifkraftinum sem í þér bjó. Mér þótti svo óskaplega vænt um þig þótt leiðir okkar skildi. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu og ég mun muna all- ar þær fallegu minningar sem ég á um þig um ókomna tíð. Fallinn er frá fallegur dreng- ur með sterka sál og hjarta úr gulli. Það er ekki réttlátt að hans tími kæmi svona snemma, alltof snemma. Lífið brosti við honum á öllum vígstöðvum. Vinmargur og vel liðinn hvar sem hann kom. Ég á eftir að sakna þín en um leið mun ég hugsa vel til þín og hinna góðu minninga tengdra þér, minninga sem ég mun geyma og segja Halldóri frá. Kær kveðja, Sara Halldórsdóttir. Það er bjartur þriðjudags- morgunn og enginn á sér ills von. Goggi er dáinn. Hvernig getur það gerst að maður í blóma lífsins, duglegur, hæfileikaríkur og umfram allt skemmtilegur félagi, sé farinn, aðeins 42 ára gamall. Okkar fyrstu kynni voru sum- arið 1998 þegar þið Tinna okkar fóruð að skjóta ykkur saman og ekki leið á löngu þar til þú varst orðinn einn af fjölskyldunni og fluttir heim til okkar. Sex árum seinna fæddist svo gullmolinn ykkar hann Halldór Snær, heil- brigður, yndislegur og fallegur strákur sem nú er orðinn 18 ára eða jafn gamall og þú varst þeg- ar við kynntumst þér fyrst. Þá varst þú stoltasti pabbi í heimi og lést sko alla vita af því. Það kom snemma í ljós hversu öfl- ugur þú varst, fórst og lærðir rafeindavirkjann og kláraðir það með glans og seinna stofnaðir þú þitt eigið fyrirtæki sem geng- ið hefur mjög vel. Hvar sem þú komst varstu hálfgerður hvirfilbylur, orkan og athafnasemin sem streymdi frá þér virkaði á alla í kringum þig. Þótt leiðir ykkar Tinnu hafi skilið hélst vinskapur okkar alla tíð. Hjálpsemi þín við okkur fjöl- skylduna þegar eitthvað bjátaði á í tæknimálum var einstök. Hæfileikar þínir lágu víðar, ber þá fyrst að nefna þína gullfal- legu söngrödd, ekki má nú gleyma hversu handlaginn og hugmyndaríkur þú varst í öllu sem viðkom að breyta, byggja og bæta í húsinu þínu í Bæjar- ási. Elsku Goggi, með þessum fáu orðum viljum við kveðja þig og þakka fyrir allt það skemmti- lega og góða sem þú komst með inn í líf okkar. Guð blessi þig og elsku börnin þín þau Halldór, Valgeir, Indr- iða og Katrínu og megi guð gefa þeim styrk til að takast á við missinn og sorgina. Farðu í friði, elsku Goggi, við vitum að pabbi þinn tekur þér opnum örmum í sumarlandinu. Halldór og Stefanía Þóra. Í dag fylgi ég þér til grafar kæri vinur. Hver hefði trúað því að svona hraustur maður sem átti allt fram undan í lífinu færi frá okkur, en hinn 30. maí 2022 varð til stórt skarð í hjörtum margra, fjölskyldu, vina og ást- vina. Þegar ég komst að því að æskuvinur minn frá leikskóla- aldri hefði orðið bráðkvaddur á heimili sínu tók mig dágóðan tíma að átta mig á slíkri frétt. Í fyrstu tók ég þessum ömurlegu fréttum sem afar lélegum hrekk því hugur minn skildi ekki að Georg væri farinn frá okkur. Það var svo stutt síðan ég hitti þig í blóma lífsins, svo margt fram undan hjá þér og ekki tími fyrir slíkt, að fara að kveðja þetta líf. Hugur minn leitaði strax til fjölskyldu þinnar, barnanna þinna ekki síst. Hvað hún nístir hjarta mitt tilhugsunin um að börnin hans Gogga séu orðin föðurlaus, en það sem við sem eigum minningar um þig, kæri vinur, erum nú rík. Mikið vær- um við öll til í að eiga fleiri stundir mér þér elsku vinur minn. Við slíkar fréttir koma minn- ingarnar sterkar upp á yfirborð- ið og ég man þegar ég fékk leyfi hjá bróður mínum að fara heim til þín og við fórum að leika okk- ur saman með dótið þitt. Þær minningar munu varðveitast vel ásamt mörgum öðrum minning- um sem við höfum skapað okk- ur, margar góðar og aðrar sem væri ágætt að sleppa að rifja upp hér. Minningarnar hrúgast upp, t.d. þegar þú gistir hjá mér í fyrsta sinn, þegar við stálumst í nammi hjá mömmu, bílaleikirn- ir, He-man-tímabilið, þegar við fengum pönnukökur hjá mömmu þinni um helgar, hjól- uðum saman í móanum sem nú er Lindahverfi í Kópavogi, veiði- ferðir sem pabbi þinn bauð mér svo oft að fara í með þér. Á táningsaldri fór að bera á einhverri sýki hjá þér og þá er ég ekki að tala um sykursýkina sem þú varst með meiri hluta ævi þinnar. Nei ég er að tala um græjusýki, sem var stór hluti af lífi þínu. Ég held þó að þú hafir ekki verið mikið að berjast gegn slíkri sýki, þvert á móti. Ég man þegar þú sýndir mér nýju stóru Pioneer-fermingarsteríógræj- urnar með einhverri svaka stóri geisladiskaplötu, sem var á stærð við hljómplötu, sem hægt var að horfa á bíómyndir í gæð- um sem voru ekki mikið þekkt á Íslandi. Þetta keyptirðu þér fyr- ir fermingarpeninga þína og þú sagðir mér frá því þegar þú fórst í búðina og sölumaðurinn ætlaði að selja þér þessar „týpísku“ fermingargræjur. Þá sagðir þú nei takk, þú vildir ekki svoleiðis heldur alvörugræjur. Farið var með þig í annað herbergi í búð- inni þar sem allar pro-vörurnar voru og svo varð raunin að þú keyptir þessar svakalegu hljóm- flutningsgræjur, nágranna þín- um til mikillar gleði í blokkinni þar sem þú bjóst! Það er óhætt að segja að þú hafir alltaf farið dálítið mikið alla leið í græju- kaupum enda var núverandi heimili þitt fullt af slíkum djásn- um. Það eru svo margar minning- ar sem hægt væri að skrifa hér, svo ég nefni ekki sönginn sem var stór hluti af lífi þínu en það munu eflaust aðrir sjá um þau skrif. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til allra fjölskyldumeð- lima og einkum barna þinna Georg minn. Þinn æskuvinur, Sindri Reyr. Það er þyngra en tárum taki að setjast niður og skrifa minn- ingargrein um mann sem hrifinn var burt í blóma lífsins alltof snemma, hversu ósanngjarnt getur lífið oft verið. Georg vinur minn, þessi ein- staklega ljúfi, skemmtilegi, trausti og hæfileikaríki maður, átti svo mikið inni. Goggi eða gormurinn minn eins og ég kallaði hann alltaf kom inn í líf mitt þegar ég þurfti sem mest á því að halda. Frá okkar fyrstu kynnum kom strax í ljós að við yrðum alltaf miklir og góðir vinir, á milli okkar ríkti traust, trúnaður og skilningur. Við töluðum um líf okkar beggja frá því að við mundum eftir okkur, það var ekkert sem við vissum ekki hvort um annað. Goggi hafði allt til brunns að bera til þess að vera fullkominn vinur. Ég á honum svo mikið að þakka, hann var í mínum allra innsta hring og ég í hans, hann var einn af mínum allra bestu. Vináttan okkar er eitt af því dýr- mætasta sem ég á og í hjarta mínu geymi ég allar okkar sam- ræður sem voru oft á tíðum mjög djúpar um lífið og tilveruna, við spáðum í allt milli himins og jarðar, vorum alltaf að reyna að skilja hismið frá kjarnanum. Hans mesti ótti var að deyja ungur frá börnunum sínum sem hann elskaði mest af öllu. Við töluðum saman á hverjum degi og oftar en ekki voru sím- tölin okkar nokkur á dag. Goggi var mikill spjallari, stríðinn með eindæmum, ótrú- lega fyndinn og orðheppinn, hann bjó líka yfir frásagnargáfu og gátu því símtölin okkar orðið ansi löng án þess að við áttuðum okkur á því að tveir til þrír tímar voru liðnir. Goggi var einstaklega góður pabbi og var afar stoltur af börn- unum sínum fjórum. Halldór, frumburðurinn hans, er að gera það mjög gott í fót- boltanum, þeir voru afar nánir og alveg ótrúlega líkir. Goggi hringdi í mig með frá- bærar fréttir af Halldóri, stoltið í röddinni hans heyrðist alla leið til Akureyrar, hann var að kom- ast í þann gírinn að vilja fræðast um boltann því áhugi hans á boltanum var ekkert sérstaklega mikill en hann vildi vita alveg ná- kvæmlega um hvað þessi bless- aði bolti snerist. Á þessu sviði er ég á heimavelli og því gat ég far- ið yfir þetta allt með honum, hann ætlaði sko að fylgja Hall- dóri alla leið með því að virkja áhuga sinn á þessu sviði. Tónlistin var Gogga afar mik- ilvæg og stór þáttur í hans lífi, hann fæddist með náðargáfu, röddin hans var vægast sagt mögnuð. Okkar síðasta samtal var seinnipart dagsins sem hann lést, hann sagðist hafa átt eina bestu helgi í svo langan tíma því öll fjölskyldan hans var hjá hon- um í grilli og skemmtilegheit- um, hann elskaði að hafa fólkið sitt í kringum sig, hann var svo glaður. Hvíldu í friði, elsku hjartans engillinn minn, ég mun aldrei gleyma þér, elsku gormurinn minn. Ég mun þakka fyrir okkar einstaka vinskap á hverjum degi. Megi almættið umvefja og styrkja alla þá sem þótti vænt um og elskuðu Gogga. Megi almættið einnig halda verndarhendi yfir börnunum hans fjórum, Halldóri, Valgeiri, Indriða og Katrínu. Hugur minn er hjá fjölskyldu Georgs og vinum. Þín vinkona, Ragnheiður Rut Georgsdóttir. „Hey ert þú ekki þessi 500- kall?“ heyrðist kallað háum en samt hlédrægum rómi þar sem ég stóð í miðjum líkamsræktar- salnum í Egilshöllinni. Ég sneri mér við og þá blasti við mér þessi stæðilegi ungi maður sem brosti sínu breiða fallega brosi í átt að mér með vinalegu flissi. Þannig hófst einlægur, náinn og ómetanlegur vinskapur okk- ar Georgs Alexanders sem spannaði vel á annan áratug. Við Goggi eins og ég kallaði hann náðum strax vel saman enda lágu leiðir okkar á mörgum sviðum í sama farvatninu, allt frá áhuga á tónlist og sköpun yf- ir í kaldhæðinn en hrikalega góðan (að okkar mati allavega) húmor. Goggi kom til dyranna eins og hann var klæddur, hann var ein- lægur, ósérhlífinn, duglegur og einkar laghentur en fyrst og fremst góður vinur. Goggi lagði mikið upp úr því að öðrum liði sem best og vildi allt fyrir alla gera og fór oft á tíðum mikill tími og mikil orka hjá honum í þessa hluti, jafnvel svo mikil að hann gleymdi á köflum að sinna sjálfum sér. Það fóru ófáar stundirnar hjá okkur í að sitja inni í litla upp- tökuherberginu hans Gogga þar sem við spiluðum, sungum, kjöftuðum, hlógum og tókum upp hin og þessi lög sem okkur þótti geggjuð. Það er mér ómet- anlegt að eiga í fórum mínum nokkrar demó-upptökur þar sem Georg er að syngja frum- samin lög eftir mig, lög sem við vorum farnir að stefna á að keyra á fullt í að taka upp og gefa út. Því miður er ljóst að ekkert verður af því en ég er staðráðinn í því að gefa eitthvað af þessum lögum út sjálfur í minningu um góðan vin. Börnin hans Gogga voru fjár- sjóðurinn hans og hann lifði fyr- ir börnin sín. Það var bæði gef- andi og gleðilegt að fylgjast með honum bæði í gegnum sam- félagsmiðla sem og þegar við hittumst að sjá hvað börnin gáfu honum mikið og hann klárlega þeim. Ljóst er að missir þeirra er mikill en það verður hlutverk mæðra þeirra, fjölskyldu og okkar vina Georgs að sjá til þess að ljósi og minningu föður þeirra verði haldið á loft um ókomna tíð. Ljóst er að við höfum misst frá okkur einstakan, hæfileika- ríkan, hjartahlýjan og duglegan mann á besta aldri en eitt er víst að hann er og verður með okkur öllum um ókomna tíð. Ég votta börnum Georgs, þeim Halldóri Snæ, Valgeiri Marinus, Indriða Aroni og Katr- ínu Indu, fjölskyldu Georgs og vinum mína dýpstu samúð. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorg- inni. Elsku Georg farðu í friði en eitt máttu vita að leiðir okkar eiga eftir að liggja saman aftur þótt síðar verði. Þinn vinur, Jón Sigurðsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN REBEKKA EINARSDÓTTIR, Didda Muggs, frá Hnífsdal, Árskógum 8, Reykjavík, lést á Skógarbæ 5. júní. Útförin fer fram frá Seljakirkju, fimmtudaginn 16. júní klukkan 13. Guðmundur Tryggvi Sigurðsson Bjarnveig Brynja Guðmundsdóttir Aðalheiður Anna Guðmundsdóttir, Jón Ingi Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG JÓNA SIGURÐARDÓTTIR, Lilla í Mellandi, Kirkjuvegi 6, Hvammstanga, lést á HSV Hvammstanga föstudaginn 10. júní. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 14. Baldur Ingvarsson Sigurður Kr. Baldursson Sigríður Sigurðardóttir Inga S. Baldursdóttir Stefán L. Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær bróðir okkar, frændi og mágur, TÓMAS MAGNÚS GUÐGEIRSSON, andaðist sunnudaginn 5. júní á Landspítalanum. Útförin verður gerð frá Fossvogkirkju fimmtudaginn 23. júní og hefst athöfnin klukkan 11. Fyrir hönd aðstandenda, systkini hins látna Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar dóttur okkar, systur og frænku, GUÐNÝJAR KRISTRÚNAR DAVÍÐSDÓTTUR, Hulduhóli 1, Eyrarbakka. Ingibjörg Birgisdóttir Davíð Kristjánsson Drífa Eysteinsdóttir Margrét B. Davíðsdóttir Þórmundur Sigurðsson Davíð Ingimar Þórmundsson Birgir Þór Þórmundsson Unnur Hekla Þórmundsdóttir Sandra D. Gunnarsdóttir og fjölskylda Guðlaugur Karl Skúlason og fjölskylda Gerður Sif Skúladóttir og fjölskylda. Elsku móðir mín og fósturmóðir, FJÓLA KRISTINSDÓTTIR matráður, Þórufelli 16, andaðist á heimili sínu 9. júni. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 21. júni klukkan 11. Fyrir hönd aðstandenda, Berglind Stefánsdóttir og Kristín Helgadóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR KRISTJANA GUNNARSDÓTTIR, Vatnabúðum, Eyrarsveit, lést á dvalarheimilinu Fellaskjóli mánudaginn 30. maí. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju mánudaginn 20. júní klukkan 13. Sævaldur Fjalar Elísson Hjördís Fríða Jónsdóttir Ægir Berg Elísson Guðrún Vilborg Gunnarsdóttir Gunnar Jóhann Elísson Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.