Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Sandblástursfilmur RollUp& BannerUp Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Morgun- spjall, heitt á könnunni milli 9:00-11:00 - Dans með Auði Hörpu kl.10:30, kostar ekkert - Jóga með Grétu kl.12:15 & 13:30 - Opin vinnustofa kl.13:00-15:30 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir Árskógar 4 Útileikfimi kl. 10. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45- 15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 12:30-16:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi. 10.00 Gönguhópur frá Jónshúsi. 10.30 Skák og Scrabble í Jónshúsi. 11.00 Stóla-jóga í Sjálandsskóla. 12.30-15.40 Bridds í Jónshúsi.13.00 Gönguhópur frá Smiðju Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Döff, Félag heyrnarlausra frá kl. 12:30. Félagsvist frá kl. 13:00. Allir velkomnir Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Framhalds- saga kl. 10:30. Handavinna – opin vinnustofa 13:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Spurningakeppni kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Opin handverksstofa 9:00-12:00 - Bókband í smiðju kl.09:00-12:30 - Opin handverksstofa 13:00-16:00 - Bókband í smiðju kl.13:00-16:30 og síðdegiskaffið á sínum stað frá 14:30-15:30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Öll hjartanlega velkomin til okkar :) Seltjarnarnes Kaffi í króknum kl. 9:00. Boccia í salnum á Skólabraut kl. 10:00. Frjáls stund; handavinna samvera og kaffi kl. 13:00. Þriðjudaginn 21.júní verður farið í gönguferð í Hellisgerði og skráning er hafin. Skráningarblöð liggja á Skólabraut og Eiðismýri. Hægt er að skrá sig og nálgast allar frekari upplýsingar í síma 5959147/6626633. Vantar þig fagmann? FINNA.is alltaf - alstaðar mbl.is ✝ Anna Sveindís Margeirsdóttir fæddist í Sandgerði 10. nóvember 1950. Hún lést á líknar- deild Landspítalans 2. júní 2022. Anna var dóttir hjónanna Margeirs Sigurðssonar, f. 2.11. 1906, d. 7.8. 1986, og Elenoru Þórðardóttur, f. 9.9. 1907, d. 3.6. 1987. Anna ólst upp með átta systk- inum, sem eru Sigurður, Ósk, og Þórir giftu sig 13. september 1975 og börn þeirra eru: 1) Lúð- vík V., f. 28.10. 1968, kvæntur Kamilu Söndru Þórisson og saman eiga þau Veroniku Rós og Ísabellu Sól. 2) Jón Margeir, f. 23.6. 1975, kvæntur Báru Yngvadóttur og saman eiga þau Yngva, Móeiði Önnu og Hrafn- hildi Ýri. 3) Birna Ósk, f. 19.5. 1984, gift Halldóri Gylfasyni og börn þeirra eru Hera Mist og Al- exander Freyr. Anna bjó í Sandgerði til 15 ára aldurs og flutti svo til Reykjavíkur. Hún starfaði lengst hjá Landsbankanum og Valitor. Útför Önnu fer fram frá Seljakirkju í dag, 15. júní 2022, klukkan 13. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Edda og Margrét, sem eru látin, og Friðjón, Kjartan, Hreiðar og Birna. Anna var yngst í þessum systkina- hópi. Anna var gift Þóri Lúðvíkssyni, f. 3.8. 1950, d. 5.12. 2019. Hann var son- ur hjónanna Lúð- víks Valdimarsson- ar, f. 19.9. 1920, d. 31.8. 1990, og Guðrúnar Þorgeirsdóttur, f. 28.6. 1918, d. 15.1. 1997. Anna Mikið er erfitt að kveðja þig elsku Anna mín. Ég áttaði mig ekki á því hve stutt væri eftir, ég hélt í vonina fram á síðasta dag. Við höfum verið nánar systur frá blautu barnsbeini á Túngöt- unni í Sandgerði. Minningar frá æskuárunum eru margar og ljúfar, en sem betur fer höfum við gengið saman í gegnum lífið. Frænkusaumaklúbburinn þar sem mikið var hlegið og farið í utanlandsferðir. Þá eru minnis- stæðar hringferðirnar okkar um Ísland með fjölskyldurnar og sumarbústaðaferðir. Það var svo hlýtt og notalegt að koma í heimsókn til ykkar Þóris, þið voruð gestrisin með eindæmum, kræsingar á borð- um og hlýja ykkar í garð okkar var yndisleg. Þá þótti mér vænt um símtölin okkar síðustu árin. Á nánast hverjum degi spjöll- uðum við saman og fórum yfir þjóðfélagsmálin og hvað væri að frétta af krökkunum okkar og fjölskyldum þeirra. Við vorum nú ekki alltaf sammála í pólitíkinni, en það bara gerði símtölin skemmtilegri. Elsku litla systir, þú varst ákveðin, húmorísk, söngelsk og félagslynd. Þú hafðir svo mikla ást og umhyggju að gefa og ég verð ávallt þakklát fyrir allar okkar stundir í blíðu og stríðu. Við upplifðum báðar að missa maka okkar og stóðum saman í gegnum sorgina. Ég vona að elskulegi Þórir þinn hafi tekið vel á móti þér og er viss um að Árni minn er búinn að heilsa upp á þig. Ég kveð þig með söknuði og sorg í hjarta, það er einmanalegt að fá ekki símtölin frá þér, en ég vona svo innilega að þér líði vel í sumarlandinu. Elsku Lúlli, Maggi, Birna og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín systir, Birna. Anna Margeirs vinkona okkar er farin frá okkur allt of snemma. Anna var ein af stofnfélögum í Lionsklúbbnum Fold sem stofn- aður var í maí 1990. Það var hóp- ur kvenna í Reykjavík sem hafði áhuga á að láta gott af sér leiða sem ákvað að ganga til liðs við Lions. Klúbburinn var stofnaður af 27 konum víðs vegar úr þjóð- félaginu og atvinnulífinu. Þetta voru 27 konur með ólíka lífssýn, reynslu og upplifanir en það tók ótrúlega stuttan tíma að hrista okkur saman og erum við enn starfandi eftir 32 ár. Þar átti Anna stóran þátt, þessi lífsglaða, hressa, jákvæða og skemmtilega kona, alltaf tilbúin að taka þátt í allri vinnu, rétta alls staðar hjálparhönd og alltaf með bros á vör. Hún gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir klúbbinn; var fjórum sinnum gjaldkeri, stallari, siðameistari og formaður í flest- um nefndum. Við fengum líka að njóta vinnu Þóris mannsins hennar Önnu, hann átti sendi- ferðabíl og var ólatur að skutlast fyrir okkur hvort sem það var með plöntur upp í lundinn okkar í Heiðmörk eða sækja sjúkrarúm sem okkur voru gefin og við þurftum að koma í gáma til út- flutnings til vanþróaðra landa. Anna missti Þóri sinn fyrir tæp- um þremur árum og var hann öll- um mikill harmdauði, ekki síst Önnu, enda voru þau búin að vera saman frá 15 ára aldri. Árið 2016 var Anna sæmd Melvin Jones-orðunni sem er æðsta viðurkenning fyrir störf innan Lions. Við kveðjum þig með söknuði kæra vinkona, við vitum að Þórir þinn mun taka vel á móti þér. Við sendum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. F.h. Lionsklúbbsins Foldar, Margrét Jónsdóttir, Anna Kristín Gunnlaugsdóttir. Anna Sveindís Margeirsdóttir Kynni okkar Jó- hönnu tókust fljót- lega eftir að við Edda systir hennar kynntumst í Menntaskólanum á Laugarvatni veturinn 1954 til ’55. Þá fór ég að venja komur mínar að Læk þar sem fjölskylda þeirra bjó. Eftir að við stofnuðum heim- ili og höfðum eignast hana Lilju okkar var gott að eiga Jóhönnu að þegar þurfti að passa barnið. Hún var ólöt að koma þegar kall- að var, þótt hún þyrfti að taka tvo strætisvagna og ganga góðan spöl. Strætó varð reyndar vettvang- ur örlagaríks atburðar í þessari Jóhanna Þorkelsdóttir ✝ Jóhanna Þor- kelsdóttir fæddist 13. október 1941 í Reykjavík. Hún lést 18. maí 2022. Útför Jó- hönnu fór fram 7. júní 2022. sögu. Eitt sinn vor- um við Edda ásamt Jóhönnu á leið inn að Læk í Sogamýr- arvagninum. Hitt- um þá fyrir skóla- bróður okkar Magnús Bjarnason. Og ég spurði hvort ég mætti kynna hann fyrir mágkonu minni. Þau kynnu urðu afgerandi því þau hófu sambúð ekki löngu síð- ar. Eftirminnileg er ferðin sem við fórum til Vesturheims árið 2002. Í Winnipeg leituðu þær systur uppi frændfólk, afkomendur systkina Þorleifs föðurafa þeirra. Þetta leiddi til gagnkvæmra heimsókna og annarra sam- skipta, en þarna stækkaði fjöl- skylda þeirra svo um munaði. Fleiri góðar ferðir fórum við fjög- ur saman, og stundum í stærri hópum. Hún unni listum hún Jóhanna, og var listfeng sjálf þótt hún flík- aði því ekki. Lagði upp úr því að hafa list og listhannaða hluti í kringum sig. Las mikið og sótti leikhús og tónleika. Hún lærði vefnað í húsmæðraskólanum, og lengi vel var vefstóllinn það hús- gagn sem mest bar á í stofum hennar. Jóhanna var ekki heilsugóð. Fyrsta áfallið fékk hún aðeins fjögurra ára þegar hún smitaðist af lömunarveiki sem hún varð aldrei heil af. Hún hlífði sér samt ekki við það sem gera þurfti eða hana langaði að gera, bar jafnan höfuðið hátt, fór ferða sinna jafnt eða framar öðrum, en mér er nær að halda að löngum hafi hún verið þreyttari og þjáðari en manni sýndist. Það var eðli hennar að bera ekki tilfinningarnar utan á sér. En tilfinningar átti hún í ríkum mæli, Hún bar mikla umhyggju fyrir sínu fólki. Börn, barnabörn og barnabarnabörn hafa öll notið hennar og munu minnast hennar með þakklæti. Þegar undan hall- aði fyrir foreldrum hennar vegna aldurs stóð ekki á henni að sinna þeim eins og þurfti. Það er til marks um ræktarsemi hennar að fyrir um það bil mánuði stóð hún fyrir samkomu til að minnast 115 ára afmælisdags Þorkels föður þeirra systkina. Mér er tregt tungu að hræra, efast um að minningu kærrar mágkonu minnar séu hér að ofan gerð þau skil sem hún verðskuld- ar. Í vanmætti sínum leitar mað- ur þá á vit skálda, því að þau kunna að haga orðum á þann veg að þetta vildi maður einmitt sjálf- ur sagt hafa. Vilborg Dagbjartsdóttir kveð- ur í ljóðinu Rof, sem birt var í ljóðabókinni Síðdegi: Að vakna á sólbjörtum morgni Finna dyr opnast djúpt í myrkrum sálarinnar Birtan að ofan streymir óheft niður og hríslast um hverja taug Þú verður ein heild manst allt skilur allt – ert fær um að halda áfram óttalaus á leiðarenda. Megi minningin um góða konu lifa í hjarta okkar allra sem hún var kær. Jóhann Gunnarsson. Fyrir rúmum fjörutíu árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Guðríði E. Guðmundsdóttur sem ávallt var kölluð Lóa. Hún var móðir vin- ar míns Guðmundar en við strákarnir unnum saman í sum- Guðríður E. Guðmundsdóttir ✝ Guðríður Guð- mundsdóttir, Lóa, fæddist 17. september 1934. Hún lést 16. apríl 2022. Útförin fór fram í kyrrþey. arvinnu í Laugar- dalnum í Reykja- vík. Fljótlega eftir að ég fór að venja komur mínar á heimili fjölskyld- unnar á Fremr- istekk heillaðist ég af hversu skemmti- leg, hreinskiptin og uppörvandi Lóa var. Hún lá ekki á skoðunum sínum en kom þeim til skila með var- færnum og fallegum hætti. Það sem einkenndi Lóu var hlýtt hjartalag, lífsgleði, húmor sem hún átti svo ríkulega af og orð- heppni. Alltaf fór ég ríkari af hennar fundi. Á mínum yngri árum hringdi ég stundum í Lóu sem gaf sér tíma til að ræða við mig. Þá var gjarnan slegið á létta strengi en það var líka gott að leita til hennar því hún var einstaklega ráðagóð. Þegar ég dvaldi er- lendis á mínum yngri árum og heimþráin sótti á mig tók ég til þess ráðs að skrifa foreldrum mínum og líka Lóu stutt póst- kort og þá leið mér strax betur. Lóa var einstök gæfukona sem gekk lífsins veg með sínum yndislega manni Sigþóri. Það var dýrmætt að fá að verða vitni að þeirra fallegu vináttu og þeim samtakamætti sem einkenndi samband þeirra. Eft- irminnilegt er hversu vel þau hjón tóku á móti gestum á sínu fallega og sannkallaða menn- ingarheimili. Þar voru allir vel- komnir og enginn mannamunur gerður. Lóa hafði vakandi áhuga á lífinu og fylgdist alltaf jafn vel með samfélagsumræðunni þó árin færðust yfir. Í gegnum tíð- ina missti hún ekki sjónar á því sem við vinir Guðmundar tók- um okkur fyrir hendur. Hún hvatti okkur áfram og gladdist þegar vel gekk. Þessi um- hyggja einkenndi heimilið á Fremristekk og því ekki að undra að vinir barnanna yrðu góðir vinir Lóu og Sigþórs. Við fráfall minnar góðu vin- konu verður tilveran sannar- lega fátækari. Elsku Sigþór og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Missir ykkar er mikill. Einar Örn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.