Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 FAXAFEN 14, 108 REYKJAVÍK WWW.Z.IS Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Nú stefnir í að þú hittir þá sem þú umgekkst í æsku. Eitthvað er að pirra makann, komstu að því hvað það er. 20. apríl - 20. maí + Naut Ef þú eyðir tímanum með ein- hverjum sem þú vilt alls ekki vera með, þá ertu í raun að eyða tíma til einskis. Gættu þess að fá næga hvíld. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Fall er fararheill. Gott mannorð þitt mun gera þér auðveldara að tengja við fólk sem þig langar til að kynnast. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert nú að taka til í eigin garði og sérð hvað undir býr. Vei sé þeim sem voga sér að komast undan samkomulagi sem þeir hafa gert við þig. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Að elska og vera elskaður er það sem máli skiptir í lífinu. Þér kann að takast að lægja deilur ef þú leggur þig fram. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Aðstoð þín við aðra getur leitt til þess að mikilvægur árangur náist. Eitt- hvað mun taka miklum breytingum næstu vikur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Spilaðu hlutina eftir eyranu. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er lofsvert að láta sig varða um annarra vandamál. Einhver reynir að selja þér eitthvað sem þú þarft alls ekki. Ekki láta freistast. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er hægt að leiða öðrum sannleikann fyrir sjónir án þess að beita klækjum. Ekki ganga of langt í skipulag- inu heima. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þér finnst það skylda þín að deila vitneskju þinni með öðrum. Þér finnst þú ósigrandi þessar vikurnar. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þeir eru margir sem líta til þín í von um ráð og leiðsögn. Hvers kon- ar hópvinna ætti að ganga sérlega vel næstu mánuði. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Sýndu öðrum tillitssemi og um- burðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Þú færð fréttir af fjölgun í fjölskyldunni. verið aðaleigandi og stjórnar- formaður Scanbox Entertainment frá 2005. Þórir Snær, sonur hans, tók ný- lega við því fyrirtæki sem er kvik- myndadreifingarfyrirtæki á Norð- urlöndum. „Í seinni tíð höfum við verið meðframleiðendur fjölda mynda. Þar er sænska myndin Gaml- inginn líklega þekktust en hún sló í gegn um allan heim.“ Núna er Sigurjón að framleiða leikna mynd á ensku með sænska leikstjóranum Lasse Hallström. formaður Palomar Pictures frá 2002 og til dagsins í dag. „Ég hef mest ver- ið í sjálfstæðum kvikmyndum en Lakeshore var með samning við Paramount og var auðvitað full- komnun á ferlinum að hafa skrifstofu í einu frægasta kvíkmyndastúdíói í heimi. Svo hef ég líka verið svo hepp- inn að framleiða kvikmyndir út um allan heim, á íslensku, dönsku, norsku, sænsku og frönsku og unnið í ótal löndum.“ Sigurjón hefur verið enn fremur S igurjón Sighvatsson er fæddur 15. júní 1952 á Landspítalanum í Reykja- vík en ólst upp á Akranesi frá fæðingu og fram til 12 ára aldurs. Hann átti síðan heima í Álfheimum í Reykjavík þar til hann hóf búskap með konu sinni, Sigríði Jónu Þórisdottur, á Hagamelnum. Sigurjón hefur verið búsettur í Bandaríkjunum frá 1978. Frá barnaskólaaldri spilaði Sigur- jón í hljómsveitum, m.a. Lúðrasveit Barnaskóla Akraness og popp- hljómsveitinni Kjörnum frá Akranesi. Hann var síðan í hljómsveitunum Falcon, Mods, Ævintýri, Flowers og Brimkló. Sigurjón var einn af stofn- endum Hljóðrita, fyrsta hljóð- upptökuvers á Íslandi, 1975. Sigurjón gekk í Barnaskóla Akra- ness, Vogaskóla og lauk stúdents- prófi frá Verzlunarskóla Íslands 1973. Hann lauk BA-gráðu í bók- menntafræði og íslensku frá HÍ 1978, hlaut Fulbright-styrk og lauk MFA- námi í kvikmyndagerð frá University of Southern California 1981. Hann er jafnframt „directing fellow“ frá Am- erican Film Institute 1982. „Ég hafði alltaf haft áhuga á kvikmyndum, mér fannst ég vera of mikill sveimhugi til að verða rithöfundur og fór því að reyna fyrir mér með kvikmyndirnar.“ Kvikmyndaferillinn Sigurjón stofnaði Propaganda Films 1985, sem fyrst í stað einbeitti sér að tónlistarmyndböndum. „Fyrir- tækið óx mjög hratt, MTV var stofn- að 1981 og við komum inn á réttum tíma. Í rúman áratug vorum við lang- stærsta tónlistarmyndbandafyrir- tæki heims, með 50 leikstjóra á okkar snærum. Við fórum síðan út í sjón- varpsauglýsingar, eitt leiddi af öðru og við vorum farnir að gera sjón- varpsþætti og kvikmyndir.“ Fyrir- tækið framleiddi m.a. þættina Twin Peaks, Beverly Hills 90210 og kvik- myndina Wild at Heart, sem vann gullpálmann í Cannes. Allt kom þetta út á sama árinu, 1990. Sigurjón seldi síðan Propaganda og stofnaði Lakeshore Entertain- ment Los Angeles 1995. Hann varð síðan meðeigandi og stjórnar- Myndin fjallar um sænsku listakon- una Hilmu af Klint, sem var einn af frumkvöðlum abstraktlistar í heim- inum. „Svo vorum við að byrja tökur á myndinni Kulda, eftir bók Yrsu Sig- urðardóttur, en ég var framleiðandi myndarinnar Ég man þig. Svo er ég meðframleiðandi á nokkrum mynd- um. Mér finnst gaman að vera í mörgu, bæði stórum myndum og minni myndum. Það var gaman að framleiða stórar myndir eins og K19,“ en hún kostaði 90 milljónir dala og er frá 2002. „Margar af mínum bestu myndum eru samt minni mynd- ir. Ætli mér þyki ekki vænst um myndina Brothers, sem var endur- gerð á danskri mynd. Hún var mitt hugarfóstur og heppnaðist ótrúlega vel á allan hátt. Þar small allt saman.“ Aðspurður segist Sigurjón vera að hugsa um að hægja á sér og minnka vinnuna. „Barnabörnin eru orðin fjögur og kominn tími til að setja fjöl- skylduna og ættingja i forgang. Ég er þá að spá í að vera oftar meðframleið- andi en aðalframleiðandi, en ég er ekkert að fara að hætta.“ Sigurjón hefur tekið virkan þátt í viðskipta- og menningarlífinu á Ís- landi. Hann var einn af stofnendum Hins leikhúsins sem setti upp Litlu hryllingsbúðina 1986. Hann var með- eigandi Stöðvar 2 1994-2004 og með- eigandi og stjórnarformaður Sjóklæðagerðarinnar, 66°Norður og Rammagerðarinnar 2004-2013. Sigurjón hefur sinnt mörgum félagsstörfum. Hann var í stjórn Music Video Producers Association 1987-1995, Association of Television Commercial Producers 1990-1995, formaður American Cinematheque 1994-1999, kjörræðismaður Íslands í Suður-Kaliforníu 1987-2022 og hefur verið formaður Kvikmyndaráðs Íslands frá 2020. „Áhugamál mitt er list af öllum toga, tónlist, myndlist, ljósmyndun, bókmenntir og leikhús,“ en Sigurjón var með sína fyrstu sýningu á ljós- myndaverkum sínum árið 2021. „Ég tel ekki kvikmyndaást mína sem áhugamál þar sem kvikmyndafram- leiðsla og -dreifing hefur verið og verður mitt aðalstarf. Margir sem þekkja mig halda að ég Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi – 70 ára Morgunblaðið/Kristinn Frumsýning Sigurjón og Sigríður ásamt syni sínum, Þóri Snæ, og tengda- dóttur, Elsu Maríu. Á leiðinni á frumsýningu á einni af myndum Sigurjóns, Only God Forgives, í leikstjórn Danans Nicolas Winding Refn, árið 2013. Alltaf með mörg járn í eldinum Afinn Sigurjón og elstu barnabörnin, Saga Sigurveig og Maya Jóna. 50 ÁRA Halldór er Skagstrendingur, ólst upp á Skagaströnd og býr þar. Hann er sjávarútvegsfræðingur frá HA. Hann er framkvæmdastjóri Sjávarlíftæknisetursins Biopol og er oddviti sveitarstjórnar á Skagaströnd. Hann er í kirkjukór Hóla- neskirkju á Skagaströnd og er bráðaliði í Björgunarsveitinni Strönd. „Áhugamál mín eru allt sem viðkemur veiðiskap. Svo eyði ég sumarfríinu mínu við strandveiðar, á trillu sem ég er að leika mér á á sumrin. FJÖLSKYLDA Eiginkona Halldórs er Sigríður Stefánsdóttir, f. 1968, hjúkr- unarfræðingur við heilsugæslu HSN í A-Húnavatnssýslu. Börn þeirra eru Guðrún Anna, f. 1996, Páll, f. 1999, og Ólafur, f. 2003. Foreldrar Halldórs eru Ólafur H. Bernódusson, f. 1951, kenn- ari, og Guðrún Pálsdóttir, f. 1952, fv. skrifstofumaður. Þau eru búsett á Skagaströnd. Halldór Gunnar Ólafsson Ásdís Ríkarðsdóttir átti 100 ára af- mæli í gær, 14. júní. Myndin er tekin 9. þessa mánaðar í herbergi hennar á Hrafnistu í Hafnarfirði. Árnað heilla 100 ára Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.