Morgunblaðið - 15.06.2022, Side 21
sé antisportisti, sem auðvitað er ekki
satt. Ég elska íþróttir en þær verða
að koma á eftir öllu hinu. Engu að síð-
ur hef ég nú framleitt tvær myndir
um knattspyrnu, meira að segja um
einn besta fótboltamann og þjálfara
allra tíma, Zinedane Zidane, og eru
þær báðar meðal þeirra mynda sem
mér þykir vænst um. En heilsurækt
og andleg málefni eru mér hugstæð.
Ekki síst innhverf íhugun og jóga.
Hvort tveggja hefur bjargað lífi mínu
ef svo má segja.“
Fjölskylda
Maki Sigurjóns er Sigríður Jóna
Þórisdóttir, f. 2.2. 1950, sérkennari og
sálfræðingur. Foreldrar Sigríðar
voru Hanna Björg Felixdóttir, f. 23.7.
1929, d. 12.1. 2020, húsmóðir og versl-
unarmaður, og Þórir Jónsson, f. 22.8.
1926, d. 1.7. 2017, forstjóri.
Börn Sigurjóns og Sigríðar eru 1)
Þórir Snær Sigurjónsson, f. 12.8.
1973, kvikmyndaframleiðandi, bú-
settur í Kaupmannahöfn. Maki: Elsa
María Jakobsdóttir, leikstjóri; 2) Sig-
urborg Hanna Sigurjónsdóttir, f.
7.12. 1994, söngkona og lagasmiður,
búsett í Reykjavík. Barnabörnin eru
Lúkas Lind Þórisson, f. 16.5. 2004;
Saga Sigurveig Þórisdóttir, f. 5.9.
2019; Maya Jóna Sigurborgardóttir,
f. 20.2. 2020, og stúlka Þórisdóttir, f.
22.3. 2022.
Bróðir Sigurjóns var Karl Jóhann
Sighvatsson, f. 8.9. 1950, d. 2.6. 1991,
tónlistarmaður.
Foreldrar Sigurjóns voru Sigur-
borg Sigurjónsdóttir, f. 5.11. 1933, d.
28.1. 1986, skrifstofumaður á Akra-
nesi og í Reykjavík, og Sighvatur
Karlsson, f. 16.1. 1933, d. 22.7. 1997,
matreiðslumaður á Akranesi.
Sigurjón
Sighvatsson
Vilborg Benediktsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Sigfinnur Sigurðsson
útgerðarmaður í Neskaupstað
Jóhanna Sigfinnsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Sigurjón Ingvarsson
skipstjóri og bæjarfullrúi
í Neskaupstað
Sigurborg Sigurjónsdóttir
skrifstofumaður á Akranesi og
í Reykjavík
Margrét Guðmundína
Finnsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Ingvar Pálmason
útgerðarmaður í Neskaupstað
og alþingismaður
Ágústa Sigfúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sighvatur Bjarnason
bankastjóri Íslandsbanka
Ásta Sighvatsdóttir
vefnaðarkennari á Akranesi
Karl Helgason
símstöðvarstjóri á Akranesi
Ingibjörg Friðriksdóttir
húsfreyja í Gautsdal
Helgi Helgason
bóndi í Gautsdal í Geiradal, A-Barð.
Ætt Sigurjóns Sighvatssonar
Sighvatur Karlsson
matreiðslumaður á Akranesi
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022
„MEST AF FJÁRFRAMLÖGUNUM FÓR
BARA Í AÐ REYNA AÐ HALDA OKKUR Á
FLOTI.“
„HVERJAR ERU LÍKURNAR Á AÐ ÉG SLEPPI
FYRR VEGNA GÓÐRAR HEGÐUNAR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... oft jafnrómantísk og
atriði í kvikmynd.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÆTTA!
EINMITT
ÞJÓNN, MÆTTUM VIÐ FÁ BOX
UNDIR LEIFARNAR? SJÁLFSAGT,
HERRA
ÚTGJÖLD
Ingólfur Ómar sendi mér póst:
„Halldór, datt í hug að lauma að
þér í gamni einni laufléttri vísu sem
mér finnst passa ágætlega við þeg-
ar nóttin er björt og ung“:
Vekur glæta vonarbál
vakað gætum saman.
Eykur kæti öls við skál
einnar nætur gaman.
Ólafur Stefánsson skrifar á
Boðnarmjöð: „Er að lesa fræga bók,
Sapiens, mannkynssögu í stuttu
máli (500 síður). Þar er t.d. fjallað
um tvíhyggju innan kristni og fleiri
trúarbragða, þar sem tilvist hins
illa er haldið fram og það sé „hold-
ið“ sem er skaðvaldurinn en andinn
sé Guðs. Dálítið loðið en mætti
hugsa sér svona“:
Í heimsins solli er holdið veikt,
helgarnar útsettar stuði.
Hjá Kölska verður svo kjöt okkar steikt,
en kúrir þá andinn hjá Guði.
Enn skrifaði Ólafur og nú á
sunnudag: „Það var ekki mikið um-
stangið með hvítasunnuna, hvorki í
útvarpinu né annars staðar. Ekki
einu sinni talað um ferðahelgi.
Kirkjan var þó stofnuð á hvíta-
sunnudag, en það er svo langt síð-
an. Svo kom sjómannadagurinn og
þá hrúgast inn heillaóskir og heið-
urskveðjur og fjálglegt hjal um
hetjur hafsins. – P.s. fiskur er tákn
kirkjunnar“:
Hvítasunnan hljóðlát kom og fór,
heiðruð lítt á Boðnarmiði snjöllum,
en sjómennina skáldin skjalla í kór,
og skeytum rignir til dýrðar þessum
köllum.
Höskuldur Búi Jónsson svaraði:
Sjómennina sumir þekkja vel,
og sýna það í ljóði og í verkum.
En himnafaðir horfinn er úr skel
og heldur gegnsær birtist aðeins klerkum.
Tryggvi Jónsson óskar sjómönn-
um til hamingju með daginn. – „Þar
sem ég hef bæði migið í saltan sjó
og ælt nánast úr mér innyflunum í
tæplega tvö ár til sjós, tel ég mig
hafa tilheyrt stétt sjómanna en ég
verð seint talinn tilheyra þeim hópi
sem kenndur er við hetjur hafsins“:
Á hafinu með síkátum sjómannspungum
sárþjáður ældi ég lifur og lungum.
Þá bað ég hann guð að gleyma mér ekki.
grænn í framan, í brælu uppá dekki.
Davíð Hjálmar Haraldsson orti í
tilefni dagsins:
Vetrarlangt forðum þá var ég á sjó.
Vogmeri, hrognkelsi, styrju,
fuðryskil, bláháf og flundru ég dró
og forsetalega ég ældi og spjó.
„Fuðryskill“ er fiskur af mar-
hnútaætt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vonarbál en veikt er holdið