Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 23

Morgunblaðið - 15.06.2022, Síða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 _ Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Darwin Núnez er orðinn leikmaður Liv- erpool. Hann kemur til félagsins frá Benfica í Portúgal. Liverpool greiðir portúgalska félaginu 85 milljónir punda fyrir Núnez, sem er fyrir vikið dýrasti leikmaðurinn í sögu enska félagsins. Núnez er 22 ára sóknarmaður. Hann skoraði tvö mörk fyrir Benfica gegn Liv- erpool í átta liða úrslitum Meist- aradeildarinnar og hefur gert 32 mörk í 57 deildarleikjum með portúgalska lið- inu. _ Suðurkóreski knattspyrnumaðurinn Jewook Woo hefur yfirgefið herbúðir Þórs á Akureyri en hann kom til félags- ins fyrir þessa leiktíð. Sóknarmaðurinn skoraði eitt mark í fimm leikjum með Þór í Lengjudeildinni í sumar. _ Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert eins árs samning við Danann Theis Koch Søndergård. Hann er tvítugur og kemur til félagsins frá Álaborg í heima- landinu. Róbert Gunnarsson, þjálfari Gróttu, þekkir danska handboltann vel því hann lék með og þjálfari Aarhus í áraraðir. _ Svíinn Daniel Ståhl, lærisveinn Vé- steins Hafsteinssonar, varð í gær fyrstur kringlukastara til að þeyta kringlunni yfir 70 metra á þessu ári. Ståhl, sem keppti á Selfoss Classic í lok maí, kastaði 70,62 metra í fyrsta kasti á móti í Åbo í gær. Það er aðeins tæpum metra frá sænska metinu sem hann á sjálfur, 71,86 metrar, en hann er með þeim árangri fjórði besti kringlukastari sögunnar. _ Handknattleiksdeild FH hefur samið við Arnar Stein Arnarsson, efnilegan hornamann, til þriggja ára. Arnar spil- aði áður með Víkingum. Arnar Steinn, sem á að baki leiki með yngri lands- liðum Íslands, skoraði 36 mörk í 20 leikjum með Víkingi í úrvalsdeildinni í fyrra en það dugði ekki þar sem Vík- ingur féll. _ Noregur og Ítalía tryggðu sér í gær- kvöldi sæti á lokamóti EM karla í fót- bolta landsliða sem skipuð eru leik- mönnum 21 árs og yngri. Mótið fer fram í Rúmeníu og Georgíu á næsta ári. Ítalía tryggði sér efsta sæti F-riðils með 4:1-heimasigri á Írlandi. Þá tryggði Nor- egur sér toppsæti A-riðils með 2:1-sigri á Aserbaídsjan á heimavelli. Sviss er einnig komið á EM. Sviss end- aði í öðru sæti E-riðils en fer áfram með því að vera með bestan árangur þeirra liða sem enduðu í öðru sæti. Ísland tryggði sér á laugardag sæti í umspili. Þar getur liðið mætt Ísrael, Ír- landi, Slóvakíu, Tékklandi, Króatíu, Danmörku eða Úkraínu. Þjóðirnar sem dregnar verða saman leika heima og að heiman um sæti á lokamótinu. _ Portúgalski miðherjinn La- vina Da Silva hef- ur framlengt samning sinn við körfuknattleiks- deild Njarðvíkur um eitt ár. Hún átti sinn þátt í að Njarðvík varð óvænt Íslands- meistari á síðustu leiktíð og skoraði 13 stig og tók níu fráköst að meðaltali í leik. Eitt ogannað Hlín Eiríksdóttir er orðin fjórða markahæsta konan í sænsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu eftir að hún skoraði tvö marka Piteå í 3:0- sigri á Djurgården í fyrrinótt. Fyrsta markið var til að byrja með skráð á Hlín en síðan sem sjálfs- mark. Leikið var í miðnætursól í Norður-Svíþjóð og leiknum lauk um klukkan eitt um nóttina. Hlín hefur nú skorað sjö mörk í fjórtán leikjum Piteå í deildinni, fjórum minna en Amalie Vangsgaard sem er markahæst með ellefu mörk fyr- ir Linköping. Fjórða marka- hæst í deildinni Ljósmynd/Piteå Best Hlín Eiríksdóttir var heiðruð sem maður leiksins í leikslok. Golden State Warriors stendur vel að vígi í einvíginu við Boston Celt- ics um NBA-meistaratitilinn í körfubolta eftir sigur í fimmta leiknum, 104:94, í San Francisco í fyrrinótt. Sjötti leikurinn fer fram í Boston í kvöld og staðan er 3:2 fyrir Golden State sem getur því tryggt sér meistaratitilinn. Andrew Wigg- ins var maðurinn á bak við sigurinn en hann skoraði 26 stig fyrir Gold- en State og tók 13 fráköst ásamt því að vera lykilmaður í varnar- leiknum. Jayson Tatum skoraði 27 stig fyrir Boston. Golden State í góðri stöðu AFP/Ezra Shaw Góður Andrew Wiggins var mað- urinn á bakvið sigur Golden State. FIMLEIKAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Fimleikakappinn Valgarð Rein- hardsson úr Gerplu varð um síðustu helgi fjórfaldur Íslandsmeistari á Ís- landsmótinu í áhaldafimleikum, sem fór fram í Versölum, heimavelli Gerplu. Hann varð þá Íslandsmeist- ari í fjölþraut í sjötta sinn á ferlinum og reyndist sömuleiðis hlutskarp- astur á þremur einstökum áhöldum; í gólfæfingum, stökki og á svifrá. „Það er bara geggjuð tilfinning, þetta hefði eiginlega ekki getað farið betur. Undirbúningurinn fyrir mótið var búinn að ganga mjög vel, við fengum tvö mót fyrir Íslandsmótið. Fyrsta mótið var með smá mistök- um hér og þar. Á næsta móti var að- eins minna um þau og núna um helgina var eiginlega ekki neitt sem fór úrskeiðis þannig að það var geggjað,“ sagði hinn 25 ára gamli Valgarð í samtali við Morgunblaðið. Hann keppti í þremur greinum til viðbótar og komst einnig á verð- launapall í þeim öllum. Varð Valgarð annar á tvíslá og hringjum og þriðji á bogahesti. Hefði hann viljað krækja í fleiri gull? „Maður vill nátt- úrlega alltaf fá meira en það að ná á pall á öllum áhöldum fannst mér allavega hrikalega flott og sýnir bara hversu sterkur ég er á öllu, ekki bara á einu eða tveimur áhöld- um. Ég er bara svipað góður á öllum áhöldum þó að sum séu auðvitað að- eins betri en hin. Ég er að byggja mig upp á öllu. Ég gerði aðeins erf- iðari rútínu, til dæmis á bogahesti, sem er svona mín slakasta grein. Ég bætti aðeins í erfiðleikana í úrslit- unum og það gekk upp. Maður er aðeins að prufa sig áfram, hvað virkar og hvað gefur góðar einkunnir. Það er fínt að fá að keppa á nokkrum mótum áður en Norðurlandamótið og Evrópumótið hefjast og sjá hvaða seríur eru að fara að gefa manni hæstu stigin,“ svaraði Valgarð. Hefði getað verið verra Í maí á síðasta ári, þegar Valgarð var við keppni á Evrópumótinu í Basel í Sviss, fótbrotnaði hann við lendingu á slá. Eins undarlega og það kann að hljóma reyndist fót- brotið lán í óláni enda auðnaðist Val- garði að gera það allra besta úr að- stæðunum. „Ég braut á mér sköflunginn og sleit tvö eða þrjú liðbönd í ökklanum á sama tíma. Ég gat ekki staðið í tvo mánuði, ég mátti ekki láta neinn þunga á fótinn. Á þeim tíma eyddi ég bara tveimur mánuðum í að gera eins miklar þrekæfingar og ég hugs- anlega gat og borðaði eins mikið og ég gat. Svo varð ég bara mun sterk- ari fyrir vikið, kom eiginlega miklu sterkari úr þessu en ég var fyrir. Það er svolítið mikið af meiðslum í þessari íþrótt og maður reynir alltaf að taka eitthvað jákvætt úr þessu. Ég lenti í hásinarmeiðslum 2016 og var eiginlega alltaf smá tæpur í hásininni. Það var eiginlega ekki fyrr en ég fótbrotnaði sem ég náði alveg fullri endurheimt. Ég hef ekk- ert fundið í hásininni síðan þá þann- ig að ég hugsa alltaf um þetta þannig að ef ég hefði ekki fótbrotnað þá hefði ég hugsanlega slitið hásin, sem hefði kannski getað verið verra. Ég reyni alltaf að hugsa að það sé ein- hver ástæða á bak við þessi meiðsli, að þau komi í veg fyrir eitthvað verra,“ útskýrði hann. Gat loks hvílt fæturna Í meiðslunum afréð Valgarð að styrkja efri hluta líkamans sem mest hann gat. „Ég reyni alltaf að vera með jákvætt hugarfar þegar kemur að einhverju svona. Þótt þú meiðist í fótunum þá er efri líkaminn góður og þá reyni ég að nýta þann tíma í hann. Þetta eru náttúrlega sex áhöld, það eru bara tvö þar sem þú þarft að nota fæturna. Því eyddi ég bara meiri tíma í hin fjögur áhöldin og er að græða á því núna. Ég fékk aldrei hvíld fyrir fæt- urna en þarna fékk ég tvo mánuði þar sem ég mátti ekki stíga í fótinn. Þetta var á sama fæti og ég var með níu millimetra rifu á hásininni 2016, hún fór ekki alveg en var tæp á því,“ sagði hann. Spurður hvort hann væri nú kom- inn í sitt allra besta form sagði Val- garð: „Ég myndi halda það. Ég var vanur að fara frekar reglulega til sjúkraþjálfara en ég er búinn að vera í líkamlega besta formi sem ég hef verið í, allavega í mjög langan tíma. Ég hef eiginlega ekki neitt þurft að fara til sjúkraþjálfara á þessu ári og er búinn að vera á mjög góðum stað bæði andlega og lík- amlega.“ Gott að vera á heimavelli á NM Líkt og hann hafði orð á eru næstu mót fram undan hjá Valgarði Norðurlandamótið, sem fer fram í Versölum hér á landi í upphafi næsta mánaðar, og svo Evrópumótið, sem fer fram í München í Þýskalandi um miðjan ágúst. „Norðurlandamótið er á Íslandi eftir þrjár vikur og verður í Gerplu. Það er geggjað að fá tvö mót í röð þar sem við erum að keppa í Gerplu og venjast áhöldunum og uppsetn- ingunni. Við æfum í Gerplu og fáum að vera á þessum áhöldum þannig að við ættum að vera í mjög góðu formi. Það er alltaf smá öðruvísi að fara að keppa einhvers staðar annars staðar, að venjast áhöldunum þar sem þetta er alltaf eitthvað aðeins öðruvísi. Stundum eru öðruvísi teg- undir af áhöldum, það tekur oft einn eða tvo daga að venjast því en núna komum við inn í flottum gír,“ sagði hann. Stefnir á Ólympíuleikana Þrátt fyrir ungan aldur býr Val- garð yfir mikilli reynslu enda marg- sinnis verið valinn fimleikamaður ársins hjá Fimleikasambandi Ís- lands, margsinnis orðið Íslands- meistari og tekið þátt í fjölda al- þjóðlegra móta, þar á meðal heimsmeistara- og Evrópumótum. Framtíðarmarkmið Valgarðs er hins vegar að tryggja sér sæti á Ól- ympíuleikunum í París eftir tvö ár. „Stefnan er sett á París 2024. Maður reynir bara eins og maður getur að komast þangað. Maður gefur alveg 150 prósent í þetta. Ég var að fá styrk frá ÍSÍ, ólymp- íustyrkinn hjá þeim, sem mun hjálpa mér mjög mikið þar sem hann gerir mér kleift að einbeita mér meira að fimleikunum. Þetta er allt að smella núna. Vonandi heldur það áfram og skilar sér í góðum úrslitum á næst- unni,“ sagði hann að lokum í samtali við Morgunblaðið. Jafnaði sig á fótbroti og hefur aldrei verið sterkari - Valgarð fjórfaldur Íslandsmeistari - Stefnan sett á Ólympíuleikana í París Ljósmynd/Auður Sigbergsdóttir Íslandsmeistari Valgarð Reinharðsson leikur listir sínar á svifránni á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum í Versölum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.