Morgunblaðið - 17.06.2022, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 7. J Ú N Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 140. tölublað . 110. árgangur .
RANNSAKA
SAMFÉLAG
OG SÁLARLÍF KEPPTI ÁTTATÍU VETRA
FETAÐI Í
FÓTSPOR FÖÐUR
SÍNS Í ÞÝSKALANDI
REYKJAVÍKURMEISTARAMÓT FÁKS 10 GÍSLI ÞORGEIR 27LEIKÁRIÐ GERT UPP 28
Viðsjár eru í sjávarútvegi vegna ráð-
gjafar Hafrannsóknastofnunar, þar
sem gert er ráð fyrir að aflamark í
þorski á næsta fiskveiðiári verði
skert um 6% og um 20% í kvóta.
„Áfallið er mikið og allar forsend-
ur í okkar rekstri og starfsemi eru
breyttar. Ég tel ráðgjöf Hafró held-
ur ekki raunhæfa, enda byggð frem-
ur á kennisetningum en jafn ítarleg-
um rannsóknum og þyrfti,“ segir
Guðmundur Smári Guðmundsson,
framkvæmdastjóri G.Run í Grund-
arfirði, í samtali við Morgunblaðið.
Ráðgjöf og tillögur nú telur Smári
raunar sýna að uppbygging á þorsk-
stofninum, sem verið hefur áherslu-
mál í stjórnmálum og hafrannsókn-
um, hafi mistekist.
Nýtt fiskvinnsluhús G.Run í
Grundarfirði var tekið í notkun árið
2019 og miðað við full afköst geta þar
farið í gegn um 6.300 tonn af fiski ár-
lega. Framleiðsl-
an í dag nær því
að vísu ekki og
vinnslan liggur
niðri í um tvo
mánuði á ári yfir
hásumarið. Nú
telur Smári lík-
legt að lengja
verði tímann sem
lokað er í þrjá
mánuði og hugs-
anlega fækka starfsfólki. Hugsan-
legt sé að aðeins verði unnin um
4.500 tonn á ári í húsinu nýja. Nú sé
raunar svo komið að endurskoða
þurfi forsendur í rekstri G.Run. Þær
hafi miðast við að heimildir til veiða á
þorski og karfa, sem fyrirtækið hef-
ur mikið byggt á, héldust óbreyttar
frá því sem verið hefur. Bygging nýs
fiskvinnsluhúss og skipakaup á síð-
ustu árum hafi miðast við slíkt. »4
Lengra stopp og
færra starfsfólk
- Ráðgjöf Hafró vekur sterk viðbrögð
Guðmundur Smári
Guðmundsson
Landsmenn, ungir sem aldnir, fagna 78 ára afmæli lýðveldis-
ins í dag. Fjölbreytt hátíðardagskrá er um allt land og mikið
um dýrðir, veðurspáin þó misgóð. Krakkarnir í leikskólanum
Blásölum í Reykjavík tóku forskot á sæluna í gær, fengu and-
litsmálun og fána og horfa hér á trúð skemmta, sem kom í
heimsókn í skólann. Gleði og undrun í senn. »8, 10-11, 14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilega
þjóðhátíð!
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
„Við erum afskaplega glöð að sjá öfl-
ugt framtak íslenskra stjórnvalda til
að styrkja kvikmyndaiðnaðinn á Ís-
landi með ýmsum hætti undir for-
ystu Lilju Alfreðsdóttur, viðskipta-
og menningarmálaráðherra,“ segir í
yfirlýsingu Jay Roewe, aðstoðarfor-
stjóra HBO og HBO Max, til Morg-
unblaðsins, þegar óskað var eftir
viðbrögðum hans við breytingum á
lögum um tímabundar endur-
greiðslur vegna kvikmyndagerðar á
Íslandi. Nú verða allt að þrjátíu og
fimm prósent framleiðslukostnaðar
endurgreidd fyrri stærri verkefni.
Hafi fjárfest í iðnaðinum
Jay Roewe, sem annast fram-
leiðsluþróun félagsins, segir enn
fremur að Ísland hafi á undanförn-
um árum fjárfest umtalsvert í um-
gjörð kvikmyndaiðnaðarins, bæði í
mannauði og framleiðsluaðstöðu.
„Við gerum ráð fyrir að að þessi
lagabreyting muni auka aðdráttarafl
Íslands sem tökustaðar til muna,“
bætir hann við. Frumvarp menning-
armálaráðherra um hærri endur-
greiðslur var samþykkt rétt fyrir
þinglok, aðfaranótt fimmtudags.
Leifur Björn Dagfinnsson, eig-
andi og framkvæmdastjóri True
North, segir lagabreytinguna þegar
vera farna að hafa áhrif og margir
áhugasamir úr kvikmyndaiðn-
aðinum hafi sett sig í samband við
hann í gær, daginn eftir lagabreyt-
inguna.
Hann segir fjögur stór verkefni
vera á teikniborðinu hjá True North.
Skoðað er í fullri alvöru að taka
verkefnin upp í heild sinni hér á
landi og segir Leifur Björn að um sé
að ræða verkefni af stærðargráðu
sem ekki hafi áður sést í kvikmynda-
iðnaði hér á landi.
HBO fagna auknum
stuðningi stjórnvalda
- Lagabreytingar muni auka aðdráttarafl Íslands til muna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jökulsárlón Íslensk náttúra hefur
verið vinsæl í kvikmyndaiðnaðinum.
MFjögur stór verkefni … »2