Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 Garðatorg 6 | sími 551 5021 | vefverslun | aprilskor.is Ný sending frá Opið í dag frá 12-16 13.990 kr. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég var á hesti sem ég hef átt í mörg ár. Ég var búinn að ákveða að ef okkur gengi vel, næðum tíma til að komast á landsmótið á Hellu, þá yrði það endirinn á mínum landsmóts- ferli,“ segir Erling Ó. Sigurðsson hestamaður. Hann keppti á Hnikari frá Ytra-Dalsgerði í 150 metra skeiði á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks í fyrrakvöld með það að markmiði að ná lágmarkstíma fyrir landsmótið en það tókst ekki. Erling var þó ánægður með kvöld- ið. Sagði að hesturinn hefði legið í skeiðinu í báðum sprettum. Hins vegar væri hesturinn búinn að glíma við helti sem hann hélt að hann væri búinn að ná sér af en það hefði háð honum. Hann hefði ekki haft þann kraft sem hann er vanur en þeir hafa náð í marga titla saman. „Ég er hálf- spældur, er alltaf mikill keppnis- maður, en get ekki kvartað. Hest- urinn er 23 vetra og ég er að verða 80 vetra,“ segir Erling en hann verð- ur sem sagt áttræður í næsta mán- uði. Fyrst svona fór segist hann verða í brekkunni á landsmótinu. Hann segist þó halda áfram að keppa, enda enn kornungur. Stærsta hestamannamótið Rúmlega 900 skráningur eru í Reykjavíkurmeistaramótið og á bak við þær eru um 400 knapar. Þetta er langstærsta hestamót sem hér er haldið í ár, og þótt víðar væri leitað. Hilda Karen Garðarsdóttir móts- stjóri segir að mótið hafi gengið mjög vel, ekki hafi komið til neinna alvarlegra seinkana á dagskrá. Hún segir að undirbúningur og fram- kvæmd jafn stórs móts krefjist mik- ils skipulags og reynslu og segir að Fákur búi yfir fjölda fólks sem kunni þetta. Veðrið hefur ekki sett alvarlegt strik í reikninginn þótt vissulega hafi verið skúrir og nokkur vindur. Segir Hildur að knaparnir séu öllu vanir, séu úti alla daga ársins. Í gær var fjórði dagur mótsins en því lýkur á sunnudag. Eins og á öðr- um hestamannamótum eykst spenn- an eftir því sem líður á enda úrslit í helstu greinum síðustu dagana. Verðlaun á fyrsta mótinu Erling er gamalreyndur knapi og hrossaræktandi. Hann segist hafa byrjað fimm ára, setið þá hest fyrir föður sinn, Sigurð Ólafsson, söngv- ara og hestamann, á landbúnaðar- sýningu í Reykjavík. Hann segist hafa byrjað að keppa á hestamótum og verið að keppa eða sýna á flestum lands- og fjórðungsmótum frá árinu 1958. Á fyrsta landsmótinu hans sem haldið var á Skógarhólum á Þing- völlum náði Erling þeim árangri að verða annar í stökki, aðeins sjónar- mun á eftir þeim sem vann. Í kappreiðunum var kostur að hafa létta knapa og hleypti Erling fyrir Ólaf Þórarinsson, þekkta kempu í hestamennskunni. Veitt voru peningaverðlaun eins og þá tíðkuðust og Ólafur sagði honum að hesturinn fengi einn þriðja, eigand- inn einn þriðja og knapinn einn þriðja. Þar fékk hann því sín fyrstu laun fyrir hestamennsku. Á bak við þau var ekki aðeins að taka þátt í kappreiðunum því hann reið hest- inum frá Hólmi fyrir ofan Reykjavík til Þingvalla fyrir mótið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Víðidalur Keppt er fram á kvöld á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks og gengur vel. Knaparnir láta veðrið ekki á sig fá. Keppti 80 vetra á 23 vetra gömlum hesti - Reykjavíkurmeistaramót gengur vel - Lýkur á sunnudag Skeið Hnikar frá Ytra-Dalsgerði lá hjá Erling Sigurðssyni en báðir sprettir Ylfu frá Miðengi misheppnuðust hjá Sigríði Ingibjörgu Einarsdóttur. Hitað upp hjá ungu kynslóðinni Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ísafjörður Stemning var í miðbænumí gær er krakkar úr leikskólum Ísa- fjarðarbæjar sameinuðust ásamt starfsmönnum í mikilli sólskinsgöngu. Sautjándi júní er jafnan gleðidagur hjá krökkunum sem erfa landið. Skemmtanir, blöðrur, kandífloss og ís komast aftur á dagskrá eftir samkomubann síðustu tveggja ára. Í mörgum leikskólum landsins var tekið forskot á sæluna í gær með dagskrá í anda 17. júní. Morgunblaðið/Hákon Reykjavík Líf og fjör var á skólalóðinni í leikskólanum Bakkaborg í gær. Morgunblaðið/Hákon Kópavogur Krakkar í leikskólanum Kór í Kópavogi gátu farið á hestbak í gær og var það mjög vinsælt, einkum meðal krakkanna í eldri deildinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.