Morgunblaðið - 17.06.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022
_ Norður-írski kylfingurinn Rory
McIlroy var stærsta nafnið af þeim
köppum sem voru í efstu sætum á
Opna bandaríska mótinu í golfi þegar
Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöld.
Þá voru sumir kylfingar búnir með
fyrsta hringinn en margir áttu enn eft-
ir að ljúka honum. McIlroy lék hringinn
á 67 höggum, þremur undir pari vall-
arins, og var einn margra sem deildu
forystusætunum á þeim tímapunkti.
Meðal þeirra sem voru jafnir honum
var Callum Tarren, lítt þekktur Eng-
lendingur, sem var einn af fimm sem
höfðu þá leikið á 67 höggum.
_ Heimaleikjum Breiðabliks og UE
Santa Coloma frá Andorra í fyrstu um-
ferð Sambandsdeildar karla í fótbolta
hefur verið víxlað. Fyrri leikurinn verð-
ur í Andorra fimmtudaginn 7. júlí og sá
seinni á Kópavogsvelli fimmtudaginn
14. júlí. KR-ingar leika á þessum sömu
dögum við Pogon Szczecin frá Pól-
landi, úti 7. júlí og heima 14. júlí.
_ Aron Bergsson er einn þriggja kylf-
inga sem deila efsta sætinu á Junet
Open golfmótinu sem hófst í gær í
Jönköping í Svíþjóð og er liður í Nordic
Golf-mótaröðinni. Aron og Svíarnir
Jesper Hagborg og Stefan Idstam
léku allir á 66 höggum, sex höggum
undir pari vallarins. Þeir eru tveimur
höggum á undan fjórða manni. Axel
Bóasson er í miðjum hópi 156 kepp-
enda en hann lék hringinn á 74 högg-
um, tveimur yfir pari vallarins.
_ Englandsmeistarar Manchester
City hefja titilvörnina á útileik gegn
West Ham en niðurröðun ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu var birt
í gær. Liverpool sækir heim nýliða Ful-
ham, Manchester United fær Brighton
í heimsókn á Old Trafford, Everton
mætir Chelsea og Crystal Palace leik-
ur við Arsenal, svo helstu leikir séu
taldir upp. Fyrsti leikur deildarinnar á
að vera leikur Palace og Chelsea
föstudagskvöldið 5. ágúst.
_ Handknattleikskonan Berglind
Benediktsdóttir hefur komist að sam-
komulagi við handknattleiksdeild
Hauka um að leika áfram með kvenna-
liðinu næstu tvö tímabil.
Berglind, sem er 23 ára gömul, kom til
Hauka frá Fram fyrir þremur árum síð-
an og hefur á þeim árum verið einn af
lykilmönnum kvennaliðsins.
_ Handknattleiksmaðurinn Þráinn
Orri Jónsson hefur framlengt samning
sinn við Hauka og verður í röðum fé-
lagsins næstu tvö árin. Þráinn, sem er
28 ára gamall línumaður, var að ljúka
sínu öðru tímabili með Haukum eftir
þrjú ár í Noregi og Danmörku. Hann
sleit krossband í hné í landsleik í jan-
úar og hefur því
ekki spilað frá
þeim tíma.
Hann lék þrjá
fyrstu A-
landsleiki sína
á EM í
Búda-
pest í
janúar.
Eitt
ogannað
KNATTSPYRNA
2. deild karla:
Húsavík: Völsungur – Njarðvík ............... 16
Í DAG!
ÞÝSKALAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ég er hrikalega sáttur. Þetta gekk
nokkurn veginn smurt allt tímabilið
hvað varðar skrokkinn hjá mér og
hvernig liðinu gekk,“ sagði Gísli Þor-
geir Kristjánsson, landsliðsmaður í
handbolta, í samtali við Morgun-
blaðið.
Gísli var í stóru hlutverki hjá
Magdeburg á nýliðnu tímabili er lið-
ið varð þýskur meistari í fyrsta
skipti frá árinu 2001. Magdeburg
tapaði aðeins tveimur leikjum af 34 í
deildinni á leiktíðinni.
Hann fetaði með þessu í fótspor
föður síns, Kristjáns Arasonar, sem
varð þýskur meistari með Gummers-
bach árið 1988.
Bilað álag og erfitt
„Við héldum alltaf haus og það var
karakter í liðinu að halda alltaf
áfram. Við vorum alltaf með mark-
miðin fyrir framan okkur, þrátt fyrir
að við værum stundum að spila 3-4
leiki á átta dögum. Það kom tímabil
þar sem þetta var bilað álag og þetta
var mjög erfitt á köflum en ég er
hrikalega stoltur af því hvernig þetta
fór,“ sagði Hafnfirðingurinn.
Magdeburg lék mjög þétt á leiktíð-
inni þar sem liðið fór í úrslit þýska
bikarsins og Evrópudeildarinnar. Þá
varð liðið heimsmeistari félagsliða.
Alls lék Magdeburg 59 leiki í öllum
keppnum. Gísli hefur mikið glímt við
meiðsli í öxl, en hann stóðst álagið og
gott betur.
„Þetta er fyrsta tímabilið síðan ég
var í FH sem ég næ að spila heilt
tímabil meiðslalaus, sem gerir þetta
tímabil geggjað. Öll tímabilin úti til
þessa hafa litast að því að ég hef
þurft að fara í axlaraðgerð eða eitt-
hvað slíkt. Á þessu tímabili spilaði ég
mjög mikið og spilaði alla leiki eftir
áramót. Fyrir áramót spilaði ég alla
leiki og allar mínútur. Þetta var
hrikalega gaman og ég er mjög stolt-
ur af því hvernig mér gekk á tíma-
bilinu. Það er hægt að segja að þetta
hafi verið mitt besta tímabil,“ sagði
hann.
Magdeburg hafnaði í þriðja sæti
deildarinnar á síðustu leiktíð og fékk
þá 53 stig, ellefu stigum minna en á
þessari leiktíð.
„Breiddin var meiri í ár. Við feng-
um nokkra leikmenn sem gáfu okkur
svakalega mikið, t.d. Magnus Saug-
strup sem kom virkilega flottur inn.
Við fórum með sautján leikmenn inn
í tímabilið, vitandi að það eru alltaf
sextán leikmenn í hópi, því það er
klárt að það dettur alltaf einhver
meiddur út á svona löngu og ströngu
tímabili. Við erum með landsliðs-
menn í hverri einustu stöðu og allir
voru á sömu blaðsíðu og þekktu sín
hlutverk vel. Við náðum að nýta tím-
ann svakalega vel,“ sagði Gísli.
Á meðal bestu leikmanna heims
Íslenski landsliðsmaðurinn segir
leikmenn liðsins hafa sýnt og sannað
með nýliðnu tímabili að þeir séu
orðnir á meðal bestu leikmanna
heims, enda skákaði Magdeburg
öðrum gríðarlega sterkum liðum í
þýsku 1. deildinni og vann hana með
sannfærandi hætti.
„Það eru leikmenn í Kiel og Flens-
burg sem hafa fyrir löngu sannað sig
og verið lengi í bransanum. Kiel er
t.d. með [Niklas] Landin, [Domagoj]
Duvnjak og [Sander] Sagosen og
Flensburg með menn eins og Jim
Gottfridsson og Mads Mensah. Það
eru leikmenn sem hafa verið lengi í
þessu. Við höfum áttað okkur á því
að við erum ekkert síðri leikmenn. Á
þessu tímabili stimpluðum við okkur
inn sem eitt besta lið heims og á
meðal bestu leikmanna heims. Það
er helvíti vel gert og það segir allt
sem segja þarf að við misstum aðeins
fjögur stig yfir heilt tímabil í Bund-
esligunni. Við sem leikmenn og lið
erum á heimsvísu,“ sagði Gísli
ákveðinn.
Hjá Magdeburg leikur Gísli með
Ómari Inga Magnússyni. Ómar hef-
ur verið einn besti leikmaður heims
undanfarið og varð næstmarkahæst-
ur í deildinni með 237 mörk og í
þriðja sæti yfir flestar stoðsend-
ingar, 124. Gísli og Ómar ná vel sam-
an og nýta íslenskuna á vellinum.
„Það er gaman að spila með hon-
um. Við náum hrikalega vel saman.
Það er ákveðinn plús að geta talað
hvor við annan og aðrir skilja okkur
ekki. Við getum rætt smáatriðin í
miðjum leik. Hann er heimsklassa-
leikmaður og einn af þeim bestu í
heimi í dag,“ sagði Gísli um liðs-
félaga sinn.
Feta í fótspor Ólafs og Alfreðs
Mikill áhugi er fyrir handbolta í
Magdeburg en í borginni búa tæp-
lega 250.000 manns. Það var því mik-
ið fagnað þegar liðið varð þýskur
meistari í annað sinn. Fyrri meist-
aratitilinn kom árið 2001 þegar Al-
freð Gíslason stýrði liðinu og Ólafur
Stefánsson lék með því.
„Það voru tíu þúsund manns sem
fögnuðu okkur á torginu. Maður
trúði þessu varla þegar við keyrðum
í rútunni að torginu. Þá sá maður
hvað þetta var þýðingarmikið fyrir
bæinn og fólkið sem vinnur hjá
klúbbnum. Það var gaman að vera
hluti af liði sem komst í sögubækur
klúbbsins.“
Vegferðin verið skrautleg
Árangurinn er sérlega sætur fyrir
Gísla eftir allt sem á undan er geng-
ið. Hann hefur reglulega glímt við
meiðsli, allt frá því hann fór fyrst í
atvinnumennsku til Kiel frá FH árið
2018.
„Vegferðin er búin að vera skraut-
leg. Það hafa verið hæðir og lægðir í
þessu. Ég hef fjórum sinnum farið úr
axlarlið og farið í þrjár aðgerðir á
öxl. Ég er stoltur af því hvernig ég
glímdi við bakslag eftir bakslag. Ég
var með fólk sem stóð við bakið á
mér allan tímann og ég er hrikalega
þakklátur fyrir þann stuðning sem
ég fékk í þessu ferli.
Það er ómetanlegt að uppskera
núna eftir allt sem er búið að ganga
á. Að koma inn í þetta tímabil, vera
alveg heill og uppskera tvo titla af
fjórum. Við fórum svo í úrslit í bikar
og Evrópudeildinni og vorum grát-
lega nálægt því að vinna. Þetta tíma-
bil var frábært en við viljum halda
áfram. Við viljum verja titilinn og
taka næstu skref og ná næstu mark-
miðum.
Á næstu leiktíð er það Meistara-
deildin, þar sem stefnan er að fara
alla leið. Það sýnir hvert við erum
komnir sem lið og hversu stórir kar-
akterar eru í þessum hópi. Ég vil líka
þróast enn meira sem leikmaður,“
sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson.
Tíu þúsund
manns fögn-
uðu okkur
- Gísli þýskur meistari með Magde-
burg - Íslendingarnir ná vel saman
Ljósmynd/Magdeburg
Meistari Gísli Þorgeir Kristjánsson átti frábært tímabil með Magdeburg og
uppskar þýska meistaratitilinn með liðinu sem hafði talsverða yfirburði.
Keppnin í 1. deild karla í fótbolta
er orðin gríðarlega tvísýn eftir að
liðin sem voru efst fyrir leiki gær-
kvöldsins, Fylkir og Selfoss, töp-
uðu bæði. Nú skilja aðeins fjögur
stig að sjö efstu liðin í deildinni.
HK vann Fylki 1:0 í Árbænum,
þar sem sigurmarkið var sjálfs-
mark. HK fór með því upp fyrir
Árbæingana og í fjórða sætið.
Þetta var þriðji sigur Kópavogsl-
iðsins í röð en þarna mættust ein-
mitt liðin sem féllu úr úrvalsdeild-
inni síðasta haust.
Kórdrengir sigruðu Selfoss, 4:3,
í Safamýri og Selfyssingar töpuðu
sínum fyrsta leik en halda þó efsta
sætinu. Sverrir Páll Hjaltested
skoraði tvö marka Kórdrengja,
Arnleifur Hjörleifsson og Þórir
Rafn Þórisson eitt hvor en Hrvoje
Tokic skoraði tvö mörk fyrir Sel-
foss og Gonzalo Zamorano eitt.
Grótta komst í annað sætið með
1:0 sigri gegn Þór á Akureyri.
Kjartan Kári Halldórsson skoraði
sigurmarkið og Seltirningar eiga
leik til góða á topplið Selfyssinga.
Grindavík er eina ósigraða lið
deildarinnar og komst í þriðja
sætið með 2:1 heimasigri á KV.
Dagur Ingi Hammer og Símon
Logi Thasapong skoruðu fyrir
Grindvíkinga en Einar Már Þór-
isson minnkaði muninn fyrir KV.
Afturelding vann sinn fyrsta
leik og lagði botnlið Þróttar í Vog-
um á útivelli, 1:0. Kári Steinn Hlíf-
arsson skoraði sigurmark Mosfell-
inga.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Árbærinn HK-ingurinn Örvar Eggertsson sækir að marki Fylkismanna en
hann átti stóran þátt í sigurmarki HK-inga í gærkvöld.
Allt í hnút eftir
tap efstu liðanna
- HK og Kórdrengir unnu Fylki og Selfoss