Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022
ALMERÍA
11 DAGAR SAMAN Í SÓL
27. JÚNÍ - 07. JÚLÍ
NEPTUNO HOTEL 4*
TVÍBÝLI MEÐ MORGUNVERÐI
VERÐ FRÁ82.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN MEÐ AFSLÁTTARKÓÐA
VERÐ FRÁ 122.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA MEÐ KÓÐA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
ALLT AÐ
60.000 KR.
AFSLÁTTUR10.000 KR. AFSLÁTTURÁ FARÞEGA MEÐ KÓÐANUM
ALMERIA22GILDIR ÚT 20. JÚNÍÁ FERÐIR TIL ALMERÍA 27. JÚN. -05. JÚL.KÓÐI GILDIR ÚT 20. JÚNÍ
H
A
G
K
V
Æ
M
T
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Enn hefur ekki
verið skipað í tvö
embætti
aðstoðarlög-
reglustjóra sem
auglýst voru laus
til umsóknar í
febrúar. Lög-
reglustjórinn á
höfuðborgar-
svæðinu auglýsti annars vegar eftir
aðstoðarlögreglustjóra á ákæru-
sviði og hins vegar á löggæslusviði.
Umsóknarfrestur rann út 16. febr-
úar og var í kjölfarið skipuð ráðgef-
andi hæfisnefnd. Ráðningarferlinu
er þó enn ekki lokið, að sögn Fjal-
ars Sigurðarsonar, upplýsingafull-
trúa dómsmálaráðuneytisins. Segir
hann ekki vitað hvenær niðurstaða
um ráðningu í embættin muni
liggja fyrir. Alls sóttu sjö um emb-
ætti aðstoðarlögreglustjóra, tvö á
ákærusviði og fimm á löggæslu-
sviði. Halla Bergþóra Björnsdóttir
er lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu.
Sjö bíða svara um
ráðningu í embætti
Fjölmenni kom saman í nýja mið-
bænum á Selfossi í gær. Þar var
afhjúpuð stytta af Agli Gr. Thor-
arensen, fyrsta kaupfélagsstjóra
Kaupfélags Árnesinga.
Grímur Arnarson, barnabarn
Egils, sá um afhjúpunina ásamt
þeim Anitu Ósk Ægisdóttur,
Grími Erni Ægissyni, Elísabetu
Söru Ægisdóttur, Irenu Dröfn
Arnardóttur og Aldísi Orku Arn-
ardóttur, en þau eru nokkur af
barnabarnabarnabörnum Egils.
Lúðrasveit Selfoss spilaði við
athöfnina og Karlakór Selfoss
söng, ásamt Kristjáni Jóhanns-
syni óperusöngvara. Þá fluttu
þau Guðni Ágústsson, Fjóla Krist-
insdóttir, nýráðinn bæjarstjóri
Árborgar, og Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrverandi forseti Ís-
lands, ávörp.
Styttan af
Agli afhjúp-
uð á Selfossi
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
„Ég myndi segja að Ísland sé komið í
meistaradeildina þegar kemur að framleiðslu
kvikmynda,“ segir Leifur Björn Dagfinnsson,
eigandi og framkvæmdastjóri TrueNorth.
„Núna er Ísland orðið samkeppnishæft við
bestu löndin í aðstöðu fyrir kvikmyndagerð
vegna þess að hróður Íslands hefur vaxið gríð-
arlega undanfarið, sérstaklega er varðar
vinnuaðstöðu, vinnuafl, hæfileika og hæfni
fólks hér á landi.“
Leifur segir að með hækkuðum endur-
greiðslum til kvikmyndaiðnaðarins séu loksins
forsendur til þess að auka fjárfestingar í at-
vinnugeiranum og setja uppheilsárskvik-
myndaver á landinu.
Frumvarp Lilju Alfreðsdóttur, ferðamála-,
viðskipta- og menningarmálaráðherra, um
hækkun á endurgreiðslum á framleiðslukostn-
aði vegna kvikmyndagerðar hér á landi, upp í
þrjátíu og fimm prósent, var samþykkt á Al-
þingi aðfaranótt fimmtudags. Morgunblaðið
ræddi við Leif seint í gær, tæpum sólarhring
eftir að frumvarpið var samþykkt.
Ríkisstjórnin sýnt ótrúlegan kraft
„Það eru mikil tækifæri í að byggja undir
stúdíóaðstöðu á Íslandi, þannig að hægt sé að
mynda verkefni, hvort sem að það eru sjón-
varpsþáttaraðir eða kvikmyndir, í heild sinni á
Íslandi. Það þýðir, fyrir hagkerfið á Íslandi, að
í stað þess að einhver komi hingað í viku eða tíu
daga að mynda og eyði kannski í kringum 600
milljónum, þá erum við að horfa á allt að átta-
tíu til níutíu daga tökur. Það gæti skilið eftir
sig fimm til átta milljarða fjárfestingu í land-
inu. Það er stóri munurinn í þessu,“ segir Leif-
ur og útskýrir enn fremur að með aukinni end-
urgreiðslu upp á tíu prósent gætu verkefnin
tífaldast. „Þar af leiðandi sköpum við miklu
fleiri heilsársstörf, svo ekki sé minnst á öll af-
leiddu störfin sem þetta hefur í för með sér.“
Leifur segir fjögur stór verkefni vera á sínu
teikniborði, eins og staðan er núna. Þau koma
frá erlendum kvikmyndaverum sem hafa
áhuga á að taka upp á Íslandi í ljósi tíðindanna
af hækkuðu endurgreiðsluhlutfalli.
„Það hefur hjálpað gríðarlega að ríkis-
stjórnin, sem hefur sýnt ótrúlegan kraft og vel-
vilja, hafi klárað málið á vorþingi. Þannig verð-
ur hægt að koma með þessi verkefni, sem nú
eru á teikniborðinu hjá okkur, til Íslands strax
á þessu ári og hefja vinnuna.“
Leifur segir að lagasetningin hafi vakið
mikla athygli erlendis og þann sólarhring sem
liðið hefur frá samþykktinni á Alþingi, aðfara-
nótt fimmtudags, hafi síminn mikið hringt.
„Þetta hefur spurst út. Það eru heillaóskir og
mikill spenningur. Það eru allir sammála um
að þetta séu vatnaskil fyrir kvikmyndaiðn-
aðinn á Íslandi og má segja íslenskt hagkerfi.
[...] Bara í dag hafa margir áhugasamir hringt
og sent tölvupósta og hlerað þetta, hvort að
þetta sé satt og rétt og eru að hugsa til fram-
tíðarinnar um hvað Ísland hefur upp á að
bjóða. Í rauninni: hvenær er laust pláss fyrir
mig?“
Leifur metur lauslega að iðnaðurinn á Ís-
landi gæti sinnt um tveimur til þremur stórum
verkefnum í einu eins og staðan sé í dag. Hann
sér þó einnig fram á mikinn vöxt og að í fram-
tíðinni eigi að vera hægt að þjónusta allt að
fimm til átta stór verkefni á sama tíma.
„Gríðarlega stór flóra af ungu og hæfileika-
ríku fólki er að koma inn á markaðinn. Núna er
tækifærið til að efla þau og gefa þeim tækifæri
til að vaxa í sinni starfsgrein og koma meiri
ábyrgð á íslenskt vinnuafl.“
Fjögur stór verkefni á teikniborðinu
- Líklegt að tífalt stærri verkefni en áður verði að veruleika - 5 til 8 milljarðar inn í hagkerfið
Framkvæmdum, sem staðið hafa
yfir á Lækjargötu nú í um þrjú
ár, er nú að mestu lokið og gatan
opnuð á ný fyrir umferð í gær.
Vegfarendur gátu þá loksins
virt fyrir sér nýja og glæsilega
hótelbyggingu, sem risin er á
reitnum þar sem áður stóðu Iðn-
aðarbankahúsið og hús séra
Bjarna Jónssonar vígslubiskups
sem brann 1967.
Tekið verður við fyrstu gest-
unum á Hótel Reykjavík Saga nú
í sumar, í 130 herbergjum sem
eru fjölbreytt að lögun og stærð,
en það verður fjögurra stjörnu
hótel. Á jarðhæð opnar svo veit-
ingastaðurinn Fröken Reykjavík.
Morgunblaðið/Hákon
Lækjargata Hótelið er nú loksins sýnilegt vegfarendum.
Lækjargata laus úr
viðjum framkvæmda