Morgunblaðið - 17.06.2022, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 17.06.2022, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 Með bréfi til for- sætisráðuneytisins 2. júlí 2021 var vakin at- hygli á nýrri gerð mannvirkis sem ver línulega formaða inn- viði gagnvart aðflæð- andi hrauni með var- anlegum hætti. Hraunbrú/-stokkur flytur ekki bíla heldur fljótandi hraun, yfir vegi, lagnir og aðra línulega innviði á eldgosasvæðum. Hraunflæðinu er þá lyft á leið sinni niður hallann án þess að hindra það verulega. Eftir því sem meira er fjallað um varnargarða þeim mun skýrari verður hraunbrúin sem valkostur. Svo virðist sem hraunbrúin sé; eini valkosturinn sem tryggir öryggi innviða með varanlegum hætti í stærra eldgosi, eini valkosturinn sem hægt er að grípa til með mjög stuttum fyrirvara, eini valkost- urinn sem heldur innviðum opnum og aðgengilegum til viðhalds og viðgerða, jafnvel meðan á eldgosi stendur/hraun flæðir um sama svæði. Hún er jafnframt eini val- kosturinn sem óháður er því hvar og hve mikið hraun flæðir. Enn fremur ónáðar hraunbrú ekki land- eigendur né veldur óþarfa umhverfisraski, þar sem hún fer á land sem nú þegar hefur verið notað (inn- an helgunarsvæðis innviða). Hraunbrú er örugg lausn sem er óháð því hve mikið hraun flæðir, eins örugg og hver önnur brú eða jarðgöng sem við notum dags- daglega. Hraunbrúna má fjarlægja eftir á á svæðum sem ekki fara undir hraun og þannig endurheimta upp- haflega ásýnd lands. Þannig hent- ar hraunbrú sérstaklega vel til þess að verja heitavatnslagnir, ljósleiðara og háspennustrengi með afmörkuðum og öruggum hætti. Hraunbrú er manngengt mannvirki og varðir innviðir því öllum stundum aðgengilegir til við- gerða og viðhalds, jafnvel á meðan hraun flæðir. Hraunbrú myndi minnka óvissuna sem skapast hef- ur fyrir innviði vegna jarðhræring- anna á Reykjanesi og afmarka hana betur. Varnargarðar hafa vægi í litlu gosi með takmörkuðu hraunflæði og nýtast til að breyta stefnu hrauns sem flæðir. Í sumum að- stæðum má horfa á hraunbrú sem viðbót við varnir sem byggjast á varnargörðum. Hún leysir þó bet- ur óvissu sem bundin er varn- argörðum varðandi yfirflóð hrauns og það hvernig hraun getur á fáum vikum hækkað um tugi metra og gert varnargarða óvirka. Með hraunbrú má hraun flæða og hækka eins og það vill, á því svæði sem slík lausn er notuð, lagnir og vegir haldast óskemmdir. Innviðaráðherra viðraði áhyggj- ur sínar á mbl.is hinn 3. júní 2022 um staðsetningu varnargarða og hve langan tíma það tæki að byggja þá. Tek undir áhyggjur ráðherrans. Hraunbrú, hins vegar, verður aldrei á röngum stað né heldur röngum megin við mögu- legt hraunflóð. Hún ver þá innviði sem þarf að verja, þar sem þeir eru, með endanlegum hætti. Ef hraun fer aðra leið er hægt að fjarlægja hraunbrúna, setja í geymslu og hafa tilbúna fyrir næstu eldgosaógn og landið end- urheimtir fyrri ásýnd. Varnargarðar hafa sem fyrr seg- ir galla sem snúa að landeig- endum, sem vilja ekki að land þeirra fari undir mikil mannvirki sem mögulega ekki nýtast, og um- hverfismengun, því það stríðir gegn náttúruverndarsjónarmiðum að leggja land undir varnargarða sem virka kannski og kannski ekki. Þetta á sérstaklega við um svæði þar sem reiknað hafði verið með hrauni sem svo ekki kemur, þá standa eftir varnargarðar sem aldrei nýttust. Það er hægt að ráðast í gerð hraunbrúar til varnar innviðum á eldgosasvæðum með skömmum fyrirvara, með réttum undirbún- ingi, jafnvel örfárra daga fyrirvara og allt niður í einn dag. Í grein sem birtist í Morgunblaðinu 24. júlí 2021 var farið yfir meginþætti í hönnun hraunbrúarinnar. Útfærsla hraunbrúarinnar er háð undirbúningi, s.s. gæðum for- rannsókna, gagna og fjárfesting- arvilja ríkisvaldsins. Því betur sem fjárfest er í undirbúningi, þeim mun hagkvæmari verður lausnin þegar til kastanna kemur, því áskorunin hverfist að miklu leyti um „strategíu“. Enginn vill byggja mannvirki þar sem aldrei flæðir hraun, en komi það upp er gott að geta fjarlægt mannvirkið, geymt og endurnýtt á nýjum stað. Kúnst- in felst í því að meta hverju kosta má til, svo innviðir verði öruggir. Ekki bara kannski, heldur örugg- lega. Það eru margvíslegar áhuga- verðar breytur í hraunbrúnni sem unnið er með um þessar mundir. Háskóli Íslands er nú aðili að sam- starfinu um hraunbrúna, sem er afar þakkarvert. Að fenginni reynslu er rétt að nefna, að oft er erfitt að finna vilja til samstarfs hjá opinberum aðilum um þróun nýrra verkfræðilegra lausna á ís- lensku umhverfis- og mann- virkjasviði, vegna sérhags- munagæslu fárra en stórra aðila. Minnt er á að hönnun, hugmyndir og hugverk á Íslandi tilheyra einn- ig lögsögu landsins þar sem í gildi eru lög um hugverkaréttindi, sem ber að virða. Of oft er þessi grund- vallarforsenda nýsköpunar, tækniþróunar og framfara vanvirt. Þar sem engin svör hafa borist frá ráðuneytum eða Almannavörn- um er dregin sú ályktun að áhug- ann á að kynnast kostum hraunbrúarinnar skorti. Skyn- samlegt væri þó að kanna málið nú og bíða ekki til næsta goss. Hér er einnig minnt á að yfirvöld ættu að gæta þess að hlúa að íslensku hug- viti með opinn faðminn, sér- staklega því sem einstakt er á heimsvísu. Enginn veit fyrir fram hvers virði slíkt getur orðið síðar. Þetta er bara til upplýsingar. Hraunbrú eykur almannaöryggi á eldgosasvæðum verulega Eftir Magnús Rannver Rafnsson »Hraunbrú verður aldrei á röngum stað né heldur röngum meg- in við mögulegt hraun- flóð. Hún ver innviði, þar sem þeir eru, með varanlegum hætti. Magnús Rannver Rafnsson Höfundur er verkfræðingur hjá Línudansi ehf. magnus.r.rafnsson@linudans.org Veiði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.