Morgunblaðið - 17.06.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 17.06.2022, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 eru talin með eða ekki. Hlutfallið fer hæst í 71% hjá Borgarleikhúsinu ef samstarfsverkefni eru ekki talin með, en er annars 67%. Hlutföllin snúast hins vegar við hjá Þjóðleik- húsinu. Þar er 60% sýninga leikstýrt af körlum, hvort sem samstarfs- verkefnin eru talin með eða ekki. Næring fyrir líkama og sál Í fyrsta sinn síðan 2008 hófst leik- árið ekki á nýfrumsamdri sumar- sýningu Leikhópsins Lottu. Það helgast af því hversu illa margir sjálfstæðir hópar fóru í faraldrinum og fengu, þrátt fyrir fögur loforð stjórnvalda, ekki nauðsynlegan stuðning. Vonandi rætist þar úr enda hefur Lotta verið mikilvægt blóm í leiklistarflóruna sem nær vonandi að blómstra sem fyrst aftur. Fyrsta frumsýning leikársins var því einsöngleikurinn Góðan daginn, faggi eftir Bjarna Snæbjörnsson leikara og Grétu Kristínu Ómars- dóttur leikstjóra með bráðskemmti- legri tónlist eftir Axel Inga Árna- son. Þessi einlæga og skemmtilega sýning setti tóninn fyrir metnaðar- fullt starfsár í Þjóðleikhúskjallar- anum undir listrænni stjórn Grétu Kristínar. Þar hóf göngu sína í vetur sýningaröðin Hádegisleikhúsið sem bauð upp á góða næringu fyrir lík- ama og sál. Hádegisverkin Út að borða með Ester eftir Bjarna Jóns- son í leikstjórn Grétu Kristínar og Rauða kápan eftir Sólveigu Eiri Stewart í leikstjórn Hilmars Guð- jónssonar voru bæði afbragðsvel heppnuð og verður spennandi að fylgjast með framhaldi sýningarað- arinnar á næsta leikári. Einn af hápunktum leikársins fyrir áramót var Njála á hundavaði eftir Hjörleif Hjartarson, í leik- stjórn Ágústu Skúladóttur, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Eirík- ur Stephensen og Hjörleifur Hjart- arson, í dúóinu Hundur í óskilum, fóru þar á kostum í túlkun sinni á Brennu-Njáls sögu. Rannsaka samfélag og sálarlíf Segja má að Caryl Churchill hafi verið leikskáld ársins, því stóru leik- húsin tvö í höfuðborginni buðu hvort upp á sitt verkið úr smiðju þessa eins merkasta núlifandi leikskálds Breta. Á löngum og farsælum ferli hefur Churchill verið óþreytandi við að kanna möguleika leiksviðsins til að rannsaka samfélag og sálarlíf. Borgarleikhúsið sýndi Ein komst undan frá 2016 í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur, þar sem heimur á hverfandi hveli var til umfjöllunar í vel uppbyggðu verki. Þjóðleikhúsið sýndi Ást og upplýsingar frá 2012 í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Verk- inu mætti helst lýsa sem dæmasafni um merkingu, möguleika á raun- verulegri nánd og takmörk skynj- unar og minnis. Þrátt fyrir afar ólík viðfangsefni og form áttu uppfærsl- urnar það sameiginlegt að leikurinn var afbragð og endurspeglaði stefnumót framúrskarandi texta við gjöfult og skapandi listafólk. Tal- andi um fyrsta flokks listafólk, þá er ekki hægt að gera upp leikárið án þess að minnast á leikþrekvirkið sem Gísli Örn Garðarsson vann í einleiknum Ég hleyp eftir Line Mørkeby í leikstjórn Hörpu Arnar- dóttur þar sem barnsmissir var til umfjöllunar. Sproti sem blómstrar Verkefnið Umbúðalaust hjá Borg- arleikhúsinu hlaut Sprota ársins á nýafstaðinni Grímuhátíð. Það var einstaklega viðeigandi, því það er hugsað sem vettvangur fyrir unga sviðshöfunda, sem eru að stíga sín fyrstu skref og leið til að efla tengsl- in við grasrótina. Röðin hóf göngu sína haustið 2019 og hefur þegar skilað bæði frumlegum, skemmti- legum og áhugaverðum sýningum. Á nýafstöðu leikári má nefna hina dásamlegu Á vísum stað úr smiðju sviðslistahópsins Slembilukku, þar sem geymsluþörf manneskjunnar var til rannsóknar og hin áhuga- verða How to make love to a man í uppfærslu sviðslistahópsins Toxic King, þar sem karlmennskan í ýms- um myndum var til skoðunar. Boðið var upp á sjö góðar barna- sýningar á nýliðnu ári fyrir fjöl- breyttan aldur. Stærsta hjartað sló í uppfærslu Borgarleikhússins á Emil í Kattholti eftir bókum Astridar Lindgren í leikgerð Johans Gille sem var yfirfarin og bætt af Marí- önnu Clöru Lúthersdóttur og Þór- unni Örnu Kristjánsdóttur sem jafn- framt leikstýrði. Uppfærslan minnti okkur á mikilvægi þess að börn fái að vera börn og læra af reynslunni í umhverfi sem einkennist af væntumþykju og skilningi. Skömmin sem leiðarstef Segja má að skömmin og leiðir til að uppræta hana hafi verið ákveðið leiðarstef seinni hluta leikársins, þar sem sjónum var beint að skammar- króknum í Kattholti, eitraðri karl- mennsku og skömminni sem fylgir áföllum, líkt og Elísabet Jökulsdótt- ir hefur verið ötul að fjalla um, síð- ast í Blóðugu kanínunni í leikstjórn Guðmundar Inga Þorvaldssonar í Tjarnarbíói. Umfjöllunin um hina hverfulu skömm náði hámarki í Sjö ævintýrum um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar, sem sýnd var í Þjóðleik- húsinu við góðar undirtektir, enda kraftmikið og spennandi verk í frá- bærri útfærslu. Það var því afar við- eigandi að bæði leikskáldið og leik- stjórinn hlytu Grímu fyrir störf sín. Ánægjulegt var að sjá hversu vel heppnuð mörg hinna nýju íslensku leikrita leikársins voru. Má í því samhengi nefna hið grátbroslega gamanverk Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson í leikstjórn höf- undar, sem sýnt var í Borgarleik- húsinu. Að lokum verður að minnast á undurfallegu heilgrímusýninguna Hetju eftir leikhópinn Skýjasmiðj- una í leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem sýnd var í Tjarnarbíói. Þar var áhorfendum boðið upp á gott vega- salt milli gamans og alvöru í upp- færslu sem minnti okkur á mikil- vægi samkenndarinnar, að lifa lífinu lifandi og töfrana sem birst geta í hinu hversdaglega. Framtíðin er björt Ljósmynd/María Kjartansdóttir Blóðuga kanínan Meðul absúrdleikhússins notuð til að fjalla um áföll. Ljósmynd/ Grímur Bjarnason Emil í Kattholti Sýning með risastórt hjarta sem snertir við áhorfendum. Ljósmynd/María Björt Ármannsdóttir Hetja Minnir á töfrana sem birst geta í hinu hversdaglega. Morgunblaðið/Eggert Á vísum stað Umbúðalaus sýning um geymsluþörf manneskjunnar. Ljósmynd/Jorri Sjö ævintýri um skömm Kraftmikið og spennandi nýtt íslenskt verk. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Ást og upplýsingar Frábært verk um takmörk skynjunar og minnis. AF LEIKLIST Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Eftir tvö erfið rekstrarár í leik- húsum landsins, á meðan heimsfar- aldurinn gekk yfir af fullum þunga, sneru hlutirnir hægt og rólega aftur til fyrra horfs á nýliðnu leikári. Leikhúsgestir fylltu sali á ný til að láta hreyfa við bæði hug og hjarta. Óhætt er að segja að faraldurinn hafi kennt okkur að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og fáir taka sviðslistum hér eftir sem sjálf- gefnum hlut sem ekki þurfi að hlúa að svo þær blómstri. Leikhúsið býr yfir einstökum galdri, þar sem áhorfendur geta upplifað allt litróf lífsins, fengið tækifæri til að setja sig í spor annarra, látið sig dreyma og sleppt ímyndunaraflinu lausu. Sviðslistirnar hafa aldrei verið mik- ilvægari en nú á tímum, þar sem þær geta birt okkur nýja möguleika og skapandi sjónarhorn í hröðum heimi þar sem allt er sífellt að breyt- ast. Á nýloknu leikári, sem hófst í ágúst í fyrra og lauk í maílok í ár, rýndu leiklistargagnrýnendur Morgunblaðsins í alls 37 sýningar. Það er sambærilegur fjöldi og áður en heimsfaraldurinn skall á með til- heyrandi samkomutakmörkunum, sem leiddi til þess að mun færri sýn- ingar komust á svið frá mars 2020 fram á sumar 2021. Þegar tilkynnt var um tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna 2022, kom fram að á leikárinu 2021– 2022 hafi leikhús og sviðslistahópar skráð alls 42 leiksýningar sem fram- lög til Grímunnar. Þar af voru sjö barnasýningar, en þess ber að geta að nokkrar sýningar færðust á milli leikára. Þeirra á meðal Bubbasöng- leikurinn 9 líf sem valinn var sýning ársins á nýafstaðinni Grímuhátíð eftir að hafa legið í dvala frá frum- sýningarhelginni í mars 2020 fram til haustsins 2021. Rúm 70% sýndra verka íslensk Sé rýnt í tölfræði ársins, má sjá að rétt rúm 70% þeirra verka, sem rýnt var í á nýliðnu leikári, voru íslensk eða 26 talsins. Þar af voru 25 ný ís- lensk verk og af þeim voru sex leik- gerðir. Þetta er lægra hlutfall en í fyrra, þegar rúm 77% sýndra verka voru íslensk, en samt vel yfir meðal- tali þann áratug sem undirrituð hef- ur tekið þessar tölur saman, sem er tæplega 66%. Sé litið á erlendu verkin, var boðið upp á tvö verk sem skrifuð voru í kringum aldamótin 1600, eitt verk frá 19. öld, tvö frá 20. öldinni og sex skrifuð eftir aldamót- in 2000. Erlendu verkin voru skrifuð á ensku, ítölsku, sænsku og dönsku. Sem fyrr er gróskan í íslenskri leikritun mest áberandi hjá sjálf- stæðu senunni, sem frumsýndi 15 af 26 íslenskum verkum leikársins, sem gerir 58%. Ef samstarfsverk- efni Borgarleikhússins og Þjóðleik- hússins eru talin með, sýndu þau hvort um sig um 40% íslenskra verka leikársins, en hlutfallið lækk- ar í um 20% hjá hvoru leikhúsi ef samstarfsverkefnin eru ekki talin með. Þegar uppfærslur leikársins eru skoðaðar með kynjagleraugum, má sjá að hlutur kvenna í hópi leik- skálda stendur nánast í stað á milli leikára. Á nýliðnu leikári voru 30% sýninganna byggð á leiktextum ein- vörðungu eftir konur en 35% byggð- ust á leiktextum einvörðungu eftir karla og 35% eftir bæði kyn, alls 49 höfunda þar sem kynjahlutfallið var því sem næst jafnt. Leikárið 2020–2021 var metfjölda sýninga leikstýrt af konum eða 71%, en það hlutfall fellur niður í 56% leikárið 2021–2022. Sé kynjahlut- fallið skoðað eftir sýningarstað, má sjá að Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar og sjálfstæða senan eiga það sameiginlegt að þar er fleiri verkum leikstýrt af konum en körl- um, hvort sem samstarfsverkefnin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.