Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022 Hjelle www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200 Vönduð norsk hönnunartákn sem standast tímans tönn. FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Hagkvæmni loftslagsaðgerða stjórnvalda er ákaflega misjöfn, sumar beinlínis óhagkvæmar, en ný skýrsla Hagfræðistofnunar kann að leiða til pólitísks endurmats á að- gerðunum og mikilvægi þeirra. Í aðgerðaáætlun í loftslags- málum, sem stjórnvöld lögðu fram 2020, voru tilteknar 48 aðgerðir sem draga skyldu úr losun gróð- urhúsalofttegunda. Í skýrslu Hag- fræðistofnunar nú er lagt mat á kostnað og ábata af þeim 22 aðgerð- um sem nægar upplýsingar lágu fyrir um. Ein mikilvægasta forsenda slíks kostnaðar- og ábatamats felst í því hvert tjón af losun gróðurhúsaloft- tegunda er talið vera. Í skýrslunni var miðað við verð á losunarheim- ildum á markaði Evrópusambands- ins (ESB) fyrir liðin ár, en fyrir komandi ár er stuðst við breskt mat á því hvert verðið þyrfti að vera ef hitastig á jörðinni á ekki að hækka um meira en 2°C frá því sem var fyrir iðnbyltingu undir lok 18. aldar. Kostnaður og ábati á komandi árum er núvirtur með 5% raunvöxtum. Mikilvægt mat á hagkvæmni Við blasir að aðgerðir í loftslags- málum eru mishagkvæmar, svo ná mætti meiri árangri með því að falla frá óhagkvæmum aðgerðum og leggja meiri áherslu á hinar. Það lýtur ekki aðeins að fjárhagslegum ávinningi landsmanna, heldur ár- angrinum, því „óhagkvæmar lofts- lagsaðgerðir rýra ekki aðeins hag landsmanna, heldur draga þær úr getu þeirra til þess að beita þeim ráðum í loftslagsmálum sem borga sig,“ eins og segir í inngangi. Ræktarsemi við landið best Niðurstaða Hagfræðistofnunar er að hagkvæmustu loftslagsað- gerðirnar felist í landgræðslu, skóg- rækt og endurheimt votlendis. Fleira er nefnt, svo sem raftenging skipa í höfn og orkuskipti í ferjum, skattar á losun flúrlofts, föngun kol- efnis frá jarðhitavirkjunum og álagning kolefnisgjalds. Bent er á að mikinn ábata af að- gerðum á landi, landgræðslu, skóg- rækt og endurheimt mýrlendis megi ekki síst rekja til örrar verð- hækkunar á losunarheimildum, sem gert er ráð fyrir á næstu áratugum. Þar fyrir utan kunni mikil verðmæti að felast í auknum náttúrugæðum af þeim völdum, án þess að þau séu tekin með í reikninginn. Þar virðast vera mikil og marg- vísleg sóknarfæri, þó raunar sé einnig minnt á að reynslan sýni að rétt sé að fara gætilega í stórfelld inngrip í náttúruna. Stuðningur við rafbíla rugl Hins vegar eru ýmsar aðrar að- gerðir taldar beinlínis óhag- kvæmar þegar til alls er litið. Þar eru efst á blaði stuðningur við kaup á rafmagnsbílum, bann við urðun á lífrænum úrgangi og efl- ing innlendrar grænmetisfram- leiðslu. Það er rökstutt með sann- færandi rökum. Nefnt er að nær væri að styrkja innviði fyrir raf- magnsbíla en að niðurgreiða kaup- verð þeirra eða rekstrarkostnað, þó það orki raunar einnig tvímælis. „Stuðningur við íslenska garð- yrkju er dýrasta leiðin til þess að binda kolefni sem hér er skoðuð.“ Borgarlínan skiptir engu Athygli vekur að margar aðgerð- irnar virðast hafa sáralítið að segja. Þar vekur borgarlínan sjálfsagt mesta athygli. Hún á að ganga fyrir rafmagni eða metani og er meðal stórra þátta í aðgerðaáætluninni. Niðurstaðan er sú að fyrstu þrír áfangar borgarlínu og efling strætókerfisins komi nokkurn veg- inn út á sléttu sem loftslagsaðgerð, án þess að gert sé lítið úr ýmsum öðrum mögulegum ávinningi henn- ar á öðrum sviðum. Eftir efnum og aðstæðum Í lokahluta skýrslunnar er skoð- að hverjir njóta mests ábata af að- gerðunum og hverjir bera mestan kostnað, aðallega eftir tekjuhópum og búsetu. Flestar aðgerðirnar breyta litlu um jöfnuð, líti menn á hann sem sjálfstætt markmið. Tekjulágir njóta fremur góðs af göngustígum og bættum almenn- ingssamgöngum en tekjuháir, en fólk með um og yfir meðaltekjur nýtur fyrst og fremst stuðnings við rafbíla enn sem komið er þó það jafnist sjálfsagt með tíð og tíma. Fólk á landsbyggðinni og tekjulág- ir finna hins vegar frekar fyrir auknum kolefnisgjöldum. Göngu- og hjólastígar nýtast fyrst og fremst borgarbúum og bættar al- menningssamgöngur sömuleiðis. Misjafn árangur loftslagsaðgerða - Hagfræðistofnun metur kostnað og ábata af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum í nýrri skýrslu - Landgræðsla, skógrækt og endurheimt votlendis - Ýmsar aðgerðir fánýtar eða óhagkvæmar Morgunblaðið/Kristinn Skógrækt Í skóginum við Tumastaði í Fljótshlíð er fallegt um að litast, en landrækt, skógrækt og endurheimt mýr- lendis er meðal hagkvæmustu og bestu loftslagsaðgerða Íslendinga, auk annars ávinnings til lífsgæða og landgæða. Umhverfisráðuneytið samdi við Hagfræðistofnun Há- skóla Íslands í mars 2021 um að stofnunin legði mat á kostnað og ábata af aðgerðum stjórnvalda í lofts- lagsmálum, sem kynntar voru um mitt ár 2020. Meta skyldi kostnað og ábata af 23 aðgerðum af 48 og áhrif þeirra á einstaka þjóðfélagshópa einnig gefinn gaumur. Skýrslugerðinni stýrði Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar. Ásamt honum unnu að skýrslunni hagfræðingarnir Ásthildur Jóhannsdóttir, Kári Kristjánsson, Ágúst Arnórsson og Sara Þrastar- dóttir Sördal. Þá lagði verkefnisstjórn um aðgerða- áætlun í loftslagsmálum fram margvíslegar ábendingar. Ýtarleg skýrsla rúmt ár í smíðum SKÝRSLA HAGFRÆÐISTOFNUNAR Sigurður Jóhannesson Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fagnar því að Íslandi hafi verið raðað í fyrsta flokk yfir varnir gegn man- sali af bandarískum stjórnvöldum á ný og segir mik- ilvægt að halda áfram á sömu braut. „Þetta endur- speglar þær áherslur sem hafa verið lagðar á þessa hlið mála í nokkurn tíma og það hefur tekist vel og ýmsar að- gerðir sem hefur verið gripið til,“ segir Jón í samtali við mbl.is. „Segja má að mál sem ég til að mynda lagði fram í vetur og fékk samþykkt á þingi í vor um bætta réttarstöðu brotaþola og annað, það er auðvitað allt sem tengist þessu. Síðan er aukin áhersla sem við leggjum nú á skipulagða brotastarf- semi, varnir gegn því og slíkt, sem mun líta dagsins ljós í haust. Þetta er allt hluti af sömu myndinni og þungt áherslumál.“ Ísland hafði verið í fyrsta flokki frá árinu 2001 í árlegri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, en féll í annan flokk árið 2017. Borin kennsl á fleiri þolendur mansals „Aukið fjármagn hefur verið veitt, það var skipaður starfshópur með mörgum aðilum sem að þessu koma og góður árangur hefur náðst í kjöl- farið. Það hefur einnig skilað því að það var ákært og sakfellt fyrir man- sal hér á landi í fyrsta skipti í tólf ár og borin hafa verið kennsl á fleiri þolendur mansals og þeim veitt við- eigandi aðstoð,“ segir Jón, spurður hvaða breytingar hafi átt sér stað. „Sérstök upplýsingagátt um man- sal var opnuð á vef Neyðarlínunnar, við höfum svo staðið fyrir kynningu með gerð fræðslumyndbanda og öðru, þannig að víðtækari ráðstafan- ir hafa verið gerðar sem eru að skila þessum ánægjulega árangri í dag,“ bætir hann við. „Við þurfum að halda áfram á þessari vegferð. Það má nefna breyt- ingar á lögum sem tengjast þessu beint og óbeint, af því að oft er þetta hluti af skipulagðri brotastarfsemi og þarf að meðhöndla sem slíkt. Þar er ég til dæmis með frumvarp í haust,“ segir Jón. Áhersla á baráttu gegn mansali - Tengist oft skipulagðri brotastarfsemi Jón Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.