Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 22.07.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 22.07.2022, Síða 12
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íbúar landsins urðu í fyrsta sinn rúm- lega 380 þúsund í sumarbyrjun. Að óbreyttu munu um 385 þúsund manns búa á landinu í árslok. Aðflutningur erlendra ríkisborg- ara, þar með talið frá Úkraínu, á mik- inn þátt í íbúafjölguninni. Hún mun hafa margvísleg hagræn áhrif. Þá ekki síst með því að auka eftirspurn og þannig örva hagvöxt. Samkvæmt tölum Þjóðskrár bjuggu um 381 þúsund manns á land- inu í byrjun þessa mánaðar. Hafði landsmönnum þá fjölgað um ríflega 4.700 frá áramótum, þegar hér bjuggu 376.250 manns, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þessi íbúafjölg- un jafnast á við íbúafjölda Seltjarnar- ness í byrjun þessa árs. Fjölgaði um 4.100 Aðflutningur erlendra ríkisborg- ara á mikinn þátt í íbúafjölguninni. Hagstofan hefur ekki birt tölur um búferlaflutninga á öðrum ársfjórð- ungi og verður því að styðjast við töl- ur Þjóðskrár. Samkvæmt þeim fjölg- aði erlendum ríkisborgurum úr 55 þúsund í 59.100, frá 1. desember síð- astliðnum til 1. júlí síðastliðins, eða um rúmlega 4.100. Þar af fjölgaði Úkraínumönnum á sama tímabili úr 239 í 1.410 eða um 1.171. Ætla má að langflestir hafi komið eftir innrás Rússa í Úkraínu í lok febrúar. Þjóðskrá vekur athygli á fjölgun innflytjenda frá Venesúela en þeim fjölgaði úr 455 í 715 á sama tímabili, eða um 260, sem er rúmlega 57% fjölgun. Þá fjölgaði Rúmenum úr 2.752 í 3.159, eða um ríflega 400, og Pólverjum fjölgaði úr 21.191 í 22.020, eða um 829. Samanlagt fjölgaði innflytjendum frá Úkraínu, Venesúela, Rúmeníu og Póllandi um tæplega 2.700 frá 1. des- ember sl. til 1. júlí sl., eða næstum á við íbúafjölda Hveragerðis. Mætir skorti á vinnuafli Fjallað var um samspil íbúafjölg- unar og hagvaxtar í Viðskipta- Mogganum 8. júní síðastliðinn. Þar var meðal annars rætt við Ing- ólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins. Hann taldi aðspurður raunhæft að fleiri flytji hingað á ár- unum 2022 til 2024 að meðaltali en fyrri ár. Skýringarnar séu meðal annars fyrirséður skortur á vinnuafli í fjölmennum atvinnugreinum. Þá ekki síst byggingariðnaði, ferðaþjón- ustu og hugverkaiðnaði. Tölur Þjóðskrár um fjölgun er- lendra ríkisborgara á fyrri hluta árs- ins virðast renna stoðum undir þessa spá. Má í því efni rifja upp þau orð Vignis Hafþórssonar, sérfræðings á Vinnumálastofnun, í Morgunblaðinu 16. júlí, að atvinnuleysi mælist nú svo lítið í mörgum landsfjórðungum að tala megi um skort á vinnuafli. Gæti hækkað verð úti á landi Íbúafjölgun eykur meðal annars spurn eftir húsnæði. Fylgni hefur verið milli hagvaxtar og aðflutnings erlendra ríkisborgara á þessari öld en flóknara er að meta áhrif aðflutn- ingsins á íbúðaþörf. Almennt ætti eftirspurn eftir húsnæði þó að aukast, þar með talið í þeim landshlutum þar sem saman fer hverfandi lítið at- vinnuleysi og lítið framboð af íbúðar- húsnæði. Gæti það aftur ýtt undir hærra íbúðaverð á þeim svæðum. Íbúðaverð heldur áfram að hækka á höfuðborgarsvæðinu og var vísitala íbúðaverðs 941 stig í júní, sem var um 14% hækkun frá því í janúar. Hin hliðin á peningnum er að húsnæðis- kostnaður er meðal grunnþátta sem erlendir ríkisborgarar horfa til er þeir meta Ísland sem áfangastað. Höfuðborgarsvæðið er langstærsta atvinnusvæði landsins. Ef húsnæðis- kostnaður hækkar umfram laun gæti það haft áhrif á þetta mat. Á hinn bóginn koma flestir hinna aðfluttu ríkisborgara frá Evrópu og þar glíma mörg ríkin við orkukreppu. Þ.e. hækkandi orkuverð, sem er að hluta tengt ótryggu framboði af jarðgasi. Orkukreppan hefur þegar haft í för með sér lokun iðnfyrirtækja í Evrópu, þ.m.t. álvera, og þar með fækkun starfa. Þá bitnar hún hvað harðast á lágtekjufólki sem þarf að verja hærra hlutfalli tekna sinna í kyndingu. Staðan á íslenskum orku- markaði er mun betri og gæti það haft áhrif á búferlaflutninga. Miðað við íbúafjölgun á fyrri hluta árs, þörf fyrir aðflutt vinnuafl og náttúrulega fjölgun stefnir í að íbúar landsins verði um 385 þús. í árslok. Þúsundir nýrra neytenda - Íbúum landsins hefur fjölgað um ríflega 4.700 frá áramótum - Það jafnast á við íbúafjölda Seltjarnarness - Hin hraða íbúafjölgun mun að óbreyttu örva hagvöxt Fjöldi erlendra ríkisborgara og vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu Frá 1. desember 2018 til 1. júlí 2022 60 50 40 30 20 10 0 1.200 1.000 800 600 400 200 0 1. des. 2018 1. des. 2019 1. des. 2020 1. des. 2021 1. júlí 2022 H ei m ild :Þ jó ðs kr á 44 49 51 55 59 Íbúafjöldi á landinu 356.674 363.882 368.620 376.029 380.958 Þar af erlendir ríkisborgarar 44.156 49.347 51.378 54.979 59.105 – sem hlutfall af heild 12,4% 13,6% 13,9% 14,6% 15,5% Vísitala íbúðaverðsFjöldi, þús. 621 635 684 810 941 Þúsundir erlendra ríkisborgara Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu (janúar 1994=100) 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 139.000 kr. Loksins fáanlegir aftur, í mörgum litum 22. júlí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 136.78 Sterlingspund 163.77 Kanadadalur 106.23 Dönsk króna 18.737 Norsk króna 13.768 Sænsk króna 13.336 Svissn. franki 140.97 Japanskt jen 0.9899 SDR 180.08 Evra 139.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.4946 « Samtals 2,3 milljarða króna hagn- aður varð af rekstri Landsbankans á öðrum ársfjórðungi og hefur bankinn alls skilað 5,6 milljarða hagnaði frá ára- mótum. Til samanburðar var hagnaður á öðrum ársfjórðungi í fyrra 6,5 millj- arðar og á fyrri hluta ársins 14,1 millj- arður, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá bankanum vegna uppgjörsins. Þar segir meðal annars að arðsemi eiginfjár á fyrri hluta ársins hafi verið 4,1%, en bankinn hafi sett sér markmið um að arðsemin sé yfir 10%. Greint hafi verið frá því í tilkynningu til Kauphallar- innar vegna uppgjörsins að lækkunin sé fyrst og fremst tilkomin vegna lækk- unar á gangvirði hlutabréfaeignar bank- ans. Hreinar vaxtatekjur bankans (vaxtagjöld að frádregnum vaxtakostn- aði) hafa aukist og voru 11,2 milljarðar á öðrum ársfjórðungi en 10,3 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Hagnaður Landsbanka hefur dregist saman Morgunblaðið/Kristinn Landsbankinn Arðsemi minnkar. STUTT Icelandair Group hagnaðist um 522 milljónir á öðrum ársfjórðungi í ár. Þetta er í fyrsta skipti sem félagið skilar hagnaði frá árinu 2017. Heildartekjur félagsins námu 42,5 milljörðum króna, sem er veruleg bæting og hækka tekjurnar um 32,5 milljarða miðað við sama tímabil í fyrra. Lausafjárstaða félagsins hefur aldrei verið sterkari og nam 61,6 milljörðum króna, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Hagnaður fyrir vexti og skatta (EBIT) nam 156 milljónum króna en 8,5 milljarða tap varð á sama tímabili í fyrra. Réðu um þúsund starfsmenn Félagið réð hátt í eitt þúsund starfsmenn og kláraði samninga um tvær Boeing 737 MAX-flugvélar. Viljayfirlýsing um fjórar vélar til við- bótar hefur verið undirrituð. Sjóð- streymi frá rekstri nam 15,7 millj- örðum. Gert er ráð fyrir góðri afkomu á 3. fjórðungi og að það muni skila hagnaði á seinni hluta ársins. „Að skila hagnaði á öðrum árs- fjórðungi er stór áfangi á vegferð okkar að koma félaginu í arðbæran rekstur. Með því að nýta sveigjan- leika leiðakerfisins og þá sterku inn- viði sem við búum yfir höfum við aukið flugframboð hratt til að mæta mikilli eftirspurn og á sama tíma náð að bæta sætanýtingu og framlegð, þrátt fyrir að eldsneytisverð hafi meira en tvöfaldast á síðastliðnum 12 mánuðum.[…],“ sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í til- kynningu í gær. logis@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugfélag Bætt afkoma félagsins skýrist af auknum farþegatekjum. Hagnast um hálfan milljarð - Icelandair skil- aði hagnaði í fyrsta skipti í fimm ár

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.