Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 20

Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022 ✝ Elís Jónsson fæddist í Klett- stíu í Norðurárdal í Borgarfirði 3. apríl 1931. Hann lést í Reykjavík 11. júlí 2022. Foreldrar Elísar voru hjónin Jón Jó- hannesson og Sæ- unn Elísabet Klem- enzdóttir. Elís var yngstur fjögurra bræðra en þeir voru Karl Magnús, Klemenz og Jó- hannes, þeir eru allir látnir. Elís kvæntist Brynhildi Bene- diktsdóttur Líndal, f. 30.6. 1934, d. 11.1. 2022. Börn þeirra eru: 1. bæjar, Gaggó Vest, veturna 1946- 1949 og lauk þaðan landsprófi. El- ís lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1953 og stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands 1954 til 1958. Elís var dyggur starfsmaður Vegagerðar ríkisins í 51 ár en hann hóf fyrst störf sem sum- arstarfsmaður sumarið 1950. Hann kom víða við í störfum sín- um fyrir Vegagerðina, m.a. á Fá- skrúðsfirði, Ströndum, í Húna- vatnssýslum og síðast en ekki síst í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, en árið 1959 tók hann við starfi um- dæmisverkstjóra Vegagerð- arinnar í Borgarnesi. Því starfi gegndi hann til ársins 1995 þegar hann færði sig um set til Vega- gerðarinnar í Reykjanesumdæmi. Þar starfaði Elís til 70 ára aldurs eða til ársins 2001. Elís tók virkan þátt í félagsstörfum og starfaði innan Lions-hreyfingarinnar og frímúrarareglunnar Akurs. Hann sinnti embætti sýslunefndar- formanns fyrir Mýrasýslu í nokk- ur kjörtímabil, sat í stjórn Skallagríms/Akraborgar og í stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu. Elís og Brynhildur hófu búskap í Reykjavík árið 1955 en byggðu sér síðan hús á Kjartansgötu 20 í Borgarnesi og fluttu þangað árið 1964. Þar bjuggu þau allt til ársins 1995 þegar þau fluttu í Bröttuhlíð 6 í Mosfellsbæ. Elís naut sín við stangveiði og hestamennsku en þau Brynhildur héldu hesta allan sinn búskap og ferðuðust víða um landið tengt því. Þá ferðuðust þau mikið til útlanda. Útför Elísar fer fram frá Lága- fellskirkju í Mosfellsbæ í dag, 22. júlí 2022, klukkan 13. Benedikt Ingi, f. 27.3. 1957. Eiginkona Edda Jóhannsdóttir. Synir þeirra eru Elís Ingi og Birkir Páll. 2. Guðrún Alda, f. 11.2. 1971. Synir hennar eru Benedikt Líndal og Freyr Líndal. Elís gekk í barna- skólann við Dals- mynni í Norðurárdal frá 7 til 14 ára ald- urs. Veturinn 1945-1946 sat hann heimakennslu hjá prestunum í Fellsmúla í Landsveit en þar starf- aði föðurbróðir hans Guðlaugur sem kennari. Þá stundaði hann nám við Gagnfræðaskóla Vestur- Það haustaði snemma þetta sumarið þegar elsku pabbi kvaddi, nákvæmlega hálfu ári eftir að mamma lést, enda var hann ein- staklega nákvæmur maður. Allt frá fyrstu tíð var ég mjög náin pabba enda var hann sérstak- lega ástríkur og umhyggjusamur faðir og afi, sem er svo sannarlega gæfa mín og sona minna. Hann var að mörgu leyti á undan sinni samtíð þegar kom að barnaupp- eldi, umönnun og heimilishaldi en þar tók hann þátt til jafns við mömmu. Mildi, virðing, stuðning- ur og þolinmæði var leiðarstef hans í uppeldi og samskiptum alla jafna enda taldi hann það skila meiru en harka og óbilgirni. Ég er eftirbátur hans í flestu en mun reyna að tileinka mér þessa góðu kosti eftir bestu getu. Minningabrotin hafa hrannast upp síðustu daga. Ég sem lítil stelpa sitjandi á hnakkkúlunni fyr- ir framan pabba í útreiðartúrum og hvernig hlýtt fangið hans umvafði mig öryggi. Seinna kenndi hann mér að sitja hest og fylgdi mér í reiðskólann í Faxaborg. Hann hafði einstakt lag á að vekja mig blíðlega á morgnana og dekraði við stelpuna sína á alla mögulega vegu. Þá fór ég með honum í ófáa vinnu- bíltúrana um uppsveitir Borgar- fjarðar, á Mýrarnar og jafnvel nið- ur í Hrútafjörð þar sem hann átti fundi með bændum og vegavinnu- mönnum, settumst inn í kaffi þar sem mynduð voru ævarandi tengsl. Klukkutímum saman sat ég í aft- ursætinu hjá honum og hann fræddi mig um helstu örnefnin, hvað bæirnir hétu og hver byggi hvar, svo sungum við hástöfum saman við lagið í útvarpinu, bæði afspyrnu laglaus. Að loknum löngum vinnudegi fengum við okk- ur svo heitt kakó og franskbrauð fyrir svefninn og höfum við borið þess merki síðan. Pabbi var einstakt snyrtimenni og afar skipulagður. Frá unglings- árum og þar til sjónin sveik hélt hann dagbók. Þar var ekki verið að flíka tilfinningum og skoðunum heldur voru helstu staðreyndir dagsins færðar til bókar. Hver dagbókarfærsla hófst með stuttri veðurlýsingu og í kjölfarið upplýs- ingar um hverja hann hitti, talaði við í síma, hvert hann fór og hvað var keypt. Hann var fróður, víð- lesinn og stálminnugur til síðasta dags, þuldi upp ættir og tengsl fólks, hvaðan það kom og helstu staðhætti auk þess sem hann var vel að sér um sagnfræði, landa- fræði og stjórnmál. Elsku hjartans pabbi minn, takk fyrir allt sem þú hefur verið mér og stráknum mínum. Takk fyrir að kenna mér að sitja hest, rækta fólkið mitt og vináttuna, slá blettinn og rækta kartöflur, brýna fyrir mér að fara vel með íslenskt mál, vekja mig varlega á morgn- ana og bjóða mér fallega góða nótt. Takk fyrir að ganga Bene- dikt mínum í föðurstað á krefjandi tímum og vera Frey svo hlýr og góður afi. Þú kenndir okkur svo margt með þinni styrku hendi og stóra hjarta, það er veglegt nesti inn í lífið. Allt verður nú svo tómt og þín svo sárt saknað, farðu í friði elsku besti. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Meira: www.mbl.is/andlat Þín ávallt elskandi dóttir, Guðrún Alda. Elsku pabbi minn, leiðir okkar lágu fyrst saman 27.3. 1957 á fæð- ingardeild LSH í Reykjavík. Það voru fagnaðarfundir okkar á milli þó svo að ég muni ekki eftir þínu fallega brosi og hlýju er þú faðm- aðir mig í fyrsta sinn. Þú hafðir þá þegar hafið störf hjá Vegagerðinni, tókst við stöðu umdæmisverkstjóra á Vestur- landi árið 1959 og reistir okkkur hús á Kjartansgötu 20 í Borgar- nesi. Árin í Borgarnesi voru eft- irminnileg, að alast upp í þorpi þar sem börn voru frjálsari en á möl- inni. Mamma var heimavinnandi að vetri til en vann með þér sem ráðskona í vegavinnu á sumrin. Það má segja að ég hafi verið alinn upp á sumrin sem hálfgerður „sí- gauni“, í tjöldum, skúrum og í aftursæti bílsins á ferðalögum þín- um um umdæmið. Í nokkur ár hófst sumarúthald- ið við vegaúrbætur við Vesturár- gil í V-Hún, síðan hjá Brú í Hrúta- firði og enduðum að hausti við Fornahvamm í Norðurárdal. Búið var við þröngan kost, án rafmagns og nútímaþæginda. Þið mamma kláruðuð verkefnin með myndar- skap, tími sem ég mun aldrei gleyma. Traustið og umhyggjan sem þú sýndir mér var einstök. Sjaldan skiptir þú skapi, ef það gerðist þá varði það ekki lengi. Þú hafðir sterkar skoðanir, lausnamiðaður, snyrtimenni og allt var í röð og reglu. Hélst dagbækur og skráðir viðburði frá degi til dags. Mikinn fróðleik er þar að finna til áratuga. Þú tókst mikið af myndum, stund- um var kvartað yfir endalausum myndatökum: „Elli minn, hættu nú!“ En í dag búum við að þús- undum mynda sem ellegar væru ekki til staðar frá árum áður. Hjá Vegagerðinni fór pabbi með mannaforráð og eignaðist marga trausta vini. Verkefnin voru ærin, nýbyggingar og við- hald vegakerfisins á Vesturlandi frá botni Hvalfjarðar að Hítará, að Gljúfurá í V-Hún. og Stranda- sýslu. Helstu áhugamál pabba voru hestamennska, lax- og rjúpna- veiði. Hestarnir tóku drjúgan tíma árið um kring, það voru ófáar ferð- irnar sem farnar voru í Dalina, yfir hálendið, á Þingvelli, auk styttri ferða. Það var gestkvæmt á heimilinu. Frændfólk okkar var tíðir gestir, systkinabörn mömmu dvöldu löngum stundum hjá okkur á sumrin sem jók á ánægju, skemmtun og prakkaraskap. Systir mín kom í heiminn 1971, sem lífgaði upp á heimilislífið, prakkari og uppátækjasöm. Okkur Eddu fæddist sonur 1981, skírður í höfuðið á afa sínum á fimmtugsafmæli hans. Elís Ingi dvaldi löngum stundum hjá afa og ömmu í Borgarnesi. Yngri sonur okkar, Birkir Páll, naut einnig góðra stunda hjá þeim. Við fjöl- skyldan fórum ófáar helgarferð- irnar í Borgarnes og höfðum mikla skemmtun af. Eftir flutning pabba og mömmu í Mosó árið 1995 starfaði pabbi áfram hjá Vegagerðinni til starfsloka. Hann naut lífsins heima við þar til fyrir tveimur ár- um er hann flutti á Hrafnistu við Sléttuveg. Við þráðum að hafa hann lengur á meðal okkar en megum um leið ekki vera eigin- gjörn, hann lifði góðu og litríku lífi í 91 ár sem er þakkarvert. Elsku pabbi, stórt knús fyrir samfylgdina og hlýju þína í okkar garð, hvíl í friði og vona ég inni- lega að þið mamma hafið náð að sameinast á nýjum slóðum þar sem sólin skín árið um kring. Meira: www.mbl.is/andlat Þinn sonur, Ingi. Elsku afi, þú varst alltaf róleg- ur og góður, sýndir okkur mikinn áhuga og vildir að okkur gengi vel í lífinu. Þegar við hugsum til þín verður okkur hlýtt í hjartanu því þú varst heimsins besti afi. Við munum sakna þín mikið. Hvíldu í friði. Þótt döpur sé nú sálin, þó mörg hér renni tárin, mikla hlýju enn ég finn þú verður alltaf afi minn. (Höf. ók.) Þínir afastrákar, Benedikt og Freyr. Fallinn er frá Elís Jónsson, góð- ur félagi og skólabróðir úr Menntaskólanum í Reykjavík. Með nokkrum orðum langar mig að minnast hans. Við Elís, eða Elli, eins og hann var kallaður, sátum saman í B- bekknum, strákabekk og útskrif- uðumst 1953. Elli var aðeins eldri en við, bóndasonur úr Borgarfirði, nánar tiltekið frá Klettstíu í Norð- urárdal. Hann var hæverskur og rólyndur strákur og tók ekki mik- inn þátt í félagslífi skólans. Samt tókst mér að fá hann til ábyrgð- arstarfa fyrir leiknefndina sem sá um árlega leiksýningu skólans, Herranótt. Þar sá hann um gerð og uppsetningu leikmyndarinnar og leikmuna. Nauðsynlegt var að ganga úr skugga um að allt væri á sínum stað fyrir hverja sýningu. Þar mátti ekkert út af bera og þar var Elli réttur maður á réttum stað. Traustur og áreiðanlegur. Eftir útskriftina dreifðist hópurinn og alvara lífsins tók við. Elli fann sér starfsvettfang í heimabyggð sinni. Vegagerð og samgöngumál á Vesturlandi áttu hug hans allan og við þau mál starfaði hann beint og óbeint fram að eftirlaunaaldri. Þegar á leið vaknaði þörfin fyrir að hitta gömlu skólafélagana og endurnýja gömul kynni. Góður hópur myndaðist að frumkvæði Ingólfs Örnólfssonar heitins og hefur sá hópur ásamt eiginkonum hist reglulega og átt góðar og eft- irminnilegar stundir saman. Er mér sérstaklega minnisstæð glæsileg veisla sem Elli og Bryn- hildur kona hans héldu í tilefni af áttræðisafmæli hans. Þar var hóp- urinn enn fullskipaður og umræð- ur heitar, enda þjóðaratkvæða- greiðsla um Icesave-samningana framundan og sitt sýndist hverj- um. En Ella tókst með sínu ró- lynda skapi að lægja öldurnar. Síð- an þá hefur saxast á hópinn. Elli missti eiginkonu sína snemma árs og sjálfur var hann orðinn heilsu- lítill og þurfti umönnunar við síð- ustu æviárin. Fyrir hönd hópsins gamla sendi ég börnum hans og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðj- ur. Ella þökkum við liðnar sam- verustundir og minnumst hans sem góðs og trausts vinar. Blessuð sé minning hans. Þórir Einarsson. Elís Jónsson Með örfáum orð- um langar mig að minnast Guðrúnar Tómasdóttur. Leið- ir okkar lágu fyrst saman þegar hún vann að því á árinu 2016 að gefa út geisladisk- inn Vor mitt það er blæösp, en þar syngur Guðrún ljóð og ljóða- þýðingar Þorsteins Valdimars- sonar frá sjöunda og áttunda ára- tug síðustu aldar. Upptökurnar voru allar til hjá Ríkisútvarpinu og gefnar út með heimild stofn- unarinnar. Ekki veit ég ástæðuna fyrir því að Guðrún bað mig að vera sér innan handar varðandi frágang bæklingsins sem fylgdi diskinum. Ekki ósennilegt að mágkona Þorsteins, Sólveig Ein- arsdóttir, ekkja Gunnars Valdi- marssonar, eða synir þeirra, Þor- steinn og Einar, hafi sagt henni frá vináttu okkar Þorsteins og greinum sem ég skrifaði á sínum tíma um hann, m.a. í tímaritið Múlaþing. Hvað sem því líður þá tók ég vel í það þegar Guðrún hringdi í mig einn góðan veður- dag og bað mig að vera sér innan handar við samantekt á kynning- arbæklingi með fyrrnefndum hljómdiski. Samstarf okkar hófst með heimsókn til hennar á Há- teigsveginn þar sem grunnlínur Guðrún Tómasdóttir ✝ Guðrún Tómasdóttir fæddist 13. apríl 1925. Hún lést 9. júlí 2022. Útför Guðrúnar fór fram 20. júlí 2022. voru lagðar varð- andi efni kynningar- bæklingsins. Þau voru mörg símtölin sem við áttum og Tómas sonur henn- ar varð oft fyrir svörum þegar ég hringdi. Af meðleik- urunum sem koma við sögu á diskinum var og er Jónas Ingimundarson einn á lífi. Hann var ávallt boðinn og búinn að vera mér innan handar með ráðgjöf og upplýsingar. Dýrmætasta gjöfin sem þetta verkefni færði mér var að kynn- ast listamanninum og persónunni Guðrúnu Tómasdóttur. Af henni geislaði í hvívetna hlýja og elsku- legheit. Eftir að diskurinn kom út bauð hún okkur hjónunum og Sólveigu oft í kaffi á Háteigsveg- inn. Sem vænta má var þar farið vítt um völl, m.a. við upprifjun minninga um fólk og viðburði í tónlistarlífinu. Síðar hittumst við nokkrum sinnum til að ræða með hvaða hætti yrði best minnst aldarafmælis Þorsteins, en hann var fæddur 31.10. 1918. Niður- staðan varð sú að farið var fram á það við Ríkisútvarpið að tekin yrði saman dagskrá af þessu til- efni. Á það var fallist og tók Gunnar Stefánsson að sér að sjá um dagskrána. Henni var útvarp- að 3. nóvember 2018 og var vel tekið. Ekki get ég lokið þessum lín- um án þess að minnast á bókina Söngurinn og sveitin eftir Bjarka Bjarnason, sem út kom 2017. Þessi bók er ómetanleg heimild því þar segir Guðrún í stórum dráttum frá lífshlaupi sínu. Eftir að Guðrún flutti inn á Hrafnistu átti ég þess kost að hitta hana tvisvar hressa í bragði; í síðara skiptið liðlega hálfum mánuði áður en hún kvaddi. Við heiðrum best minningu listamannsins Guðrúnar Tómas- dóttur með því að meta að verð- leikum hennar listræna framlag og hlýða sem oftast á geisladisk- inn. Öllum ættingjum og vensla- fólki Guðrúnar sendum við Sig- rún hugheilar samúðarkveðjur. Gunnar Guttormsson. Það mun hafa verið í lok ní- unda áratugarins sem ég kom til Guðrúnar í fyrsta söngtímann í Tónskóla þjóðkirkjunnar á Sölv- hólsgötunni. Við guðfræðinemar þurftum líka að fá tilsögn í söng, enda betra að við gætum tónað eins og eina messu lýtalaust. Haukur Guðlaugsson, fv. söng- málastjóri, segir svo í minninga- bók Guðrúnar: „… Guðrún var ætíð bæði kennari og mikill vinur nemenda sinna. Ef einhver kom í skólann, sem átt hafði erfiða lífsreynslu eða skorti sjálfstraust, þá var fyrsta hugsunin hjá mér að koma nemandanum í hendur Guðrúnar. Hún annaðist alla af nærfærni og skilningi. …“ (Söngurinn og sveitin, bls. 107.) Þetta eru orð að sönnu. Þegar ég hóf nám hjá Guðrúnu voru ekki liðin mörg ár frá andláti foreldra minna, og ég kynntist strax þessu ljúflyndi hennar og góðu nærveru, enda urðum við fljótlega ágætar vin- konur. Ég komst líka að því, að við áttum margt sameiginlegt og átt- um töluvert af sameiginlegum vinum. Hún hafði stundum orð á því, að aldursmunarins vegna gæti ég vel verið dóttir hennar, sem ég játti strax og sagðist eiga hálf- systur samfeðra, sem væri jafn- gömul henni, og ætti börn á mín- um aldri og jafnvel eldri. Við töluðum jafnan margt og mikið saman, þess á milli sem hún lét mig syngja raddæfingarnar, eftir að hún hafði heyrt, hversu mikið raddsvið ég hafði, og end- uðum svo tímana alltaf á nokkrum lögum. Ef ég kom aðeins fyrir tímann til hennar, og hún rétt ókomin, þá átti ég það til að setjast við píanóið í kennslustofunni og spila nokkur lög, oftast nær utan að, hvort heldur það voru þjóðlög, ljóðalög, óperuaríur eða jafnvel dægurlög. Hún kunni að meta það allt saman og hafði gaman af, þegar hún kom. Einhvern tíma kom ég með bók, sem í voru óperuaríur með dönskum texta, og móðir mín hafði átt, og var að spila aríur Cherubinos úr Brúðkaupi Fíg- arós, þegar Guðrún kom inn, og sagði þá: „Já, aumingja strák- urinn hann Cherubino, sem var alltaf svo yfir sig ástfanginn af greifafrúnni.“ Hún virtist hafa yndi af þessu píanóspili mínu. Alls var ég í námi hjá henni sem svaraði fimm árum eða grunn- og miðstigi, að mér telst til, þótt ekki væri það samfellt nám og næði yf- ir lengri tíma. Ég fékk líka mikið út úr því. Eftir að því lauk talaði ég oft við hana í síma, og það var alltaf jafn indælt að heyra í henni, svo ljúf og yndisleg, eins og hún var iðulega, þótt nokkur tími liði á milli, enda man ég aldrei eftir henni í vondu skapi. Slíkt var ekki í eðli hennar. Þegar ég nú kveð hana hinstu kveðju er mér efst í huga einlægt og innilegt þakklæti fyrir góða og gjöfula viðkynningu, vináttu og velgerðir í minn garð og svo kennsluna, um leið og ég bið henni allrar blessunar Guðs í ríki ljóss og friðar, og votta Tómasi og öðrum aðstandendum innilega samúð mína. Ég veit, að Guðrún hefur fengið góða heimkomu og verður með okkur öllum í anda, sem þekktum hana, og lifir vissu- lega í minningunni þrátt fyrir söknuðinn. Blessuð sé ævinlega minning minnar elskulegu vinkonu og söngkennara. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Björtustu minningar mínar stafa löngum frá organistanám- skeiðunum í Skálholti, hvar org- anistinn og söngstjórinn, Haukur Guðlaugsson, hélt úti kraftmikl- um, vikulöngum og árlegum námskeiðum með allri ljúf- mennsku, listfengi og öflugri að- stoð þolinmóðra kennara og fleiri hjálparmanna. Þangað sóttu víða að organistar og söngvarar. Guðrún Tómasdóttir var þar fremst í flokki kennara, ljúf og einörð eins og hæfir listamanni og söngkonu, átti margt að gefa organistunum sem komu til hennar í söngtíma og tóku jafnvel einsöng í messunni sem alltaf var á sínum stað á sunnudeginum. Mótinu lauk með þeirri samkomu og þátttakendur sneru aftur heim, orkumeiri og hugdjarfari að takast á við verkefni hausts og kirkjusönginn næsta vetur. Þessa merku söngkonu, sem blés okkur ýmsum kraft í hug, vil ég kveðja með versi úr ljóði Tóm- asar Guðmundssonar, Eftir söng- leik: Ég vaknaði af djúpum dvala við dýrlegan hörpuóm. Sál mína dreymir síðan sólskin og undarleg blóm. Ég fann hvernig foldin lyftist og fagnandi tíminn rann með morgna, sem klettana klifu og kvöld, sem í laufinu brann. (TG) Ingi Heiðmar Jónsson. „Þú eina hjartans yndið mitt“: Þakkarorð: Ég þakka kær- leika þinn. Ég þakka mildina. Ég þakka fegurðina. Ég þakka glað- værðina. Þinn dillandi hlátur. Ég þakka yndislega sönginn þinn. Ég þakka hugulsemina. Ég þakka geislandi brosið þitt. Ég þakka friðinn sem fylgdi þér og fyllti hvern krók og kima. Ég þakka fölskvalausa vináttu sem aldrei bar skugga á. Ég þakka fyrir þig, yndislega Guðrún mín. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá … Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.