Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
Lengjudeild karla
Fjölnir – Þróttur V................................... 6:0
Selfoss – HK ............................................. 1:2
Grindavík – Afturelding .......................... 4:5
KV – Fylkir ............................................... 2:3
Staðan:
HK 13 9 1 3 28:17 28
Fylkir 13 8 3 2 37:15 27
Fjölnir 13 7 2 4 32:21 23
Grótta 12 7 1 4 27:15 22
Selfoss 13 6 3 4 24:19 21
Afturelding 13 5 4 4 24:21 19
Grindavík 13 4 5 4 22:20 17
Kórdrengir 12 4 4 4 16:18 16
Vestri 12 4 4 4 19:29 16
Þór 12 3 2 7 17:27 11
KV 13 2 1 10 16:34 7
Þróttur V. 13 1 2 10 5:31 5
Markahæstir:
Kjartan Kári Halldórsson, Gróttu ........... 12
Gonzalo Zamorano, Selfossi ....................... 8
Harley Willard, Þór .................................... 8
Stefán Ingi Sigurðarson, HK ..................... 8
Hákon Ingi Jónsson, Fjölni........................ 8
2. deild karla
Haukar – Reynir S ................................... 2:2
KF – KFA ................................................. 4:0
Staðan:
Njarðvík 12 11 1 0 41:9 34
Þróttur R. 12 8 2 2 22:14 26
Ægir 12 8 1 3 23:18 25
Haukar 13 5 5 3 21:15 20
Völsungur 12 5 4 3 24:18 19
KF 13 3 6 4 26:27 15
ÍR 12 4 3 5 19:22 15
KFA 13 4 3 6 22:28 15
Víkingur Ó. 12 3 3 6 21:24 12
Höttur/Huginn 12 2 4 6 15:23 10
Reynir S. 13 1 3 9 13:28 6
Magni 12 1 3 8 10:31 6
Sambandsdeild karla
2. umferð, fyrri leikir:
Molde – Elfsborg ..................................... 4:1
- Björn Bergmann Sigurðarson hjá Molde
er frá keppni vegna meiðsla.
- Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á hjá
Elfsborg á 79. mínútu og Hákon Rafn
Valdimarsson var varamarkvörður liðsins.
SJK Seinäjoki – Lilleström..................... 0:1
- Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á
hjá Lilleström á 70. mínútu.
Sparta Prag – Viking.............................. 0:0
- Patrik Sigurður Gunnarsson markvörð-
ur Vikings og Samúel Kári Friðjónsson
léku allan leikinn.
Levski Sofia – PAOK............................... 2:0
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Breiðablik – Buducnost Podgorica ......... 2:0
Víkingur R. – The New Saints ................ 2:0
Kyzylzhar – Osijek ................................... 1:2
Liepaja – Young Boys.............................. 0:1
Kairat Almaty – Kisvárda ....................... 0:1
Tobol – Lincoln Red Imps ....................... 2:0
Ararat-Armenia – Paide .......................... 0:0
Valmiera – Shkëndija............................... 1:2
Makedonija GP – CSKA Sofia ................ 0:0
Koper – Vaduz .......................................... 0:1
KuPS Kuopio – Milsami .......................... 2:2
Lech Poznan – Dinamo Batumi .............. 5:0
Saburtalo Tbilisi – FCSB ........................ 1:0
Zira – Maccabi Tel Aviv........................... 0:3
Pogon Szczecin – Bröndby ...................... 1:1
Ruzomberok – Riga.................................. 0:3
Suduva – Viborg ....................................... 0:1
Antwerp – Drita ....................................... 0:0
B36 Þórshöfn – Tre Fiori......................... 1:0
Basel – Crusaders .................................... 2:0
Gzira United – Radnicki Nis ................... 2:2
Féhérvár – Gabälä.................................... 4:1
Petrocub – Laci ........................................ 0:0
Rapid Vín – Lechia Gdansk..................... 0:0
St Josephs – Slavia Prag ......................... 0:4
Vorskla Poltava – AIK............................. 3:2
Aris Limassol – Neftchi Baku................. 2:0
CFR Cluj – Inter d’Escaldes .................. 3:0
Hapoel Beer Sheva – Dinamo Minsk ..... 2:1
Istanbul Basaksehir – Netanya .............. 1:1
Aris Saloniki – Gomel............................... 5:1
Racing Lúxemborg – Cuckaricki............ 1:4
Sepsi SF Gheorghe – Ol. Ljubljana........ 3:1
AZ Alkmaar – Tuzla City......................... 1:0
Rijeka – Djurgården................................ 1:2
Spartak Trnava – Newtown .................... 4:1
Velez Mostar – Hamrun Spartans.......... 0:1
Motherwell – Sligo Rovers ...................... 0:1
St Patricks Athletic – Mura .................... 1:1
BATE Borisov – Konyaspor ................... 0:3
Raków – Astana........................................ 5:0
Vllaznia – Universitatea Craiova............ 1:1
Vitoria Guimaraes – Piskás Academy.... 3:0
50$99(/:+0$
8-liða úrslit:
Þýskaland – Austurríki............................ 2:0
_ Þýskaland mætir Frakklandi eða Hol-
landi í undanúrslitum 27. júlí.
8-liða úrslit í kvöld:
Svíþjóð – Belgía ......................................... 19
8-liða úrslit annað kvöld:
Frakkland – Holland................................. 19
Markahæstar á EM:
Beth Mead, Englandi.................................. 5
Alexandra Popp, Þýskalandi ...................... 4
Alessia Russo, Englandi ............................. 3
Grace Geyoro, Frakklandi.......................... 3
Georgia Stanway, Englandi ....................... 2
Ellen White, Englandi ................................ 2
Romée Leuchter, Hollandi ......................... 2
Filippa Angeldahl, Svíþjóð ......................... 2
Lina Magull, Þýskalandi............................. 2
EM KVENNA 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HK er áfram á toppi 1. deildar
karla í fótbolta eftir sigur á Sel-
fyssingum, 2:1, í lykilleik toppbar-
áttunnar á Selfossi í gærkvöld.
Fylkir fylgir fast á eftir en Árbæ-
ingar unnu KV í Vesturbænum,
3:2.
HK er komið með 28 stig í efsta
sætinu og Fylkir er með 27. Liðin
tvö sem féllu úr úrvalsdeildinni síð-
asta haust, eru komin á talsverða
siglingu og hafa tekið skref fram
úr hinum.
Fjölnir er kominn í þriðja sætið
með 23 stig, Grótta er með 22 stig
og Selfoss er nú í fimmta sæti með
21 stig.
Selfyssingar komust yfir gegn
HK strax á 5. mínútu þegar Adam
Örn Sveinbjörnsson skoraði fallegt
skallamark eftir aukaspyrnu, 1:0.
Selfoss fékk vítaspyrnu undir lok
fyrri hálfleiks en Arnar Freyr
Ólafsson markvörður HK varði frá
Gary Martin.
Þetta var vendipunktur leiksins
því á 55. mínútu jafnaði Stefán Ingi
Sigurðarson fyrir HK eftir send-
ingu Birkis Vals Jónssonar og á 69.
mínútu skoraði Arnþór Ari Atlason
sigurmark HK eftir sendingu Stef-
áns Inga, 2:1.
Selfoss fékk aðra vítaspyrnu á
82. mínútu og Ívar Örn Jónsson úr
HK rautt spjald. Gonzalo Zamor-
ano skaut yfir mark HK úr víta-
spyrnunni.
Fylkir vann KV 3:2 í Vest-
urbænum. Magnús Dagbjartsson
og Samúel Kristinsson komu KV
tvisvar yfir í fyrri hálfleiknum en
Nikulás Valur Gunnarsson jafnaði
fyrir Fylki þar á milli.
Arnór Gauti Jónsson og Þórður
Gunnar Hafþórsson skoruðu fyrir
Fylki í síðari hálfleiknum og
tryggðu Árbæingum sigur.
Fjölnir skoraði sex
Fjölnir vann auðveldan sigur á
botnliði Þróttar úr Vogum, 6:0, í
Grafarvogi. Hákon Ingi Jónsson,
Hans Viktor Guðmundsson, Lúkas
Logi Heimisson og Guðmundur Þór
Júlíusson skoruðu í fyrri hálfleik og
Andri Freyr Jónasson og Árni
Steinn Sigursteinsson í þeim síðari.
Afturelding vann Grindavík 5:4 í
ótrúlegum markaleik í Grindavík
þar sem Marciano Aziz skoraði sig-
urmarkið á 89. mínútu.
Javier Ontiveros, Sigurður
Snorrason, Elmar Kári Enesson
Cogic og Jökull Jörvar Þórhallsson
skoruðu hin fjögur mörk Aftureld-
ingar en fyrir Grindavík skoraði
Tómas Leó Ásgeirsson skoraði tvö
mörk, Dagur Ingi Hammer og
Kenan Turudija eitt mark hvor.
Afturelding fór þar með upp fyr-
ir Grindavík og í sjötta sætið með
19 stig en Grindavík er með 17 stig
í sjöunda sætinu.
Tvö víti í súginn
og HK vann
- HK og Fylkir styrktu stöðuna
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Selfoss HK-ingurinn Örvar Eggertsson og Selfyssingurinn Ívan Breki Sig-
urðsson eigast við í leik liðanna sem HK vann 2:1 í gærkvöld.
Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn
Darwin Núnez fór á kostum með
Liverpool í gærkvöld, þegar enska
liðið vann RB Leipzig 5:0 í æfinga-
leik í Þýskalandi. Núnez kom inn á
sem varamaður í hálfleik og skor-
aði fjögur mörk, tvö þeirra á fyrstu
sex mínútunum. Mohamed Salah
skoraði fyrsta mark Liverpool
strax á áttundu mínútu.
Núnez var keyptur til Liverpool
frá Benfica fyrir 64 milljónir punda
og sú upphæð gæti hækkað í 85
milljónir punda ef hann uppfyllir
alla skilmála samningsins.
Skoraði fernu í
seinni hálfleik
AFP/Ronny Hartmann
Liverpool Darwin Núnez fagnar
fjórða marki sínu í gærkvöld.
Uwe Seeler, einn fremsti knatt-
spyrnumaður Þjóðverja á árunum
1955 til 1970, er látinn, 85 ára að
aldri. Seeler lék með Hamburger
SV frá tíu ára aldri og þar til hann
lagði skóna á hilluna árið 1972. Þá
hafði hann skorað 404 mörk í 476
leikjum með aðalliði félagsins. See-
ler tók þátt í fjórum heimsmeistara-
mótum frá 1958-1972 og varð fyrst-
ur í sögunni til að spila 20 leiki í
lokakeppni HM og til að skora á
fjórum heimsmeistaramótum. Alls
lék Seeler 72 landsleiki og skoraði í
þeim 43 mörk.
Uwe Seeler
er látinn
AFP
Markaskorari Uwe Seeler í leik
með Vestur-Þýskalandi á HM 1962.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þýskaland er komið í undanúrslit
Evrópumóts kvenna í knattspyrnu
eftir sigur á Austurríki, 2:0, á
Brentford-leikvanginum í London í
gærkvöld.
Þýska liðið mætir Frakklandi eða
Hollandi í undanúrslitum næsta
miðvikudagskvöld. Þau lið eigast við
í Rotherham annað kvöld, í síðasta
leik átta liða úrslitanna.
Lina Magull kom Þýskalandi yfir
á 26. mínútu eftir sendingu frá
Klöru Bühl og staðan var 1:0 í hálf-
leik.
Upphafsmínútur síðari hálfleiks
voru líflegar en Þýskaland átti
stangarskot eftir 17 sekúndur og
Austurríki sláarskot skömmu síðar.
Þær austurrísku voru áfram hættu-
legar og áttu skot í stöng á 57. mín-
útu.
Fjórða markið frá Popp
Spennan varði fram á lokamín-
útur en þegar rúmlega 89 mínútur
voru liðnar, skoraði Alexandra Popp
sitt fjórða mark á Evrópumótinu og
kom Þjóðverjum í 2:0. Þar með voru
úrslitin ráðin en lið Austurríkis átti
allan tímann möguleika og er það lið
sem hefur komið einna mest á óvart
á þessu Evrópumóti.
Popp hefur skorað í öllum fjórum
leikjum Þýskalands og virðist sem
stendur í baráttu við hina ensku
Beth Mead um markadrottningar-
titilinn. Þýska liðið hefur enn ekki
fengið á sig mark á þessu Evrópu-
móti.
Þriðji leikur átta liða úrslitanna
fer fram í kvöld, þegar Svíþjóð og
Belgía mætast í Leigh, á heimavelli
kvennaliðs Manchester United. Sig-
urliðið í þeim leik mætir Englandi á
þriðjudagskvöldið.
Þær þýsku í undanúrslitin
- Hörkuspennandi leikur gegn Austurríki fram á lokamínútur en 2:0 sigur
AFP/Justin Tallis
Undanúrslit Þýsku leikmennirnir fagna ásamt stuðningsfólki sínu á Brentford-leikvanginum eftir sigurinn í gær.