Morgunblaðið - 22.07.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
_ Varnarmaðurinn öflugi, Þorgils Jón
Svölu Baldursson, leikur áfram með
Íslandsmeisturum Vals í handknattleik
á næsta tímabili en hann hefur gert
nýjan samning við félagið. Horfur voru
á að hann færi til Danmerkur, þar sem
unnusta hans, Lovísa Thompson, hef-
ur samið við Ringköbing en Þorgils
mun leika allavega eitt tímabil í viðbót
með Val.
_ Ben Mee, fyrirliði enska knatt-
spyrnuliðsins Burnley undanfarin ár,
leikur áfram í úrvalsdeildinni þótt lið
hans hafi fallið. Samningur hans rann
út í sumar. Í gær samdi hann við
Brentford um að leika með liðinu á
komandi tímabili.
_ Enski knattspyrnumaðurinn Jesse
Lingard samdi í gær við Nottingham
Forest, nýliðana í úrvalsdeildinni, til
eins árs. Hann var laus allra mála frá
Manchester United, þar sem hann hef-
ur verið á mála frá átta ára aldri. Lin-
gard, sem er 29 ára og hefur leikið 32
landsleiki fyrir England, er ellefti leik-
maðurinn sem Forest fær til sín í sum-
ar.
_ Óvíst er hvort Hanna Glas, einn af
reyndustu leikmönnum sænska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu, geti
leikið með því gegn Belgíu í átta liða
úrslitum EM í kvöld. Hún og Emma
Kulberg greindust með kórónuveiruna
í gær en fara í próf á ný snemma í dag.
_ Kevin De Bruyne skoraði bæði
mörk Manchester City í fyrrinótt þeg-
ar ensku meistararnir í knattspyrnu
unnu Club América frá Mexíkó 2:1 í æf-
ingaleik í Bandaríkjunum.
Gabriel Martinelli, Eddie Nketiah og
Reiss Nelson skoruðu mörk Arsenal
sem vann Orlando City vestanhafs,
3:1, en Everton steinlá fyrir Minnesota
United, 4:0.
_ Senegalski knattspyrnumaðurinn
Sadio Mané var fljótur
að skora sitt fyrsta
mark fyrir
Bayern
München,
sem keypti
hann af Liverpool
á dögunum. Hann
skoraði strax á 5. mín-
útu í fyrsta æfinga-
leiknum, þegar Bayern
sigraði DC United, lið
Waynes Rooney, 6:2
vestanhafs í fyrri-
nótt.
Eitt
ogannað
Morgunblaðið/Árni Sæberg Mor
Kópavogur Úkraínski dómarinn hafði nóg að gera og hér liggur Andrija
Raznatovic á vellinum en var samt á leið af velli með rautt spjald.
EVRÓPUKEPPNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingur og Breiðablik standa vel
að vígi eftir fyrri leikina í annarri
umferð Sambandsdeildar karla í
fótbolta, þar sem bæði lið unnu 2:0
heimasigra í gærkvöld.
Þeir leikir voru þó eins ólíkir og
hugsast gat. Víkingar skoruðu úr
tveimur vítaspyrnum á fyrstu 56
mínútunum gegn The New Saints
frá Wales á meðan Blikar skoruðu
sín tvö mörk á lokamínútunum gegn
Buducnost frá Svartfjallalandi.
Leikurinn á Kópavogsvelli varð
heldur betur sögulegur, því tveir
leikmenn Buducnost voru reknir af
velli í síðari hálfleiknum. Þjálfari
liðsins, Aleksandar Nedovic, fékk
þriðja rauða spjaldið í uppbótartíma
leiksins. Svartfellingarnir verða því
með tvo leikmenn og þjálfarann í
leikbanni í seinni leiknum í Podgo-
rica næsta fimmtudag.
Blikar voru orðnir tveimur mönn-
um fleiri þegar enn voru rúmar 20
mínútur til leiksloka en þeim gekk
illa að brjóta niður níu Svartfell-
inga. Reyndar voru þeir heppnir
þegar gestirnir komust í dauðafæri,
tveimur færri, en Anton Ari Ein-
arsson bjargaði Blikum með því að
verja glæsilega frá Lazar Miljovic
sem komst einn gegn honum. Sann-
kallaður vendipunktur í leiknum.
_ Kristinn Steindórsson kom
Breiðabliki loksins yfir eftir látlausa
pressu, 1:0, á 88. mínútu með góðu
skoti í hægra hornið. Þar með jafn-
aði hann markamet Ellerts Hreins-
sonar fyrir Breiðablik í Evr-
ópukeppni en þeir hafa nú báðir
gert fjögur mörk fyrir félagið á
þessum vettvangi.
_ Höskuldur Gunnlaugsson lagði
upp markið fyrir Kristin og hann
skoraði síðan úr vítaspyrnu í upp-
bótartímanum eftir að Oliver Sig-
urjónsson var felldur. Þriðja Evr-
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Fossvogur Kristall Máni Ingason skoraði bæði mörk Víkinga í gærkvöld af
vítapunktinum og hér sækir hann að marki Walesbúanna.
ópumark Höskuldar fyrir Breiða-
blik en hann, Árni Vilhjálmsson og
Gísli Eyjólfsson eru þar jafnir með
þrjú mörk hver.
_ Blikar hafa nú unnið fleiri leiki
en þeir hafa tapað í Evrópukeppni
og eru eina íslenska karlaliðið í
þeirri stöðu. Þeir hafa unnið tíu og
tapað níu af 24 Evrópuleikjum sín-
um.
Þegar leikurinn var flautaður af
gerðu leikmenn og starfsmenn Bu-
ducnost sig líklega til að veitast að
Damir Muminovic, leikmanni
Breiðabliks, en þeir voru strax
stöðvaðir af lögreglu á vellinum.
Komist Blikar áfram, mæta þeir
annað hvort Istanbul Basaksehir
frá Tyrklandi eða Maccabi Netanya
frá Ísrael, sem gerðu 1:1 jafntefli í
Tyrklandi í gærkvöld.
Mörk í öllum Evrópuleikjum
Ingvar Jónsson markvörður
bjargaði Víkingum með frábærri
markvörslu eftir slæm varn-
armistök strax á annarri mínútu
leiksins.
Víkingar tóku hins vegar völdin á
vellinum fljótlega eftir það og unnu
verðskuldaðan sigur, þar sem þeir
hefðu getað skorað fleiri mörk.
_ Kristall Máni Ingason skoraði
úr vítaspyrnu á 29. mínútu eftir að
brotið var á Ara Sigurpálssyni.
_ Kristall Máni skoraði aftur úr
vítaspyrnu en þá var brotið á hon-
um sjálfum, að mati dómarans.
_ Kristall Máni hefur nú skorað í
öllum fjórum Evrópuleikjunum sem
hann hefur spilað fyrir Víking, sam-
tals fimm mörk. Hann er marka-
hæstur Víkinga í Evrópukeppni frá
upphafi.
_ Íslensk lið hafa nú unnið alla
níu leiki sína gegn liðum frá Wales í
Evrópukeppni.
Víkingar mæta nær örugglega
Lech Poznan frá Póllandi ef þeir
komast áfram en Lech vann Di-
namo Batumi frá Georgíu 5:1 í gær-
kvöld.
Hasar á Kópavogsvelli
- Þrjú rauð spjöld á lið Buducnost - Blikar skoruðu tvisvar í lokin og unnu 2:0
- Víkingar unnu velsku meistarana 2:0 með tveimur vítaspyrnum Kristals
Argentínski körfuknattleiksmað-
urinn Pablo César Bertone hefur
skrifað undir nýjan tveggja ára
samning við Íslandsmeistara Vals.
Bertone, sem er 32 ára bakvörður,
kom til Vals frá Haukum fyrir síð-
asta tímabil og var lykilleikmaður
er liðið varð Íslandsmeistari. Hann
skilaði 15 stigum, tók fimm fráköst
og gaf fimm stoðsendingar að með-
altali í 33 leikjum fyrir félagið á síð-
asta tímabili. Bertone lék áður með
liðum í Argentínu, á Spáni og Ítalíu
en hann er með tvöfalt ríkisfang,
argentínskt og ítalskt.
Bertone áfram
á Hlíðarenda
Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson
Valsmaður Pablo Cesar Bertone
samdi til tveggja ára í viðbót.
Norah Jeruto vann í fyrrinótt
fyrstu gullverðlaun Kasakstan á
heimsmeistaramóti í frjálsíþróttum
þegar hún vann sannfærandi sigur í
3.000 metra hindrunarhlaupi
kvenna á 8:53,02 mínútum, og setti
um leið mótsmet. Þá er þetta þriðji
besti tími sögunnar í greininni. Je-
ruto, sem er 26 ára gömul og fyrr-
verandi Afríkumeistari í greininni,
er frá Kenía og er á sínu fyrsta
keppnisári sem Kasaki. Hún missti
af Ólympíuleikunum á síðasta ári
þar sem hún var ekki orðin gjald-
geng með Kasakstan.
Fyrstu gullverð-
laun Kasakstan
AFP/Jewel Samad
Heimsmeistari Norah Jeruto með
fána sinnar nýju þjóðar.
BREIÐAB. – BUDUCNOST 2:0
1:0 Kristinn Steindórsson 88.
2:0 Höskuldur Gunnlaugsson 90.(v)
Rautt spjald: Andrija Raznatovic (Bu-
ducnost) 55., Luka Mirkovic (Buduc-
nost) 69., Aleksandar Nedovic (Buduc-
nost/þjálfari) 90.
Dómari: Denys Shurman, Úkraínu.
Áhorfendur: Um 1.000.
Breiðablik: (4-3-3) Mark: Anton Ari
Einarsson. Vörn: Höskuldur Gunn-
laugsson, Damir Muminovic, Viktor Örn
Margeirsson, Davíð Ingvarsson, Anton
Ari Einarsson. Miðja: Viktor Karl Ein-
arsson, Oliver Sigurjónsson, Gísli Eyj-
ólfsson. Sókn: Jason Daði Svanþórsson
(Omar Sowe 80), Dagur Dan Þórhalls-
son (Kristinn Steindórsson 74), Ísak
Snær Þorvaldsson.
VÍKINGUR – TNS 2:0
1:0 Kristall Máni Ingason 29.(v)
2:0 Kristall Máni Ingason 57.(v)
Dómari: Peter Kralovic, Slóvakíu.
Áhorfendur: Um 800.
Víkingur R.: (4-4-2) Mark: Ingvar Jóns-
son. Vörn: Karl Friðleifur Gunnarsson,
Kyle McLagan, Oliver Ekroth, Logi
Tómasson. Miðja: Erlingur Agnarsson,
Pablo Punyed, Júlíus Magnússon, Ari
Sigurpálsson (Nikolaj Hansen 77).
Sókn: Kristall Máni Ingason, Birnir
Snær Ingason (Helgi Guðjónsson 77).
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Grafarvogur: Fjölnir – HK.................. 18.30
Víkin: Víkingur – FH ........................... 19.15
Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Fylkir ..... 19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Safamýri: Kórdrengir – Þór ................ 19.15
2. deild karla:
Njarðvík: Njarðvík – Þróttur R .......... 19.15
3. deild karla:
Fagrilundur: Augnablik – Elliði ......... 19.15
Garður: Víðir – KFG ............................ 19.15
2. deild kvenna:
Seltjarnarnes: Grótta – ÍA .................. 19.15
Grýluvöllur: Hamar – KÁ.................... 19.15
GOLF
Keppni í 1. deild kvenna á Íslandsmóti golf-
klúbba 2022 hófst í gær og lýkur á morgun.
Keppt er á Hlíðavelli í Mosfellsbæ og Korp-
úlfsstaðavelli og í dag hefst fyrsta viður-
eign klukkan 8.00 en þá er lokaumferð
riðlakeppninnar á dagskrá. Undanúrslitin
hefjast um hádegi.
Í KVÖLD!