Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
Þín upplifun
skiptir okkur máli
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Við tökum vel á móti þér
Fjölbreyttur og spennandi
matseðill þar sem allir
finna eitthvað við sitt hæfi
Skoðið matseðilinn á
finnssonbistro.is
Tónlistarhátíðin Mannfólkið breyt-
ist í slím fer nú fram í fimmta sinn,
en hún stendur í dag og á morgun.
„Það er listakollektívið MBS sem
stendur að hátíðinni en verkefnið
hefur vaxið ört síðan því var fyrst
ýtt úr vör árið 2018. Hingað til hafa
tónleikarnir farið fram í og við höf-
uðstöðvar MBS í Gúlaginu á Odd-
eyri en í ár verður breyting þar á
því hátíðin Mannfólkið breytist í
slím 2022 verður haldin í stærðar-
innar iðnaðarrými á Óseyri 16.
Markmið hátíðarinnar er að gefa
jaðarkúltúr aukið vægi í flóru
menningarviðburða á Akureyri og
tengja tónlistarsenu bæjarins betur
við aðra landshluta. Að auki hefur
alltaf verið farin sú leið að halda
Mannfólkið breytist í slím utan
hefðbundinna tónleikastaða, sem
skapar einstaka stemningu og
skemmtilegri minningar fyrir bæði
gesti og listafólk. Sérstök áhersla
er einnig lögð á fjölbreytileika
atriða en fram kemur víð flóra tón-
listarfólks frá öllum heims-
hornum,“ segir í tilkynningu.
Á hátíðinni í ár koma fram Anna
Richardsdóttir sem er verndari
MBS 2022, Ari Orrason, Brenndu
bananarnir, Dimensión afrolatina,
dj flugvél og geimskip, Dream the
name, Drengurinn fengurinn,
Drinni & the Dangerous Thoughts,
Elli grill, Miomantis, Kjass, Ragga
rix, Skrattar, Svartþoka og
Volcanova.
Sem fyrr er aðgangur að hátíð-
inni ókeypis, en „tekið er við frjáls-
um framlögum sem renna beint í að
styðja verkefnið og tryggja framtíð
þess. Þannig ráða gestir hvort og
hversu mikið þeir vilja greiða í
aðgangseyri,“ segir í tilkynningu.
Allar nánari upplýsingar um
MBS og dagskrána má nálgast á
samfélagsmiðlasíðunum insta-
gram.com/mbsskifur og facebook.-
com/mbsskifur.
Jaðarkúltúr fái aukið
vægi í flóru Akureyrar
- Mannfólkið breytist í slím í 5. sinn
Stuð Trymbill á fyrri hátíð MBS.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Segja má að fegurðin sé í for-
grunni,“ segir Þórunn Ósk Marinós-
dóttir sem stýrir Reykholtshátíð
ásamt Sigurði Bjarka Gunnarssyni.
Hátíðin fer fram í Reykholtskirkju,
hefst í kvöld, föstudaginn 22. júlí, og
lýkur á sunnudag, 24. júlí.
Þórunn segir tónlistina sem á dag-
skrá verði vera hljómfagra og ekki
mjög átakamikla. Þar fái sveitaróm-
antíkin að skína í gegn.
„Hátíðin er fyrst og fremst smíð-
uð í kringum klassíska kammer-
tónlist, þannig að það eru alltaf stór
kammerverk.“ Að þessu sinni verða
á dagskrá strengjakvintett eftir
Mozart og strengjasextett eftir
Dvorák, tríó eftir Weber og píanó-
kvartett eftir Beethoven.
„Svo erum við með mörg íslensk
sönglög, bæði eftir Jón Leifs, Jór-
unni Viðar og Atla Heimi Sveinsson.
Það rímar vel við sveitina og sum-
arið,“ segir Þórunn.
„Það er mjög gaman að flétta
þessu saman, íslenskum sönglögum
við gömlu meistarana í kammer-
músíkinni. Svo erum við líka með
inni á milli samtímatónlist, tríó eftir
Karólínu Eiríksdóttur og tvo dúetta
sem Miller-Porfiris dúettinn flytur.“
Hinir erlendu gestir, Anton Miller
og Rita Porfiris, eru bandarísk hjón
sem starfa þar í landi. Þórunn segir
þau vera mikla Íslandsvini og
hyggja á flutning hingað til lands.
„Svo það verður gaman fyrir áheyr-
endur að kynnast þeim. Þau hafa
komið hingað reglulega síðustu tíu
ár svo þau eru farin að þekkja vel til
og tengjast tónlistarlífinu alltaf
meira og meira.“
Þau munu leika tvo dúetta sem
samdir hafa verið séstaklega fyrir
þau, annan eftir Errollyn Wallen og
hinn eftir Paulu af Malmborg Ward.
„Svo verðum við með eitt selló-
sólóverk eftir Huga Guðmundsson.
Þessi nútímaverk eru eins og krydd
með hinu og það er gaman að blanda
þessu svona saman.“
Listrænu stjórnendurnir koma
einnig fram á hátíðinni, Þórunn leik-
ur á víólu og Sigurður Bjarki á selló.
Aðrir flytjendur hátíðarinnar að
þessu sinni eru Oddur Arnþór Jóns-
son barítónsöngvari, Auður Haf-
steinsdóttir og Laura Liu á fiðlur,
Sigurgeir Agnarsson á selló, Berg-
lind Stefánsdóttir á flautu og Nína
Margrét Grímsdóttir á píanó.
„Það eru ákveðnir vinir Reykholts
sem koma aftur og aftur,“ segir Þór-
unn og bætir við að það sé gaman að
hafa blandaðan hóp, erlenda gesti og
Íslendinga sem búsettir séu erlendis
í bland við þá sem hafa komið fram á
hátíðinni ár eftir ár.
Alls verða fernir tónleikar á hátíð-
inni. Upphafstónleikarnir verða í
kvöld, föstudag, kl. 20. Þar mun
Oddur Arnþór flytja ljóðaflokkinn
Dichterliebe eftir Robert Schumann
ásamt Nínu Margréti. Auk þess
verður flutt tríó eftir Karólínu
Eiríksdóttur og strengjakvintett
eftir Mozart.
Fagna vígsluafmælinu
Á morgun, laugardag, eru tvennir
tónleikar kl. 16 og 20. Á þeim fyrri
verða fluttar kammerperlur eftir
Weber og Dvorák. Á kvöldtónleik-
unum mun Oddur Arnþór flytja
íslensk sönglög eftir Jórunni Viðar
og Jón Leifs en auk þess verða flutt
kammerverk eftir Mozart og
Strauss. Á efnisskrá hvorra tveggja
tónleikanna má finna ný verk í flutn-
ingi Miller-Porfiris dúósins. Á loka-
tónleikum hátíðarinnar, á sunnudag
kl. 16, verður fluttur píanókvartett
eftir Beethoven, flautukvartett eftir
Rossini, sellóverk eftir Huga Guð-
mundsson og gamanvísur eftir Atla
Heimi Sveinsson.
„Reykholtshátíð er alltaf haldin
sömu helgi og haldið er upp á vígslu-
afmæli kirkjunnar. Hátíðin og kirkj-
an eru jafn gömul og hátíðin haldin í
tilefni af vígsluafmælinu öll þessi
ár.“ Vígsluafmælinu verður fagnað
með hátíðarmessu sunnudaginn 24.
júlí kl. 14. Þór Magnússon, fyrver-
andi þjóðminjavörður, mun einnig
halda fyrirlestur um merka kirkju-
gripi í Borgarfjarðarhéraði í Snorra-
stofu á morgun, laugardag, kl. 13.
„Það er náttúrulega dásamlegt að
koma í Reykholt. Það er svo góður
andi á staðnum. Ég veit ekki hvort
það er andi Snorra Sturlusonar sem
svífur yfir vötnum en það er eitthvað
átakalaust í andrúmsloftinu. Það er
alltaf mjög svo gott að koma þangað
og vel tekið á móti manni af fólkinu á
staðnum. Svo er náttúrulega frá-
bært að spila í þessari kirkju af því
að hljómburðurinn er svo góður.“
Nánari upplýsingar um dagskrá
hátíðarinnar og miðasölu er að finna
á vef hátíðarinnar á slóðinni:
reykholtshatid.is.
Morgunblaðið/Hákon
Æfing Flytjendur á Reykholtshátíð eru frá vinstri: Sigurgeir Agnarsson, Auður Hafsteinsdóttir, Laura Liu, Sigurður Bjarki Gunnarsson, Anton Miller, Rita
Porfiris, Nína Margrét Grímsdóttir, Berglind Stefánsdóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir. Söngvarann Odd Arnþór Jónsson vantar á myndina.
Átakalaus fegurð í Reykholti
- Hljómfögur sveitarómantík verður í forgrunni á Reykholtshátíð - Klassísk kammertónlist í bland
við íslensk sönglög og nýrri verk - Listrænn stjórnandi segir alltaf dásamlegt að koma í Reykholt