Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
96%
CHRIS
HEMSWORTH
CHRISTIAN
BALE
TESSA
THOMPSON
TAIKA
WAITITI
RUSSELL
WITH CROWE
NATALIE
AND PORTMAN
HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR
82%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
»Saxófónleikarinn
Tumi Árnason og
trymbillinn Magnús
Trygvason Eliassen
héldu uppi sumarstemn-
ingu á tónleikum í
Mengi fyrr í vikunni.
Þeir félagar sendu frá
sér sína fyrstu plötu
2019, Allt er ómælið, við
einstaklega góðar
undirtektir. Þeir eru nú
með nýja plötu í vinnslu.
Sumartónleikar í Mengi vel sóttir í vikunni
Einbeittar Brynja Hjálmsdóttir og Ástríður Jónsdóttir. Afslöppuð Sigurrós Jóhannesdóttir og Hilmir Árnason.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Athygli Áheyrendur hlustuðu af mikilli athygli á tónlistina í Mengi.
Hrifnar Anna Sóley Ásmundsdóttir og Lilja María
Ásmundsdóttir voru meðal tónleikagesta í Mengi.
Stemning Saxófónleikarinn Tumi Árnason og trymbill-
inn Magnús Trygvason Eliassen voru í góðum fíling.
Popplistamaðurinn Claes Olden-
burg, sem þekktastur er fyrir lit-
ríka stóra útiskúlptúra sína af
hversdagslegum hlutum, er látinn
93 ára að aldri. Í frétt The Guardi-
an er haft eftir Maartje Oldenburg,
dóttur hans, að hann hafi verið
heilsuveill síðan hann datt fyrir um
mánuði og mjaðmarbrotnaði.
Oldenburg fæddist í Stokkhólmi
1929, en eyddi stórum hluta
bernsku sinnar í Chicago þar sem
faðir hans starfaði hjá sænska
sendiráðinu. Oldenburg nam við
Yale og Art Institute of Chicago.
Um miðja síðustu öld settist hann
síðan að í New York og fékk banda-
rískan ríkisborgararétt.
Oldenburg vann í um þrjá ára-
tugi með Coosje van Bruggen,
seinni konu sinni, þar til hún lést í
upphafi árs 2009. Á þeim árum
sköpuðu þau hjónin yfir fjörutíu
opinbera skúlptúra fyrir garða og
listasöfn. Yfirleitt sýna þessi verk
hversdagslega hluti, sem öðlast
aðra merkingu þegar þeir eru
stækkaðir gríðarlega.
Morgunblaðið/Einar Falur
Tákn borgarinnar Spoonbridge and Cherry eftir hjónin Claes Oldenburg og
Coosje van Bruggen er kunnasta verkið í skúlptúragarði Minneapolis.
Claes Oldenburg látinn 93 ára
Ítalska lögreglan kom nýverið í veg
fyrir að málverkið „Caritas Rom-
ana“, sem Artemisia Gentileschi
málaði á 17. öld, yrði selt á uppboði
til kaupanda utan Ítalíu. Í frétt The
Guardian um málið kemur fram að
seljandinn hafi reynt að villa um
fyrir yfirvöldum til að fá leyfi fyrir
því að selja verkið úr landi með því
að segja að lærlingur hjá Gentil-
eschi hafi málað verkið, en ekki
listakonan sjálf. Slíkt er ólöglegt
samkvæmt ítölskum lögum.
Gentileschi er langfrægasti kven-
kyns listmálari ítalska barokksins.
Verkin sem hún málaði snemma á
ferli sínum þykja vera undir sterk-
um áhrifum frá Caravaggio, sem er
sá dáðasti af öllum listmálurum
barokktímans. Gentileschi átti fjög-
urra áratuga feril þar sem hún
starfaði í Flórens, Napolí, Fen-
eyjum og Róm, en um tíma var hún
einnig hirðmálari í London.
Ítalska lögreglan stöðvaði söluna
Bjargað Caritas Romana sem Arte-
misia Gentileschi málaði á 17. öld.