Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 32

Morgunblaðið - 22.07.2022, Side 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Prins Póló og Moses Hightower hafa átt í nánu sam- starfi undanfarið, gefið út lög, leikið saman á tón- leikum og drukkið heilmikið af kaffi, að því er segir í til- kynningu. „Nú er komið að því að henda í almennilegan hljómleik fyrir íbúa höfuðborgarinnar og gesti hennar og mun hann fara fram í Gamla bíói í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er um standandi partí að ræða þó svo alltaf megi fótalúnir tylla sér á svölunum, þar sem er ágætis útsýni yfir sviðið,“ segir í tilkynningu frá skipu- leggjendum. Miðar fást á tix.is. Prins Póló og Moses Hightower koma fram í Gamla bíói í kvöld FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Þýskaland er komið í undanúrslitin á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu eftir torsóttan sigur á Austurríki, 2:0, í London í gærkvöld. Úrslitin réðust ekki fyrr en undir lok leiksins, þegar Alexanda Popp skoraði annað mark Þjóðverja og sitt fjórða mark í keppninni. »26 Þýskaland komið í undanúrslitin ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fjallaferðir á fallegum sumar- dögum eru ævintýri. Í þeim verða til skemmtilegar minningar sem koma sér vel á veturna þegar hversdagsleikinn er ráðandi og myrkur yfir. Ég er alveg sem nýr maður eftir daga á hálendinu,“ seg- ir Ingi Berg Ingason tæknifræð- ingur í Reykjavík. Í Landmanna- laugum í síðustu viku hitti blaða- maður Inga, sem þar var með stórum vinahópi sem þar hélt til í nokkra daga – og fór í gönguferðir. Náttúrufar á þessum slóðum er stórbrotið og því margt að sjá og skoða. Fólk undi sér því vel, enda þótt sum væru ofurlítið móð og þreytt eftir langan dag á fjöllum. Slík þreyta er þó að flestra mati endurnærandi. Uppgönguhryggur og Jökulgil Í hópnum góða, sem Ingi Berg og Anna Lísa Hassing eiginkona hans tilheyra, er fólk sem hefur tengsl við Stykkishólm eða á þar rætur. Flest eru búsett nú á höfuðborgar- svæðinu og ein af hefðum hópsins er að fara saman í gönguferðir. Þær eru 2-3 í mánuði – og fólk er því í þokkalegu formi á sumrin þegar kemur að krefjandi fjallabrölti. „Veðrið var einstakt og ferðin nánast fullkomin,“ segir Ingi Berg um lengstu göngu hópsins í Land- mannalaugum. Þaðan var lagt upp klukkan tíu á morgni og fyrst geng- ið á fjallið Skalla, þaðan var farið um Uppgönguhrygg og á Græna- hrygg – og svo gengið aftur í Laug- ar fram um Jökulgil. Þetta var hringur, alls 21 kílómetri, og gang- an tók alls tíu klukkustundir. Gullið glóir „Hvergi á landinu hef ég séð jafn sterka liti í landinu og þarna við Landmannalaugar, þar sem heitir Friðland að Fjallabaki. Líparítið er áberandi og er í sólskini eins og gló- andi gull. Gróður þarna er kannski ekki mikill, en er harðgerður og leynir mjög á sér. Staðirnir eru margir þar sem maður stoppar og er hugfanginn. Horfir yfir og segir: Vá. Myndirnar sem maður tekur á símann sinn í svona ferðum eru því margar,“ segir Ingi, sem með sínu fólki fór Laugaveginn á síðasta ári. Þá voru margir á fjöllum en enn fleiri nú. Öllum ber saman um að ferðasumarið 2022 sé frábært – og og lifir þó enn rúm vika af júlí- mánuði. „Sumarið er tíminn til að gera skemmtilega hluti,“ segir Ingi Berg sem með fjölskyldunni var í gær kominn norður í Eyjafjörð til að njóta og lifa lífinu. Í næstu viku er svo ætlunin að fara í Skaftafell og ganga þar upp um fjöll og firnindi – og skapa með því góðar minningar. Ljósmynd/Ingi Berg Ingason Fjallganga Sól í heiði og sumar í algleymingi. Fólk stillti sér upp í röð áður en lagt var á brattann upp á hæsta tind. Fullkomið í fjallaferð - Fóru í langar göngur í Land- mannalaugum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Göngumaður Ingi Berg Ingason er staddur í Eyjafirði ásamt fjölskyldu. Ljósmynd/Ingi Berg Ingason Náttúra Horft fram Jökulgil, þar sem eru einstakir litir í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.