Morgunblaðið - 22.07.2022, Qupperneq 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Prins Póló og Moses Hightower hafa átt í nánu sam-
starfi undanfarið, gefið út lög, leikið saman á tón-
leikum og drukkið heilmikið af kaffi, að því er segir í til-
kynningu. „Nú er komið að því að henda í almennilegan
hljómleik fyrir íbúa höfuðborgarinnar og gesti hennar
og mun hann fara fram í Gamla bíói í kvöld. Tónleikarnir
hefjast kl. 21 og er um standandi partí að ræða þó svo
alltaf megi fótalúnir tylla sér á svölunum, þar sem er
ágætis útsýni yfir sviðið,“ segir í tilkynningu frá skipu-
leggjendum. Miðar fást á tix.is.
Prins Póló og Moses Hightower
koma fram í Gamla bíói í kvöld
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Þýskaland er komið í undanúrslitin á Evrópumóti
kvenna í knattspyrnu eftir torsóttan sigur á Austurríki,
2:0, í London í gærkvöld. Úrslitin réðust ekki fyrr en
undir lok leiksins, þegar Alexanda Popp skoraði annað
mark Þjóðverja og sitt fjórða mark í keppninni. »26
Þýskaland komið í undanúrslitin
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fjallaferðir á fallegum sumar-
dögum eru ævintýri. Í þeim verða
til skemmtilegar minningar sem
koma sér vel á veturna þegar
hversdagsleikinn er ráðandi og
myrkur yfir. Ég er alveg sem nýr
maður eftir daga á hálendinu,“ seg-
ir Ingi Berg Ingason tæknifræð-
ingur í Reykjavík. Í Landmanna-
laugum í síðustu viku hitti blaða-
maður Inga, sem þar var með
stórum vinahópi sem þar hélt til í
nokkra daga – og fór í gönguferðir.
Náttúrufar á þessum slóðum er
stórbrotið og því margt að sjá og
skoða. Fólk undi sér því vel, enda
þótt sum væru ofurlítið móð og
þreytt eftir langan dag á fjöllum.
Slík þreyta er þó að flestra mati
endurnærandi.
Uppgönguhryggur og Jökulgil
Í hópnum góða, sem Ingi Berg og
Anna Lísa Hassing eiginkona hans
tilheyra, er fólk sem hefur tengsl
við Stykkishólm eða á þar rætur.
Flest eru búsett nú á höfuðborgar-
svæðinu og ein af hefðum hópsins
er að fara saman í gönguferðir. Þær
eru 2-3 í mánuði – og fólk er því í
þokkalegu formi á sumrin þegar
kemur að krefjandi fjallabrölti.
„Veðrið var einstakt og ferðin
nánast fullkomin,“ segir Ingi Berg
um lengstu göngu hópsins í Land-
mannalaugum. Þaðan var lagt upp
klukkan tíu á morgni og fyrst geng-
ið á fjallið Skalla, þaðan var farið
um Uppgönguhrygg og á Græna-
hrygg – og svo gengið aftur í Laug-
ar fram um Jökulgil. Þetta var
hringur, alls 21 kílómetri, og gang-
an tók alls tíu klukkustundir.
Gullið glóir
„Hvergi á landinu hef ég séð jafn
sterka liti í landinu og þarna við
Landmannalaugar, þar sem heitir
Friðland að Fjallabaki. Líparítið er
áberandi og er í sólskini eins og gló-
andi gull. Gróður þarna er kannski
ekki mikill, en er harðgerður og
leynir mjög á sér. Staðirnir eru
margir þar sem maður stoppar og
er hugfanginn. Horfir yfir og segir:
Vá. Myndirnar sem maður tekur á
símann sinn í svona ferðum eru því
margar,“ segir Ingi, sem með sínu
fólki fór Laugaveginn á síðasta ári.
Þá voru margir á fjöllum en enn
fleiri nú. Öllum ber saman um að
ferðasumarið 2022 sé frábært – og
og lifir þó enn rúm vika af júlí-
mánuði.
„Sumarið er tíminn til að gera
skemmtilega hluti,“ segir Ingi Berg
sem með fjölskyldunni var í gær
kominn norður í Eyjafjörð til að
njóta og lifa lífinu. Í næstu viku er
svo ætlunin að fara í Skaftafell og
ganga þar upp um fjöll og firnindi –
og skapa með því góðar minningar.
Ljósmynd/Ingi Berg Ingason
Fjallganga Sól í heiði og sumar í algleymingi. Fólk stillti sér upp í röð áður en lagt var á brattann upp á hæsta tind.
Fullkomið í fjallaferð
- Fóru í langar
göngur í Land-
mannalaugum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Göngumaður Ingi Berg Ingason er
staddur í Eyjafirði ásamt fjölskyldu.
Ljósmynd/Ingi Berg Ingason
Náttúra Horft fram Jökulgil, þar
sem eru einstakir litir í landinu.