Morgunblaðið - 16.07.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022
Í vikunni var kosin ný stjórn í al-
menningshlutafélagið Festi hf.
á sérstökum hluthafafundi sem
haldinn var vegna óánægju hlut-
hafa með það hvernig staðið hafði
verið að brott-
vikningu forstjóra
félagsins og kynn-
ingu á brottvikn-
ingunni. Óánægj-
an var skiljanleg
og varð til þess að
meirihluta stjórnar, þremur af
fimm, var skipt út.
- - -
Þó að stjórnarkjörið hafi ekki
komið til af góðu er þó já-
kvætt að kosið var í stjórnina. Allt
of algengt er í félögum skráðum í
Kauphöllina að hluthafar fái ekki
að segja skoðun sína um stjórnar-
menn. Innan félaganna starfa til-
nefningarnefndir, gjarnan skip-
aðar eða tilnefndar af stjórn og
með stjórnarmann/frambjóðanda
innanborðs, sem leggja mat á þá
sem hafa hug á stjórnarsetu og til-
nefna svo jafn marga og stjórnar-
sætin eru í félaginu. Að þessu
sinni voru fleiri tilnefndir en
stjórnarsætin fimm, þó ekki allir
sem gáfu kost á sér, ekki allir sem
hæfir voru til stjórnarsetunnar og
ekki allir sem kosnir voru í stjórn-
ina.
- - -
Allt er þetta umhugsunarvert
og mætti að ósekju verða til
að almenningshlutafélög endur-
hugsi starfsemi tilnefningar-
nefnda og almennt umgjörð í
kringum stjórnarkjör og stjórnir.
Nauðsynlegt er að eigendur félag-
anna, hluthafarnir, hafi sem mest
um stjórn þeirra að segja og eigi
raunverulega möguleika á að
kjósa þá stjórnarmenn sem þeir
telja best til stjórnarsetu fallna.
- - -
Tilnefningarnefndir eða stjórnir
mega ekki vera ráðandi um
það hverjir eru fulltrúar hluthafa
í stjórnum.
Tilnefningar-
lýðræðið
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Georgiana Pogonaru, ræðismaður
Íslands í Rúmeníu og forseti menn-
ingarfélagsins Arfleifð framtíðar,
segir ungum Íslendingum velkomið
að sækja um að gerast sjálfboðaliðar
vegna menningarstarfs í Rúmeníu.
Nánar tiltekið býðst ungum
fræðimönnum og nemum, sem eru
20 til 32 ára, að gerast sjálfboðaliðar
í verkefnum sem tengjast varðveislu
menningarminja.
Styrkir vegna kostnaðar
Umsóknarfrestur er til og með 5.
ágúst en veittir eru styrkir vegna
útlagðs kostnaðar, líkt og útskýrt er
á vefsíðu Mihai Eminescu-sjóðsins
(MET) en vefslóðin er mihai-
eminescutrust.ro. Segir þar að yfir-
leitt greiði viðkomandi verkefni á
vegum sjóðsins kostnað vegna sam-
gangna, gistingar og fæðis.
Georgiana segir menningarfélagið
Arfleifð framtíðar leggja verkefninu
lið í samstarfi við Mihai Eminescu-
sjóðinn og bæjarstjórn Viscri en það
er sögufrægt þorp í Transylvaníu.
Markmið verkefnisins er meðal
annars að afla þátttakendum
reynslu af stjórn og verndun menn-
ingarminja en Viscri er á heims-
minjaskrá UNESCO.
Tengist starfi UNESCO
Umrætt starf tengist verkefni
sem ýtt var úr vör 2008 (e. World
Heritage Volunteers) en það er aft-
ur tengt Mennta-, vísinda- og menn-
ingarmálastofnun Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO). Miðar verkefnið
að því að virkja ungmenni og ung-
liðasamtök í verndun sögulegra
minja.
Íslendingum
boðið til Rúmeníu
- Auglýst er eftir sjálfboðaliðum
Ljósmynd/Heritage for the Future
Í Viscri Námsmönnum er boðið að
fræðast um menningarminjar ytra.
Sveitarfélögin eru enn að ráða til sín
nýja bæjarstjóra að loknum kosning-
unum í vor. Geir Sveinsson, hand-
knattleikskappi, fv. leikmaður og
þjálfari, hefur verið ráðinn bæjar-
stjóri í Hveragerði og í gær tilkynnti
nýr meirihluti í Fjallabyggð um
ráðningu Sigríðar Ingvarsdóttur
sem bæjarstjóra þar.
Alls sóttu 22 einstaklingar um
starfið í Fjallabyggð, átta umsækj-
endur drógu umsóknir sínar til baka.
Sigríður er fyrrverandi forstjóri Ný-
sköpunarmiðstöðvar Íslands, eins
hefur hún átt sæti á Alþingi og setið í
bæjarstjórn á árum áður. Sigríður er
m.a. með MBA-gráðu frá Háskóla
Íslands og diploma-gráðu í opinberri
stjórnsýslu.
Um bæjarstjórastarfið í Hvera-
gerði sóttu 23 en fjórir drógu um-
sókn sína til baka. Meirihluti bæjar-
stjórnar mun leggja fram tillögu á
næsta bæjarstjórnarfundi um að
Geir Sveinsson verði ráðinn sem
bæjarstjóri og á hann að hefja störf í
byrjun næsta mánaðar.
Geir hefur verið sjálfstætt starf-
andi síðustu tvö ár. Hann er með
MBA-próf frá Háskóla Íslands auk
menntunar í markaðssetningu á net-
inu og meistaragráðu í þjálfun. Geir
er Íslendingum vel kunnur sem einn
besti handboltamaður sögunnar.
Þjálfaði landsliðið um tíma og var
þjálfari í Þýskalandi í nokkur ár.
Geir og Sigríður nýir bæjarstjórar
- Geir Sveinsson ráðinn í Hveragerði - Sigríður Ingvarsdóttir í Fjallabyggð
Geir
Sveinsson
Sigríður
Ingvarsdóttir