Morgunblaðið - 16.07.2022, Page 16
Atvinnuleysi í niðursveiflum
Bankakreppan 2008 Kórónuveirufaraldurinn*
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
jan. 2020 maí 2022okt. 2008 maí 2013
Heimild: Vinnumálastofnun
*Án hlutabóta
3,9%4,9%
9,3%
11,6%
16 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga
til og með 15. júlí 2022, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2022 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí
2022, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta
launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa
markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. júlí 2022
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
16. júlí 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.83
Sterlingspund 164.26
Kanadadalur 105.53
Dönsk króna 18.663
Norsk króna 13.546
Sænsk króna 13.101
Svissn. franki 141.14
Japanskt jen 0.999
SDR 181.49
Evra 138.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.4608
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vignir Ö. Hafþórsson, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, segir at-
vinnuleysi víða um land vera undir
náttúrulegu atvinnuleysi og þar sé
nær að tala um
skort á vinnuafli.
Samkvæmt
júnískýrslu
Vinnumálastofn-
unar var innan
við 2% atvinnu-
leysi í þremur
landshlutum og
rétt rúmlega 2%
atvinnuleysi á
Suðurlandi og
Norðurlandi
eystra (sjá graf). „Ef atvinnuleysi
mælist 1-2% er það að mínu mati
þenslumerki og bendir til skorts á
vinnuafli,“ segir Vignir.
Þurfa aðflutt vinnuafl
Spurður hvort það eigi þátt í litlu
atvinnuleysi í sumum landshlutum
að aðflutt starfsfólk hafi flutt á
brott í faraldrinum segir Vignir
erfitt að segja til um það. Hitt sé
ljóst að þegar atvinnuleysið mælist
svo lítið þurfi aðflutt vinnuafl til að
manna stöður, ekki síst í ferðaþjón-
ustu.
Heldur meira atvinnuleysi er á
höfuðborgarsvæðinu (3,7%) og á
Suðurnesjum (5,8%) en úti á landi.
Vignir bendir á að atvinnuleysi á
Suðurnesjum hafi mest farið í
24,5% í faraldrinum. Nánar tiltekið
í janúar 2021. Það séu því mikil um-
skipti að það hafi farið niður í 5,8%
í júní en svæðið reiði sig mikið á
ferðaþjónustu. Varðandi síðar-
nefndu töluna bendir Vignir á að
vissir ráðningarstyrkir Vinnumála-
stofnunar vegna starfsþjálfunar
miðist við að atvinnuleysi sé að lág-
marki 6%. Því sé atvinnuleysi á
Suðurnesjum nú undir því lágmarki
sem vitni um bata.
Breyst mikið milli ára
„Það var 13,7% atvinnuleysi á
Suðurnesjum í júní í fyrra og hefur
staðan breyst mikið milli ára. Þá
var 2,3% og 2,6% atvinnuleysi á
Norðurlandi vestra og á Vestfjörð-
um og því má segja að þar hafi ekki
verið eiginlegt atvinnuleysi í rúmt
ár.“
Spurður hvað einkenni vinnu-
markaðinn nú, í samanburði við
fyrri tímabil á þessari öld, segir
Vignir einkennandi hvað batinn sé
hraður.
„Það leið til dæmis þó nokkur
tími frá bankahruninu þar til at-
vinnuleysi náði hámarki og að sama
skapi leið langur tími þar til það
gekk niður. Við vorum fram á mitt
ár 2013 að ná jafnvægi á vinnu-
markaði. Atvinnuleysi jókst líka
mikið í faraldrinum en um leið og
hömlum var aflétt varð viðspyrnan
hröð og miklu sterkari en almennt
var búist við,“ segir Vignir.
Víða skortur á vinnuafli úti á landi
- Sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun
segir merki um þenslu á vinnumarkaði
Vignir
Hafþórsson
17,8%
13,0%
9,6%
8,8%
9,4%
9,8%
11,1%
12,0% 12,1%
12,8% 12,5%
12,1%
11,5%
10,0%
7,4%
6,1%
5,5%
5,0% 4,9% 4,9% 4,9% 5,2% 5,2% 4,9%
4,5%
3,9%
3,3%
10,3
7,5
5,6
7,4
2,1
7,5 7,9 8,5 9,0
9,9
1,4
10,6
1,4
10,7
1,2
11,6 11,4 11,0 10,4
9,1
7,4
6,1 5,5 5,0 4,9 4,9 4,9 5,2 5,2 4,9 4,5 3,9 3,3
Þróun atvinnuleysis frá apríl 2020
2020 2021 2022
apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní
Almennt atvinnuleysi
Vegna skerts starfshlutfalls
Heimild: Vinnumálastofnun
Höfuðb.sv.
Landsbyggðin
Vesturland
Vestfirðir
Norðurl.vestra
Norðurl.eystra
Austurland
Suðurland
Suðurnes
Almennt atvinnuleysi eftir landshlutum
4,2 3,7%
3,4 2,7%
1,9 1,5%
1,9 1,4%
1,2 0,9%
2,9 2,1%
2,1 1,5%
2,8 2,3%
6,6 5,8%
Maí 2022
Júní 2022
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Hagnaður útgerðarfélagsins Gjög-
urs hf. nam 909 milljónum króna í
fyrra. Þetta er mikill viðsnúningur
frá 2020 þegar félagið tapaði tæpum
476 milljónum króna.
Betri afkomu félagsins má rekja
til gengismunar og aukinnar sölu.
Tekjur félagsins námu 6,2 milljörð-
um króna og jukust um 600 milljónir
milli ára. Rekstrarkostnaður félags-
ins nam 5,25 milljörðum króna og
jókst um 400 milljónir milli ára.
Þetta kemur fram í ársreikningi
félagsins fyrir árið 2021. Tekjur frá
seldum afla námu 6,16 milljörðum og
aðrar tekjur námu 53 milljónum. Um
helmingslækkun er á öðrum tekjum
milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnsliði nam 966 milljónum og
jókst um 230 milljónir milli ára.
Var tæplega 6 milljarðar
Eigið fé Gjögurs var í árslok um
5,86 milljarðar króna og handbært fé
frá rekstri nam 677 milljónum.
Eiginfjárhlutfall félagsins var 38% í
árslok. Skuldir félagsins í lok árs
námu 9,57 milljörðum króna, það er
um 200 milljóna lækkun milli ára.
Bókfærður gengismunur nam
tæpum 400 milljónum króna og batn-
aði verulega milli ára. Árið 2020 var
bókfært milljarðs tap vegna gengis-
munar. Þetta útskýrir að stórum
hluta bætta afkomu félagsins.
Stríðið hefur áhrif á fjárhaginn
Í ársreikningi segir að reikna
megi með að stríðið í Úkraínu muni
hafa áhrif á fjárhag félagsins en það
hefur selt frosinn uppsjávarfisk til
landsins undanfarin ár. Fjárhagsleg
staða Gjögurs sé sterk og engin
hætta á að stríðið hafi áhrif á
rekstrarhæfi þess. Að meðaltali
störfuðu 85 manns hjá félaginu í
fyrra, líkt og árið 2020. Gjögur gerir
út skipin Hákon EA-148, Áskel
ÞH-48 og Vörð ÞH-44. Félagið rekur
einnig fiskvinnslu á Grenivík.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útgerð Félagið gerir út þrjú skip og
rekur jafnframt fiskvinnslu.
Mikill viðsnúning-
ur hjá Gjögri hf.
- Hagnaður félagsins 909 milljónir
- Tekjur félagsins 6,2 milljarðar
Fasteignir