Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS HOBBY 560 KMFE DE LUXE • Truma Combi 6 miðstöð • 150L ísskápur 15L frystir • 50L Vatnstankur • Álfelgur • 2000 kg öxull (Meiri burður) • Lúga hjá kojum • Vatnstengi + rafmagnstengi + sjónvarpstengi • Tvöfalt USB + barnaljós í kojum með USB tengi • Festing fyrir sjónvarp • Reykskynjari • 2 kojur með fallvörn • Hobby Connect • Hleðslustöð • Rafgeymir AGM • Aflestur rafgeymis • LCD skjár • Umhverfislýsing Raðnúmer 280968 Nýskráður 03/2022 (ónotað) Næsta skoðun 2026 Verð kr. 5.990.000 Í slenska liðið sem teflir fyrir Ís- lands hönd í opnum flokki ól- ympíumótsins í Chennai á Indlandi sem hefst í lok mán- aðarins er skipað þeim Hjörvari Steini Grétarssyni, Hannesi Hlífari Stefánssyni, Helga Áss Grétarssyni, Guðmundi Kjartanssyni og Vigni Vatnari Stefánssyni sem er eini ný- liðinn í hópnum. Hinir hafa marg- sinnis verið með áður, enginn þó jafn oft og Hannes Hlífar, sem tefldi fyrst á þessum vettvangi í Manila á Filippseyjum fyrir 30 árum og tekur nú þátt í sínu 16. ólympíumóti. Liðs- stjóri í Chennai verður Margeir Pét- ursson. Hann tók þátt í sínu fyrsta ólympíumóti í Haifa í Ísrael árið 1976. Flestir liðsmenn sveitarinnar hafa undanfarið verið uppteknir við tafl- mennsku á erlendum vettvangi og nýverið lauk í Budejovice í Tékk- landi mikilli skákhátíð þar sem Hannes og Helgi Áss tefldu báðir í lokuðum flokki. Aðrir fulltrúar Ís- lands voru Hilmir Freyr Heimisson, Birkir Ísak Jóhannsson, Alexander Domalchuk-Jónasson og Alexander Oiver Mai sem tefldu í vel skipuðum opnum flokki skákhátíðarinnar. Birkir Ísak náði bestum árangri, hlaut 6½ vinning af 9 mögulegum og varð í 4.-11. sæti af 111 keppendum. Hilmir Freyr fékk 6 vinninga, Alex- ander Domalchuk 5½ vinning og Al- exander Oliver Mai endaði með 5 vinninga. Helgi Áss Grétarsson var stiga- hæstur keppenda í flokki al- þjóðlegra meistara, hlaut 5½ vinning af 9 mögulegum og varð í 4.-5. sæti af 10 keppendum. Hannes Hlífar tefldi í stórmeistaraflokknum og varð í 7.-8. sæti af 10 keppendum, hlaut 4 vinninga af 9 mögulegum. Honum hefur vitanlega oft gengið betur en náði að vinna stigahæsta keppanda mótsins, rússneska stór- meistarann Donchenko, sem nú tefl- ir fyrir Þýskaland. Skákin fylgir hér á eftir. Rússinn taldi sig greinilega vera að snúa á Hannes í byrjun tafls en kom ekki að tómum kofunum: Skákhátíðin í Budejovice; 6. um- ferð: Hannes Hlífar Stefánsson – Alex- ander Donchenko Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Næstum því vinsælla í dag en að opna taflið með 3. d4. 3. … Rd7 4.d4 cxd4 5. Dxd4 a6 6. Bxd7+ Bxd7 7. c4 Hér er komin fram ein hugmynd hvíts. Biskupar svarts láta lítið fyrir sér fara á bak við fremur óvirka peðastöðu. En samt er þetta ekki svona einfalt. 7. … Rf6 8. Bg5 e6 7. Rc3 Bc6 10. 0-0 Be7 11. a4 h6 12. Bh4 0-0 13. a5 Hvítur hefur byggt upp stöðu sína á fremur hefðbundinn hátt. Svartur ætti sennilega að leika 13. … Hb8 eða 13. … Dc7 og staðan er í jafn- vægi. En hann sá sér leik á borði. 13. … Rxe4? Lítur vel út í fyrstu en annað kem- ur í ljós. 14. Bxe7 Rxc3 15. Dh4! Krókur á móti bragði. 15. … Re2+ 16. Kh1 Dc7 Kannski ætlaði hann að leika 16. … g5 en þá kemur 17. Bxg5! hxg5 18. Rxg5 Kg7 19. Hae1 og riddarinn fellur. 17. Bxf8 Hxf8 18. Hfe1 Bxf3 19. gxf3 Dc6 20. Ha3! Hér er helsta vandamál svarts komið fram; riddarinn á e2 sleppur ekki út. Hannes gerir engin mistök í framhaldinu. 20. … g5 21. Dxh6 Rf4 22. Dxg5+ Rg6 23. h4! Kg7 24. h5 Hh8 25. Kg1 Hh6 26. f4 Dxc4 27. Hg3 Dc6 28. f5 exf5 29. Dxf5 Kf8 Það má enn gera mistök, 30. hxg6 er vitanlega svarað með 30. … Hh1 mát! 30. Hxg6! - og svartur gafst upp. Hitað upp fyrir ólympíumótið í Chennai Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson 50 árum síðar Guðmundur G. Þórarinsson forseti Skáksambandsins meðan á „einvígi aldarinnar“ stóð sumarið 1972 hafði í nógu að snúast um síðustu helgi þegar viðburðarins var minnst með opnun sýningar Kötluseturs og Alberts Canagueral í Vík í Mýrdal. Guðmundur flutti langt erindi um einvígið. Sigur- vegari hraðskákmóts sem haldið var í kjölfarið og fyrsti Kötlumeistarinn, Davíð Kjartansson, hlýðir á með unnustu sinni, Írisi Tinnu Margrétardóttur. Eiríkur Briem fæddist á Melgraseyri við Ísafjarðardjúp 17. júlí 1846. Hann var prestur, kennari og kennslubókahöf- undur. Þá var hann alþingis- maður um árabil og forseti Sameinaðs þings um skeið. Eiríkur lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1864. Hann lagði stund á guðfræði- nám í Prestaskólanum og út- skrifaðist þaðan 1867. Hann varð biskupsritari hjá Pétri Péturssyni biskupi og gegndi því starfi til 1874, þegar hann fékk Þingeyraprestakall og settist að í Steinnesi. Hann gegndi prestsembætti þar til 1880 og var prófastur í Húna- vatnsprófastsdæmi frá 1876. Síðasta veturinn var hann þó í framhaldsnámi við Kaup- mannahafnarháskóla. Árið 1880 lét hann af prestsskap en fékk stöðu kennara við Presta- skólann og gegndi henni til 1911. Hann fékk prófessors- nafnbót þegar skólinn var lagð- ur niður við stofnun Háskóla Íslands. Hann kenndi við Lærða skólann, guðfræði og stærðfræði, og var forseti Hins íslenska fornleifafélags 1893- 1917 og forseti Bókmennta- félagsins 1900-1904. Eiríkur lést 27. nóvember 1929. Kona Eiríks var Guðrún Gísladóttir, f. 28.1. 1848, d. 2.3. 1893. Uppkomin börn þeirra hétu Ingibjörg og Eggert. Merkir Íslendingar Eiríkur Briem Sumarið er tími vegaframkvæmda. Við höfum öll fundið þörf- ina á viðhaldi vegakerf- isins, við höfum flestöll bölvað holunni í vegin- um eða stígnum sem við höfum farið um. Til þess að lagfæra holurnar þarf að loka veginum eða stígnum sem við förum um og þá reynir á þolinmæði okkar þegar við verðum fyrir töfum á ferð okkar. Ríkislögreglustjóri, Vegagerðin, Samgöngustofa og nokkrir af stærri verktökum sem vinna við vegagerð og viðhald vega hafa sett af stað sérstakt vitundar- átak undir heitinu: Aktu varlega – mamma og pabbi vinna hér. Hönnuð hafa verið sérstök skilti til þess að minna á að það er lifandi fólk sem vinnur á vinnusvæðum landsins, ekki mannlausar vélar, fólk sem á rétt á því að komast heilt heim úr sinni vinnu eins og við öll. Vinnusvæðamerkingar eru settar upp af ástæðu, til þess að vernda þá sem vinna á svæðinu og eins til þess að vernda okkur sem förum um vinnusvæðið þar sem aðstæður eru ekki eins og þær eiga að vera alla jafna. Hámarkshraði er lækkaður við vinnusvæði til þess að vernda okkur öll. Lægri hraði þýðir að við höfum meiri tíma til þess að bregð- ast við ef eitthvað kemur upp á í akstrinum og ef við náum ekki að bregðast við þá þýðir minni hraði minni afleiðingar. Við sjáum hugs- anlega ekki alltaf ástæðuna fyrir því að hámarkshraðinn er lækkaður en það er gert til þess að auka umferð- aröryggi allra. Umferðarmerki við vinnusvæði eru í öðrum lit en venjuleg um- ferðarmerki til þess að vera enn meira áber- andi en önnur merki og vara við því að eitthvað óvenjulegt sé fram undan. Vinnusvæða- merki eru með neon- gulum bakgrunni í stað guls bakgrunns. Eins eiga umferðarmerkin við vinnusvæði að vera af stærri gerðinni og endurskinið á þeim er mun meira en venjulegum umferðarmerkjum, allt gert til þess að vekja sem mesta at- hygli vegfarenda og vekja athygli á vinnusvæðinu. Lögreglan sinnir umferðareftir- liti, meðal annars hraðamælingum, við vinnusvæði eins og á öðrum veg- arköflum. Við umferðareftirlitið eru meðal annars notaðir ómerktir lög- reglubílar, sumir með hraðamynda- vél, merktir lögreglubílar og merkt lögreglumótorhjól. Verktaki ber ábyrgðina á vinnusvæðamerkingum, að þær séu samkvæmt reglum og veghaldari, það er Vegagerðin og sveitarfélög, hefur sitt eftirlit með verktökum. Virðum hámarkshraða, alltaf, það sparar einungis örfáar sekúndur að aka yfir hámarkshraða þennan stutta kafla sem vinnusvæðið er. Virðum hámarks- hraða, alltaf Eftir Hlyn Gíslason »Mikilvægt er að virða hraðatak- markanir og aka varlega um vinnusvæði á þjóðvegum. Hlynur Gíslason Höfundur er lögreglumaður. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.