Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 26
✝ Arnþór Reynir Magnússon fæddist á Brenni- stöðum í Eiða- þinghá 28. desem- ber 1931. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Hulduhlíð 8. júlí 2022. Hann ólst upp í Hamragerði í sömu sveit frá fjögurra ára aldri þegar for- eldrar hans og systkini fluttust þangað. Foreldrar hans voru Guð- björg Sigríður Sigbjörnsdóttir, f. 12.4. 1890, og Jón Magnús Þórarinsson, f. 15.12. 1880, bændur á Brennistöðum, síðan í Hamragerði. Systkini hans voru Anna María, f. 6. 2. 1912, Ingibjörg, f. 8. 10. 1914, Margrét, f. 13.5. 1918, Sigbjörn, f. 21.5. 1919, Soffía, f. 2.10. 1920, Þórunn, f. 1.4. 1924, Svanhvít, f. 15.4. 1925, og Magnhildur, f. 5.9. 1926. Arnþór kvæntist Erlu Hjalta- dóttur. Hófu þau búskap á Reyðarfirði, í kjallaranum í Ás- brún, hjá tengdaforeldrum hans. Þau byggðu síðan húsið að Brekkugötu 7 á Reyðarfirði og bjó hann þar allt fram til dauða- dags. Arnþór og Erla skildu 2011. Börn þeirra eru: 1) Hjalti, maki Ólöf Kristín Ein- arsdóttir. Börn þeirra eru Arnþór og María, sonur Maríu er Bjarki Þór Úlfarsson. 2) Gunnar Magnús, maki Dóra Björk Reynisdóttir. Dætur þeirra eru Kristrún og Erla Hildur. 3) Heiðrún, sam- býlismaður hennar er Grím- laugur Björnsson. Dætur Heið- rúnar eru Emma Björk, Fanný Ösp og Helena Eik. 4) Kári Elvar, sambýliskona hans er Valgerður Yngvadóttir. Arnþór starfaði á Reyð- arfirði, m.a. sem vélamaður hjá Vegagerðinni, sem bifreið- arstjóri og viðgerðarmaður véla og tækja hjá fiskverkun GSR, vann við afgreiðslustörf í byggingavörudeild KHB, verkamannastörf hjá Rafveitu Reyðarfjarðar og sinnti hús- vörslu í grunnskólanum og íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Útför Arnþórs fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag, 16. júlí 2022, kl. 13.00. Þá hefur sá gamli yfirgefið samkvæmið, sagði Gunni þegar hann tilkynnti mér andlát föður síns, Adda frænda míns sem mig langar að minnast nokkrum orðum. Arnþór Reynir Magn- ússon hét hann fullu nafni, yngstur af níu systkinum fædd- um á Brennnistöðum í Eiða- þinghá, og eru þá öll gengin á vit forfeðra sinna. Tilvera mín hefur alla tíð tengst Adda með einhverjum hætti alveg frá því ég man eftir mér, hann þá bú- andi í kjallaranum í Ásbrún með fyrrverandi eiginkonu sinni Erlu Hjaltadóttur. Þessi minning mín um frænda á ekki að vera neinn sérstakur fagurgali um hann heldur langar mig að minnast hans og þakka fyrir allt sem hann var mér, hálfumkomulaus- um ellefu ára drengstaula eftir skilnað foreldra minna. Þú varst alltaf tilbúinn að koma til að aðstoða okkur með eitt og annað sem aflaga fór í Hvoli. Þú sýndir mér t.d. hvernig átti að sóthreinsa bið- una í olíufíringunni þegar hætti að loga í olíunni fyrir sóti, opna sótlúguna á skorsteininum til að skafa út sótið með sköfu sem þú smíðaðir. Gamli tréskí- ðasparkurinn sem þú endur- byggðir, sá var allur brotinn. Þú fékkst aflagðan barnaskóla- stól og munstraðir hann ofan á meiðana. Hvernig þú bjargaðir sálarheill minni varðandi bíla- dellu mína eftir að hún tók yfir líf mitt. Keypt var gömul bjalla úr Reykjavík óséð, man að þú komst með mér á bryggjuna þegar gripurinn kom með skipi á Reyðarfjörð og við fórum fyrstu ökuferðina báðir sælir með gripinn, en síðar kom í ljós að töluverður hluti af þyngd bílsins var bundinn fyllingar- efni sem smám saman hrundi eftir því sem ekið var í fleiri holur. Reyndist þú mér þá bet- ur en enginn, hvattir mig til láta ryðbæta. Bíllinn var settur í viðgerð á Lykli og sóttum við grindina þangað og drógum hana inn í skúr hjá þér, þar hafðir þú yfirumsjón með vinnunni. Þar sprautaðir þú brettin og hurðina með máln- ingarsprautu sem var tengd við ryksugu móður minnar. Þú skiptir um kúplingsdisk og pressu, losaðir nokkra bolta og sviptir svo vélinni frá, settir svo saman, hertir pressuna lauslega, tálgaðir svo til kúst- skaft til að diskurinn væri á réttum stað þegar þú rakst mótorinn upp á. Þessi tími var minn skóli í bílaviðgerðum. Svo líða árin eins og gengur, ég flyt upp á Hérað þannig að sam- gangur minnkaði en þessi strengur sem á milli okkar spannst slitnaði ekki. Kafla- skipti verða í þínu lífi, þið hjón- in skiljið og þú hófst búskap einn. Þá fóru samskipti okkar að aukast að nýju, aðallega í síma en þó nokkrar heimsóknir í Brekkugötuna. Samtölin sem við áttum þegar ég var á næt- urvöktum stóðu gjarna í tvo klukkutíma eru mér ofarlega í sinni núna, um gamla tíma, þá sérstaklega úr sveitinni þinni Hamragerði og Brennistöðum. Mig langar að þakka þér fyrir að þiggja boðið í bíltúrinn 11. júní síðastliðinn, það er minn- ing sem ég mun geyma meðan ég lifi. Nú er komið að kveðjustund- inni, það veit ég að vel verður tekið á móti þér í Sumarlandinu. Afkomendum þínum og aðstand- endum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur og vertu nú sæll og takk fyrir allt. Meira á www.mbl.is/andlat Þinn frændi, Magnús Kristjánsson. Arnþór Reynir Magnússon 26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Það er svo óraun- verulegt að sitja hér og skrifa minning- argrein um þig elsku vinur. Lífið er hverfult og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Ég var að keyra norður til Ak- ureyrar þennan örlagaríka dag þegar mér barst þessi harmaf- rétt. Ég gat ekki náð utan um þessi tíðindi, trúði þeim ekki og lífið tók U-beygju á augnabliki. Ég kynntist þér þegar við vor- um unglingar, þegar ég varð skotin í Halla frænda þínum og besta vini. Þið voruð alltaf saman og það var ekki annað hægt en að líka vel við þig því þú varst alltaf glaður og tókst lífið passlega al- varlega. Þið frændur voruð eins og bræður, svo tryggur var vin- skapurinn, og pössuðuð alltaf hvor upp á annan. Þú byrjaðir ungur að vinna. Fyrst í landi en síðan tók sjó- mennskan við og þar varstu staddur er þú kvaddir þetta líf. Á unglingsárunum var unnið, djammað, farið á böll, hlustað á Bubba og Megas á vínil, farið í útilegur, fjallaferðir og haft gam- an. Síðan tók fjölskyldulífið við. Þú kynntist Valrúnu þinni, varst yfir þig ástfanginn, þið fóruð að búa og eignuðust þrjú börn í bunu sem í dag eru orðin dugleg og flott ungmenni. Það var aldrei neitt vesen hjá þér. Alltaf jákvæður og hafðir Jóhann Pétursson ✝ Jóhann Pét- ursson fæddist 29. ágúst 1969. Hann lést 24. júní 2022. Útför hans fór fram 4. júlí 2022. gaman af lífinu. Ég hringdi einu sinni í þig um miðnætti á Þorláksmessu þar sem ég var stödd inni í verslun. Búin að kaupa heilan helling af matvöru en kortið virkaði ekki og ég var á leið- inni heim í sveitina. Þú komst hlaupandi innan skamms í búðina hlæjandi yfir veseninu á mér. Borgaðir vörurnar, knúsað- ir mig og skokkaðir heim aftur. Þetta lýsir þér svo vel og hvað þú varst alltaf góður vinur. Það var alltaf jafn notalegt að koma í kaffi til ykkar Valrúnar í Ægisgötuna í gegnum árin og skipti engu máli hvað leið langt á milli þess sem við hittumst. Vin- skapurinn var alltaf eins, dyrnar opnar og hlýtt faðmlag var það sem mætti mér þegar ég kom til ykkar. Elsku Jói minn, takk fyrir samfylgdina og vinskapinn í gegnum þetta lífsins ferðalag. Takk fyrir allar stundirnar og yndislegu minningarnar sem munu fylgja mér um ókomin ár. Elsku Valrún, Heiðar, Lilja, Gunnborg, Gunna, Pétur, Fríða, Valdi og fjölskyldur. Ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur á þessari sorgarstundu. Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer. En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín og leiði mig á endanum aftur til þín. (Megas) Bergþóra Lárusdóttir. Líbanska skáldið Kalhil Gibran komst svo að orði um dauðann: Hvað er það að deyja annað en það að standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Elsku Dagrún, mín góða vin- kona, þetta eru ekki kveðjuorð til þín heldur þakkarorð fyrir áratuga vináttu. Kynni okkar hófust í húsi Guðspekifélagsins við Ingólfsstræti. Við vorum ungar og hressar, báðar í and- legri leit. Alltaf hlökkuðum við til að hittast. Allra skemmtileg- ast þótti okkur að fara í berjamó. Bara að leggjast á jörðina og tengjast henni, það var okkar lúxus. Barmafullar af kátínu og gleði vorum við svo lánsamar að njóta fræðslu og leiðbeiningar þeirra Grétars Fells og Sigvalda Dagrún Erla Ólafsdóttir ✝ Dagrún Erla Ólafsdóttir fæddist 6. nóvem- ber 1929 á Ísafirði. Hún lést 16. júní 2022. Útför hennar fór fram frá Grafarvogskirkju 4. júlí 2022. Hjálmarssonar, sem miðluðu óspart af eigin reynslu og andlegri sýn. Lífið var gott og þessi mikli andans fjár- sjóður gagnaðist okkur vel í vegferð okkar gegnum skin og skúrir lífsins. Gleðina mesta fann Dagrún í vel- gengni barnanna sinna þriggja og barnabarnanna. Dagrún varð fyrir því mikla áfalli að missa dóttur sína langt um aldur fram, frá tveim börn- um. Það sár greri ekki, en með Guðs hjálp og góðra manna, við- horfs hennar til alls sem lifir og kærleiksríks eðlis tókst henni að lifa í innri sátt. Það var undursamlegt að sjá hvað hún hreifst af fegurð lífsins, náttúrunnar – enda var hún listakona að eðlisfari og fyrir Dagrúnu var allt líf heilagt. Nú ert þú horfin inn í sólskinið, elsku vinkona mín. Guð blessi þig og varðveiti þig. Þakka samfylgdina. Ástvinum og öllum ættingjum votta ég samúð mína. Elínborg Lárusdóttir. Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR EINARSSON, kennari, vélstjóri og bókaútgefandi, Ísafirði, lést sunnudaginn 10. júlí á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði eftir stutt veikindi. Útför fer fram frá Ísafjarðarkirkju þriðjudaginn 19. júlí klukkan 14. Hulda Salóme Guðmundsd. Halldór V. Magnússon Hjálmar Guðmundsson Kolbrún Kristjánsdóttir Steingrímur R. Guðmunds. Sæunn S. Sigurjónsdóttir Kristín Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, amma og langamma, BRYNDÍS JÓNASDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, áður Asparfelli 6, Reykjavík, lést 13. júlí á dvalarheimilinu Eir. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 20. júlí klukkan 15. Mínerva Margrét Haraldsdóttir Guðríður Haraldsdóttir Svanhildur Sif Haraldsdóttir Guðmundur Jónas Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, stjúpmóðir, dóttir, systir, tengdamóðir, amma, frænka og vinkona, HÓLMFRÍÐUR DÖGG EINARSDÓTTIR sálfræðingur, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu í Mosfellsbæ 9. júlí. Hún verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 13. Skúli Theódór Ingason Alexander Leví Pétursson Hildur María Olafsdóttir Theódór Ingi Skúlason Anton Elí Skúlason Antonía Eir Skúladóttir Þórhildur Magnúsdóttir Einar Finnbogason Berglind Einarsdóttir Finnbogi Einarsson Jurgita Mazeikaité Brimar Leví Alexandersson og aðrir aðstandendur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI SIGTRYGGSSON, Bröttukinn 22, Hafnarfirði, lést á landspítalanum í Fossvogi 10. júlí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 20. júlí klukkan 13. Guðbjörg Skúladóttir Guðleifur Árnason Gísla Rún Kristjánsdóttir Sigríður Árnadóttir María Anna Árnadóttir Magnús Óskarsson og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA BJÖRNSDÓTTIR, Múlakoti, lést á Dvalarheimilinu Klausturhólum fimmtudaginn 7. júlí. Útförin fer fram frá Prestbakkakirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 13. Baldur Þ. Bjarnason Adda Lára Arnfinnsdóttir Símon Gísli Ólafsson Sigurbjörn Marinósson Sigríður Helga Baldursdóttir Agnar Haraldsson Arna Björk Baldursdóttir Jose Brito Gil Bjarni Pétur Baldursson Þórunn Edda Sveinsdóttir Sigurður Arnfinnur Baldurs. Þórunn Ármannsdóttir Bjarmi Þór Baldursson Eliane Lima barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.