Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 ✝ Elísabet Jóns- dóttir fæddist í Þingnesi í Bæjar- sveit 15. nóvember 1926. Hún lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð, Borg- arnesi 8. júní 2022. Foreldrar Elísa- betar voru hjónin Magnfríður Himin- björg Magnús- dóttir og Jón Hjálmsson. Systkini Elísabetar á lífi eru Guðríður Jónsdóttir og Jó- hanna Guðnadóttir. Látin eru Ketill Jóhannesson, Guðrún Jónsdóttir og Jón Magnús Guðnason. Sonur Elísabetar er Jón Atli Brynjólfsson og barnsfaðir Elísa- betar er Brynjólfur Sandholt. Jón Atli er giftur Hjördísi Rósu Halldórs- dóttur. Börn þeirra eru Elísabet og Halldór. Elísabet er gift Jóhanni M. Viðars- syni. Börn: Viðar Marel, Thelma Berglind, Hrafnhildur Arney og Bjartey. Elísabet ólst upp á Árbakka í Bæjarsveit. Hún starfaði lengst af sem ráðskona á Varmalandi í Stafholtstungum. Útför Elísabetar fór fram í kyrrþey. Elsku amma mín, amma Beta, Elísabet Jónsdóttir, já við vorum báðar stoltar af því að vera alnöfn- ur, allt frá því að ég man eftir mér þótti mér það afar merkilegt og sagði montin frá því og það sama má segja um þig, meira að segja þegar við hittumst núna í byrjun sumars minntist þú á það við starfsfólkið í Brákarhlíð að við værum nú alnöfnur. Minningarnar eru margar. Því- lík forréttindi það voru að fá að koma í sveitina til þín á sumrin sem barn, fá að fylgjast með og taka þátt í sveitastörfum. Þegar ég hugsa til baka þá minnist ég þín sem ofurkonu, alltaf að aðhafast eitthvað, elda, baka, prjóna, ham- ast í garðinum eða annað sem þurfti að gera. En þrátt fyrir að vera alltaf að gafstu þér tíma fyrir mig, dröslaðir mér með þér út um allt og fannst eitthvað fyrir mig að gera. Svo reyndir þú þitt besta að gera einhvern mat fyrir borgar- barnið, heimagerða hamborgara og pizzur, það gekk svona misvel en það vantaði ekki viðleitnina. Best fannst mér nú samt alltaf hveitikökurnar þínar með smjöri og heimagerðri kæfu. Eftirminni- legast og það mest spennandi fannst mér þegar ég var, í ófá skipti, send út í á að stela laxi af veiðibjöllunni, þeir laxar brögðuð- ust alltaf best. En svo inn á milli gátum við dúllað okkur saman, ég fékk oft að setja rúllur og nýjar greiðslur í hárið á þér, kenndir mér rommý sem við spiluðum mikið og að leggja fjöldann allan af köplum, þú kenndir mér líka að prjóna en mér fannst eiginlega bara skemmti- legra að fá að flokka og vefja garninu upp í nýjar dokkur. Svo fannst okkur nú alltaf gam- an að glugga í heimsatlasinn og pæla í landafræði og þjóðfánum, og geymdir þú kortabókina aldrei langt frá þér. Svo komu langömmubörnin, það sem þú varst nú ánægð með þau og fannst alltaf gaman að hitta þau og sinntir þeim eftir getu. Þau voru alltaf aðalumræðuefnið þeg- ar við heyrðumst í síma og fram á síðasta dag voru þau þér ofarlega í huga, held að þú hafir verið pínu montin af þessari litlu stórfjöl- skyldu sem við erum orðin. Þeir eru ófáir kostirnir sem þú hafðir að geyma og marga þeirra hef ég tileinkað mér í gegnum tíð- ina, vinnusemi, hverskonar nýtni hráefna, sjálfstæði og hógværð. Að þessum kostum mun ég búa og gera mitt besta að tileinka mínum börnum. Elsku amma, þú varst mér frá- bær fyrirmynd og ég á þér margt að þakka. Takk fyrir alla þá góðvild og kærleika sem þín sýndir mér. Hvíldu friði, elsku amma, góða nótt og guð geymi þig. Elísabet Jónsdóttir. Alltaf varst þú ljóðið sem allir vildu kveða. Alltaf varst þú strengur sá sem allir vildu slá. Þú varst eins og þögnin, þú varst eins og nóttin, þú varst eins og harpan sú sem vindurinn leikur á. (Guðmundur Böðvarsson) Komdu sæl mín kæra, en svo ávarpaði ég ráðskonuna, Elísa- betu Jónsdóttur, eftir að hún hætti starfi sem ráðskona til 36 ára við Varmalandsskóla. Elísabet var einstök, hlý, stundum ströng, en umfram allt glæsileg svo eftir var tekið. Vinnu sína við skólann innti hún af hendi sem væri henn- ar. Fyrirhyggja við öflun mat- væla, úrvinnsla heima í skólaeld- húsi og margt fleira mætti nefna vann hún með eldhússtúlkunum og sló ekki af. Mötuneyti skólans var hennar starfsvettvangur og honum sinnti hún af snilld. En El- ísabet var svo sem ekki allra og tíma tók að komast inn að faðmi hennar. Við áttu gott samstarf þau ár sem samstarf okkar náði, en 1997 urðu starfslok og þá flutti hún að Árbakka þar sem hún hafði alist upp. Á Árbakka bjó hún með bróður sínum Katli þar til að hann kvaddi. Þar ræktaði hún garðinn, blóm og grænmeti og ýmsar aðrar tegundir. Ég hafði það að venju að heimsækja Elísabetu að lágmarki tvisvar á ári og afmælisdag henn- ar 15. nóvember mætti ég og þá með sérrý eða konfekt. Þá sagði hún. „Mikið ertu yndislegur að muna eftir mér.“ Það var gaman að koma og spjalla. Hún fylgdist vel með og var með lands- og heimsmál á hreinu. Þá var Elísa- bet mikill lestrarhestur og ætíð var borðið hjá henni hlaðið bókum og í stólnum við hliðina voru prjónarnir en mín kona var af- kastamikil við þá iðju. Góðar stundir koma upp í hugann. Þær eru geymdar. Takk Jóni Atla og fjölskyldu sendum við Kristín Ingibjörg okkar inni- legustu samúðarkveðju. Flemming Jessen. Elísabet Jónsdóttir Elsku besta amma. Þegar við hugs- um til ömmu er það fyrsta sem kemur upp í hugann hvað amma var hlý og góð, það skipti hana miklu máli að öllum liði vel. Hún hafði góðan húmor, var harðdugleg og algjör töffari. Mikil fyrirmynd. Það var alltaf svo gott að koma til ömmu, hún hugsaði svo vel um okkur og það mátti enginn verða svangur, aldrei. Það var fátt betra en að vakna við pönnuköku- ilminn heima hjá ömmu og raða svo í sig kleinum og kræsingum allan daginn, enda allt best hjá ömmu þar sem við vorum dekruð af ást og umhyggju. Elsku amma, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar, símtölin og fallegu lífslexíurnar. Langömmubörnin voru svo lánsöm að kynnast þér og verja góðum stundum með þér í gegn- Svanhildur Sigurðardóttir ✝ Svanhildur Sigurðardóttir fæddist 26.12. 1929. Hún lést 24.6. 2022. Útför Svanhildar fór fram í kyrrþey. um árin, þær minn- ingar eru ómetan- legar. Við lofum að vera dugleg að taka lýsi og hreyfa okkur svo við verðum eins langlíf og heilsu- hraust og þú. Þú varst einstök amma og við kveðjum þig með miklum sökn- uði, en það hlýjar okkur um hjartarætur að vita að nú ertu komin til afa þar sem þið drekkið saman góðan kaffibolla og farið í bíltúr. Takk fyrir alla hlýjuna, góðu stundirnar og minningarnar. Svanhildur Ylfa, Bergur Einar, Diljá og Vala. Yndisleg vinkona hefur kvatt þetta líf. Við urðum vin- konur í grunnskóla og hefur sú vinátta haldist allt frá þeim tíma og aldrei borið skugga á. Fyrsta minning mín er þegar hún var að kenna mér á hljómborð. Hafði lengi lang- að að læra á hljóðfæri og hún svo músíkölsk hélt að það væri ekki mikið mál að kenna mér. Það gekk nú ekki upp þar sem puttarnir vildu ekki hlýða, en þá var skipt yfir í blokkflautu sem gekk ágæt- lega og kenndi Sigrún mér líka að lesa nótur. Lífsganga Sigrúnar var enginn dans á rósum og fékk hún hvert verkefnið á fætur öðru með sínum hindrunum til að kljást við. Nú síð- ast var það hvítblæði og hafði það að lokum sigur og tók hana á braut. Þrátt fyrir það var Sigrún alltaf jákvæð, kvartaði aldrei, tókst á við hvert verkefni og leysti eins vel og hægt var af þrautseigju og yfirvegun. Hún lét ekkert stoppa sig í því sem hana langaði að gera og þrátt fyrir skerta hreyfigetu þráði hún heitast að geta haft eitthvað fyrir stafni og vann síðustu árin hálfan daginn á saumastofu í Hátúni en tók svo þátt í starfsemi klúbbsins Geysis. Einnig tók hún kúrsa í háskól- anum. Hélt við norskunni sinni og sótti ýmis námskeið, meðal annars matreiðslunámskeið og bauð okk- ur vinkonunum svo heim í mat svo við gætum notið þeirra góðu rétta sem hún hafði lært að útbúa. Sigrún var dugleg að halda sambandinu við okkur vinkonurn- ar. Hringdi reglulega til að heyra í okkur og fylgdist vel með hvað var að gerast í okkar lífi. Spurði alltaf Sigrún Jóhannsdóttir ✝ Sigrún Jó- hannsdóttir fæddist 29 mars 1967. Hún lést 21. júní 2022. Útför hennar fór fram 1. júlí 2022. eftir því hvernig við og makar okkar hefðum það og hvað börnin okkar væru að gera og hvernig þeim gengi. Sigrún var alltaf til í hitting hvort heldur á kaffi- húsi eða heima fyrir. Dæmi um þraut- seigju Sigrúnar: Eitt sinn kom maðurinn minn heim og sagð- ist hafa séð hana eina á labbi niðri í Hafnarstræti. Ég hélt að það gæti ekki verið en Sigrún staðfesti að það væri alveg rétt; hana hefði vantaði bók úr Eymundsson sem þá var í Hafnarstræti og þar sem það var svo gott veður þann dag- inn ákvað hún að labba með göngugrind niður í Hafnarstræti frá Hlemmi. Labbaði niður Laugaveginn og upp Hverfisgöt- una – var reyndar þrjá og hálfan tíma í ferðinni en fannst það lítið mál! Mér verður oft hugsað til hennar þegar ég fer niður Lauga- veginn og er byrjuð að keyra hring eftir hring þar um því ég fæ ekki stæði beint fyrir utan þá búð sem ég ætla í. Það var svo margt sem maður gat lært af Sigrúnu á því hvernig hún tókst á við lífið. Af þrautseigju hélt hún áfram að gera handavinnu og bæði prjón- aði og saumaði út. Kláraði fyrir nokkru að sauma út mjög fallegan borðdúk og var byrjuð á lítilli mynd síðast þegar við hittumst. Ekki hvarflaði að okkur Þór- unni síðast þegar við kíktum á hana tæpri viku áður en hún kvaddi að hún myndi kveðja okkur svona fljótt. Hún var slöpp en stolt og vildi ekki liggja út af og tala við okkur heldur setjast upp og fram á rúmbríkina. Þá góðu stund mun ég geyma í huga mér ásamt öðrum góðum minningum. Hafðu þökk fyrir trausta og góða vináttu. Fjölskyldu Sigrúnar votta ég samúð mína. Þín vinkona, Júlíana Ósk. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær og elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN TÓMASDÓTTIR söngkona frá Brennholti í Mosfellsdal, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu laugardaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 20. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, en þeir sem vilja minnast hennar láti Fuglavernd Íslands eða Votlendissjóð njóta þess. Tómas Atli Ponzi Björk Bjarnadóttir Guðrún Theodóra Ponzi Jóhann Ingi Guðmundsson Gabríel Ponzi Þórey Lovísa Sigurmundsd. Egill Mikael Ponzi Ástríður Jósefína Ólafsdóttir Eyþór Laxdal Arnalds Bjarni Jósef Ólafsson Frank Nikulás Ólafsson Fenrir Þór Söndruson Ponzi Gabríel Dagur Jóhannsson Ponzi Deva Aurea Olafsson Elskulega eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og systir, MARGRÉT S. GUÐMUNDSDÓTTIR sjúkraliði Magga frá Kárastöðum, lést skyndilega í faðmi fjölskyldunnar af völdum heilablæðingar fimmtudaginn 7. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 19. júlí klukkan 13. Þorgeir Sæmundsson Ragnhildur A. Þorgeirsdóttir Helgi Pálsson Bára Kristín Þorgeirsdóttir Geir Bjarnason Halla Eyberg Þorgeirsdóttir Bárður Smárason Guðbjartur Ísak, Atli Páll, Hekla Lydía, Óli Jarl, Margrét, Ciara Margrét Eyberg, Helga Sara, Þorgeir Sær, Krummi Týr, Áróra Eyberg, Jökull Eyberg, Úlfrún Irja, Ásgeir Óðinn og systkini Margrétar Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, INGVELDUR LÁRUSDÓTTIR HJALTESTED söngkona, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 22. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Einar Þ. Einarsson Steinunn R. Sigurðardóttir Lárus Einarsson Matthildur Þórðardóttir Þuríður Einarsdóttir Halldór Harðarson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, NANNA SÆMUNDSDÓTTIR sjúkraliði, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum 10. júlí. Útförin fer fram í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Hlynur Freyr Stefánsson Matthildur Jónsdóttir Bylgja Rún Stefánsdóttir Bjarni Jakob Gíslason og barnabörn Elsku hjartans eiginkona mín, móðir og dóttir, ÞÓRHALLA ARNARDÓTTIR framhaldsskólakennari, lést í faðmi fjölskyldunnar á krabbameinsdeild Landspítalans fimmtudaginn 14. júlí. Útför verður auglýst síðar. Kolbeinn Már Guðjónsson Örn Hrafnsson Margeir Hrafnsson Björg Sóley Kolbeinsdóttir Backman Örn Karlsson Ingibjörg Ósk Óladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.