Morgunblaðið - 16.07.2022, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022
Elsku Ingvi
bróðir minn. Nú
þegar ég hef kvatt
þig í hinsta sinn fæ
ég loksins þrótt til
að skrifa minningar mínar um
þig. Þegar ég var lítil og þú
varst heima urðum við vinir
þótt dálítill aldursmunur væri á
milli okkar.
Ég minnist þess hversu blíð-
ur og góður þú alltaf varst en
jafnframt mikill prakkari. Þú
hafðir gaman af ýmsum hrekkj-
um eins og þegar þú manaðir
okkur Sigga bróður til að fara
með Matadorpeninga út í búð
og biðja um nammi fyrir þá.
Konan í búðinni vorkenndi okk-
ur svo mikið að hún gaf okkur
sína karamelluna hvoru en þú
lást á glugganum og hlóst að
öllu saman.
Það var alltaf mikið fjör að
vera með þér og alltaf einhver
gleði sem einkenndi þig. Þú
lékst við okkur yngri systkinin
og lést okkur gera ýmsar þraut-
ir. Þú kenndir mér að þykja
vænt um öll dýr og fólk sem átti
bágt. Þegar við urðum eldri og
ekki síst eftir að hún Sigga kom
inn í líf þitt áttum við öll marg-
ar góðar stundir saman. Við fór-
um í nokkrar útilegur og geng-
um m.a. frá Hvalfjarðarbotni
upp að Hvalvatni og þaðan yfir
til Þingvalla. Og ferðirnar okk-
ur á Þjóðhátíð gleymast aldrei.
Við fórum líka saman á gömlu
dansana í Þórskaffi og þá var
sko gaman að dansa við þig því
fáir dönsuðu betur.
Ein utanlandsferð með þér til
Glasgow og Edinborgar þar
sem þú varst leiðsögumaður
með stóran hóp fólks er líka eft-
irminnileg fyrir margra hluta
sakir.
Að vera með þér var alltaf
gaman og heimurinn varð ein-
hvern veginn meira spennandi
og bjartari.
Það sem líka er mér kær
Ingvi Þór
Guðjónsson
✝
Ingvi Þór Guð-
jónsson fæddist
á Akureyri 28. nóv-
ember 1939. Hann
lést 9. júní 2022 og
útför hans fór fram
2. júlí 2022.
minning er þegar í
síðasta stórafmæli
mínu fyrir fjórum
árum þú söngst
með okkur „Gudd-
unum“ og til er á
upptöku. Hvílíkt
stuð og hvílík gleði.
Eftir að þú
veiktist af þeim
sjúkdómi sem að
lokum dró þig til
dauða töluðum við
nokkuð reglulega saman í síma
og því þéttar sem á leið.
Alveg fram á síðustu vikurn-
ar fórst þú og ókst um þinn
kæra bæ og sóttir blöðin fyrir
fólkið í húsinu þar sem þið
Sigga bjugguð. Þú kvartaðir
aldrei. Hafðir það alltaf bara
gott.
Tveimur dögum áður en þú
dóst varstu orðinn ansi veikur
en húmorinn var aldrei langt
undan frekar en svo oft áður.
Þá sagði þú við mig með mikilli
glettni í röddinni:
„Já Helga mín. Maður slepp-
ur víst aldrei lifandi frá þessu
lífi.“
Þetta lýsir þér elsku Ingvi
minn svo vel. Alltaf glaður, allt-
af að hughreysta aðra og alltaf
að slá á létta strengi.
Þú varst bróðir minn og vin-
ur minn og ég elskaði þig og
mun sakna þín meira en orð fá
lýst.
Ég ætla að leita þín þegar ég
fer sjálf yfir móðuna miklu og
þá ætla ég að setjast með þér í
grænni brekku og syngja með
þér alla skátasöngvana sem þú
kenndir mér þegar ég var barn.
Ég efast ekki um að þú munir
halda uppi fjörinu hinum megin
eins og þú gerðir svo vel hérna
megin.
Börnin þín fjögur sýna svo
vel það atlæti sem þið Sigga
veittuð þeim. Þar er sama hlýj-
an, umhyggjusemin og góðvildin
til allra og húmorinn er þar líka
alltaf á næsta leiti. Þeim öllum,
tengdabörnunum, barnabörnun-
um og barnabarnabarni sem
elskuðu hann svo mikið votta ég
mína dýpstu samúð.
Og þér elsku bróðir og vinur
óska ég góðrar ferðar.
Helga Guðjónsdóttir.
Komið er að því
að kveðja æskuvin-
konu okkar.
Leiðir okkar og
Haddýjar lágu sam-
an haustið 1979 er við hófum
skólagöngu í Réttarholtsskóla.
Við vorum upp frá því mikið sam-
an, ýmislegt brallað, eins og til-
heyrir oft unglingsárunum. Við
vorum tíðir gestir í Ásgarðinum,
þar tók Kiddý alltaf á móti okkur
opnum örmum. Þær voru ófáar
stundirnar sem við vinkonurnar
áttum niðri í herberginu hans
Hansa, slúðrað, hlegið og ekki síst
hlustað á tónlist. Sú tónlist á enn
stað í hjarta okkar með flytjend-
um eins og Phil Collins og Queen,
er við heyrum okkar gömlu uppá-
haldslög rifjast upp stundirnar
sem við áttum saman. Við sjáum
hana ljóslifandi fyrir okkur í hvít-
um bol og hvítum klossum sem
var órjúfanlegur hluti af henni.
Félagsmiðstöðin Bústaðir voru
Hrafnhildur
Stefánsdóttir
✝
Hrafnhildur
Stefánsdóttir
fæddist 23. mars
1966. Hún lést 25.
júní 2022.
Útför hennar var
7. júlí 2022.
okkar annað heimili
á þessum árum, þar
áttum við einnig
saman margar góðar
og skemmtilegar
stundir.
Eins og gerist oft
á fullorðinsárum
skildi leiðir okkar, en
við heyrðum þó allt-
af eitthvað af Haddý.
Það var þó ekki fyrr
en veikindi hennar
létu á sér kræla að við fórum að
vera í samskiptum aftur. Hún
leyfði okkur að fylgjast með þessu
erfiða ferli, en hún var full bar-
áttuvilja og staðráðin í að ná yf-
irhöndinni. Hún sendi okkur síð-
ast skilaboð í lok apríl með góðar
fréttir. Það var því mikið áfall
tveimur mánuðum síðar að frétta
af dauðsfalli hennar. Við höfðum
plön um að hittast þegar við vær-
um allar á landinu. Því miður náð-
um við því ekki, en eftir lifa góðar
minningar frá unglingsárunum
með elsku Haddý. Hvíl í friði vin-
kona.
Við sendum Karen dóttur
hennar innilegar samúðarkveðjur
sem og öðrum aðstandendum.
Berglind Ágústsdóttir,
Elsa Hrönn Reynisdóttir.
✝
Guðmundur
Magnús Þor-
steinsson var
fæddur á Finn-
bogastöðum í Tré-
kyllisvík 13. mars
1943 og lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
2. desember 2021.
Foreldrar voru
Pálína Jenný Þór-
ólfsdóttir, f. 1921,
d. 2012 og Þorsteinn Guð-
mundsson, f. 1905, d. 1983.
Systir Guðmundar er Guðbjörg
Þorsteinsdóttir, fædd 1948.
Fyrrverandi kona Guðmundar
er Helga Olena Eiríksdóttir,
fædd 1956. Börn
þeirra eru Linda
Guðmundsdóttir, f.
1981 og Þorsteinn
Guðmundsson, f.
1986. Börn Helgu
frá fyrra sambandi
og stjúpbörn Guð-
mundar eru Guð-
brandur Óli Al-
bertsson, f. 1974
og Oddný Inga Al-
bertsdóttir, f.
1977.
Guðmundur menntaði sig í
Hólaskóla og var bóndi á Finn-
bogastöðum.
Útförin fór fram frá Árnes-
kirkju 18. júní 2022.
Veistu, ef þú vin átt,
þann er þú vel trúir,
og vilt þú af honum gott geta,
geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum)
Vinur minn, Guðmundur Þor-
steinsson, Mundi á Finnbogastöð-
um, mátti láta í minni pokann fyrir
elli kerlingu og veikindum hinn 2.
desember sl. Það var aðdáunar-
vert að fylgjast með langri og erf-
iðri baráttu hans við margvísleg
veikindi sem hann mátti glíma við
frá unga aldri. Veikindi hans voru
fyrst greind sem gigt en á seinna
reyndist sú greining röng. Þó örl-
aði hvorki á uppgjöf né volæði hjá
Munda heldur einkenndist lífsvið-
horf hans af æðruleysi m.a. með
því að taka hverju því sem að
höndum bar líkt og hverju öðru
verkefni. Í seinni tíð stóð hann þó
ekki einn þar sem börnin hans
þrjú styrktu hann og studdu eins
og best verður á kosið.
Átti samleið með Munda alla
hans lífsgöngu. Það var líka mikill
samgangur, velvild og hlý vinátta
á milli foreldra okkar þar sem
aldrei bar skugga á en margs að
minnast og þakka. M.a. síðsumars
1955 var ég í fæði og húsnæði á
Finnbogastöðum. Þegar kom að
því að borga sögðu Palla og Steini
þvert nei.
Hef stundað strandveiðar á
trillu minni, Hönnu ST 49. Það er
nú sem fyrr skortur á gistiaðstöðu
í Árneshreppi á sumrin. Sumarið
2020 vantaði mig slíka aðstöðu.
Fór til Munda og spurði hvort
hann gæti skotið yfir mig skjóls-
húsi. Það var líkt og 55 árum fyrr;
ég var velkominn. Þetta kom sér
vel og ekki nóg með að hafa að-
stöðuna heldur var Mundi ávallt
með mat þegar ég kom heim af
sjónum, eftir 10-12 tíma. Stund-
um, sérstaklega ef ég fiskaði lítið,
þreyttur og í slæmu skapi þá var
gott að setjast til borðs með
Munda sem alltaf var í góðu skapi,
sá spaugilegu hliðarnar á flestum
málum og sagði sitthvað sem fékk
mig til að brosa þannig að þegar
upp var staðið og gengið til hvílu
var ég léttur í spori og léttur í
lund. Lífið var aftur orðið
skemmtilegt.
Sagt er að menn uppskeri eins
og þeir sái og þess fékk Mundi
vissulega að njóta. Það kom best í
ljós eftir brunann á íbúðarhúsinu
á Finnbogastöðum sumarið 2008,
þar brann allt sem brunnið gat og
jafnframt tveir hundar. Átakan-
legt. Í framhaldinu sýndu vinir og
samferðamenn Munda hvern hug
þeir báru til hans. Hafin var söfn-
un: Áfram Finnbogastaðir þar
sem safnað var fyrir nýju húsi sem
flutt var í vorið 2009 tæplega ári
eftir brunann. Þar lögðu margir
hönd á plóginn; með fjárframlög-
um, sjálfboðavinnu o.fl. Þetta mat
Mundi mikils.
Því miður var því ekki ávallt á
þann veg farið að Mundi uppskæri
eins og hann sáði. Hann mætti
óbilgirni og stóð í áralöngum
kostnaðarsömum málaferlum til
að verja hagsmuni sína gegn
skyldmennum sínum. Þau átök
voru Munda mínum erfið og gerðu
glímuna við heilsuleysið þungbær-
ari. Skrítið, þekkti Munda að ríkri
réttlætiskennd, sanngirni og með-
fæddri góðmennsku.
Þakka samfylgdina. Samúðar-
kveðjur til fjölskyldunnar frá mér
og fjölskyldu minni. Blessuð sé
minning Munda á Finnbogastöð-
um.
Hilmar F. Thorarensen
frá Gjögri.
Guðmundur Magn-
ús Þorsteinsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
STEINUNN GUÐNÝ SVEINSDÓTTIR
frá Kastalabrekku,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Kirkjuhvoli Hvolsvelli 1. júlí.
Útförin fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum mánudaginn
18. júlí klukkan 11.
Gróa Ingólfsdóttir
Þórunn Sigurðardóttir
Sigurveig Þóra Sigurðard. Lárus S Ágeirsson
Hildur Sigurðardóttir
Hulda Hansen
Guðlaug Sigurðardóttir Agnar R. Agnarsson
Hjördís Sigurðardóttir
Jóna Sigurðardóttir S. Kolbeinn Gunnarsson
og fjölskyldur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýju við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Grásteini í Ölfusi.
Kjartan Björnsson
Ingibjörg Kjartansdóttir Rúnar Sigurðsson
Björn Kjartansson Sigrún Jónsdóttir
Helena Kjartansdóttir Guðmar Jón Tómasson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg sambýliskona, móðir og amma,
ÞÓRDÍS JÓSEFÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 18. júlí klukkan 13.
Kristján Grétar Jónsson
Sigrún Linda Þorgeirsdóttir
Þórir Viðar Þorgeirsson
Rán, Röskva, Eir
og aðrir aðstandendur
Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BIRNA ÞORSTEINS VIGGÓSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ
þriðjudaginn 5. júlí. Útför hennar fer fram frá
Garðakirkju þriðjudaginn 19. júlí klukkan 13.
Alfreð Viggó Sigurjónsson Guðný Guðmundsdóttir
Bára Sigurjónsdóttir Garðar Agnar Garðarsson
Svavar Páll Sigurjónsson Anna María Hjaltadóttir
Margrét M. Sigurjónsdóttir Hrannar Örn Hrannarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýju við andlát og útför ástkærs eigimanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
GUÐMUNDAR INGA
GUNNLAUGSSONAR,
fv. bæjar- og sveitarstjóra.
María Busk
Ingibjörg Guðmundsdóttir Sveinn Skorri Skarphéðinsson
Guðmundur Ingi Guðmunds. Bylgja Brynjarsdóttir
María H. Guðmundsd. Busk Daði Sigurjónsson
Katrín Ó. Guðmundsd. Busk
Íris Guðmundsdóttir Sindri Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
ÞÓRÐAR SIGURÐSSONAR,
Reynihvammi 3a,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
krabbameinsdeildar Landspítalans og
HERU hjúkrunarþjónustu fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Edda Björnsdóttir
Björn Ingi Friðþjófsson Hildur Rut Ingimarsdóttir
Salka Þórðardóttir Ásbjörn Örvar Þorláksson
Þórhildur Braga Þórðardóttir
Bragi Sigurðsson Sigríður E. Bjarnadóttir
Jófríður H. Sveinsdóttir
Unnar, Orri, Edda, Gunnhildur og Ronja
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vináttu og hlýju við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, pabba, tengdapabba og afa,
EYJÓLFS HARALDSSONAR
læknis.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir
Eggert Eyjólfsson Hólmfríður Morgan
og barnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar