Morgunblaðið - 16.07.2022, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 16.07.2022, Qupperneq 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Það er allt undir hjá íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu á mánudaginn kemur þegar liðið mætir Frakklandi í lokaleik sín- um í D-riðli Evrópumótsins í Rot- herham. Með sigri tryggir liðið sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar og jafnar þar með sinn besta árang- ur í lokakeppni Evrópumótsins. Jafntefli gegn Frökkum gæti hins vegar dugað, gegn því að Ítalía og Belgía geri jafntefli í Manchester á sama tíma. Ísland gæti því komist áfram í 8 liða úr- slitin án þess að vinna leik sem er áhugaverð staðreynd. Frakkland er í þriðja sæti heimslista FIFA en liðið er eitt best mannaða landsliðs heims og gæti eflaust stillt upp þremur stórkostlegum byrjunarliðum sem gætu öll barist um Evrópu- meistaratitilinn. Ég var á EM í Hollandi fyrir fimm árum þegar Ísland féll úr leik í riðlakeppninni en fyrir loka- leikinn gegn Austurríki átti ís- lenska liðið ekki möguleika á því að komast upp úr riðlinum. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt og það eina sem ég bað um fyrir mótið í ár var að við ættum enn þá möguleika á að komast áfram þegar komið var að lokaleiknum. Frakkar eru búnir að vinna riðilinn og þeir geta því leyft sér að stilla upp veikara liði. Hvort þeir geri það þarf bara að koma í ljós en það er eitthvað sem segir mér að Frakkarnir verði ekki al- veg 100% á mánudaginn. Íslensk landslið eru hins vegar alltaf 150% þegar þau spila og það gæti gert gæfumun- inn þegar við mætum einu best mannaða landsliði heims. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is KNATTSPYRNA Besta deild karla: Kaplakriki: FH – Víkingur R ................ L18 Hásteinsvöllur: ÍBV – Valur .................. S16 Breiðholt: Leiknir R. – KA..................... S17 Akranes: ÍA – Stjarnan ..................... S19.15 Keflavík: Keflavík – Breiðablik ........ S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Ísafjörður: Vestri – Afturelding............ L14 Vogar: Þróttur V. – HK..................... S19.15 2. deild karla: Reyðarfjörður: KFA – Haukar ............. L14 Grenivík: Magni – Njarðvík................... L14 Þróttarv.: Þróttur R. – Höttur/Hug ..... L14 Sandgerði: Reynir – Völsungur ............ L14 3. deild karla: Höfn: Sindri – Víðir ................................ L14 Týsvöllur: KFS – Kári............................ L14 Blönduós: Kormákur/Hvöt – ÍH ........... L17 2. deild kvenna: Hlíðarendi: KH – Einherji..................... L14 Húsavík: Völsngur – Hamar .................. S13 UM HELGINA! EM U20 karla Leikið í Portúgal: Keppni um 9.-12. sætið: Slóvenía – Ísland ......................... (víti) 37:35 Ítalía – Færeyjar .................................. 28:30 _ Ísland leikur við Ítalíu um ellefta sætið á mótinu. Undanúrslit: Serbía – Spánn...................................... 29:32 Portúgal – Svíþjóð ................................ 25:24 _ Spánn og Portúgal leika um Evrópu- meistaratitilinn en Serbía og Svíþjóð um bronsið. Keppni um 5.-8. sæti: Þýskaland – Ungverjaland.................. 32:35 Danmörk – Frakkland ......................... 25:27 Keppni um 13.-16. sæti: Pólland – Svartfjallaland ..................... 30:26 Króatía – Noregur................................ 32:22 E(;R&:=/D Knattspyrnumaðurinn Willum Þór Willumsson gekk í gær frá þriggja ára samningi við hollenska úrvals- deildarfélagið Go Ahead Eagles. Hann kemur þangað frá BATE Bor- isov í Hvíta-Rússlandi en þar lék hann í þrjú og hálft ár eftir að hafa leikið með Breiðabliki til ársins 2018. Willum er 23 ára miðjumaður og hefur leikið einn A-landsleik fyr- ir Íslands hönd. Go Ahead er frá borginni Deven- ter í austurhluta Hollands og hafn- aði í þrettánda sæti af 18 liðum í úr- valsdeildinni síðasta vetur. Willum kominn til Hollands Ljósmynd/Go Ahead Holland Willum Þór Willumsson með treyju Go Ahead Eagles. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst í gær í gegnum niðurskurð- inn á Rosendaelsche-golfmótinu í Hollandi. Hún átti þó slæman hring, lék á 78 höggum, en hafði leikið þann fyrsta á fimmtudaginn á 70 höggum. Ólafía er því á fjór- um höggum yfir pari í 45.-64. sæti en það dugði til að komast áfram. Tveir síðari hringirnir eru leiknir í dag og á morgun. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er hinsvegar úr leik, hún lék á 78 og 74 höggum og varð í 90.-94. sæti á átta högg- um yfir pari. Ólafía komst áfram í Hollandi Ljósmynd/Golf.is Holland Ólafía Þórunn Krist- insdóttir keppir áfram. Í CREWE Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Ég er ánægður með mjög margt í leik íslenska liðsins á mótinu til þessa,“ sagði fyrrverandi landsliðs- þjálfarinn Freyr Alexandersson í samtali við Morgunblaðið þegar hann ræddi fyrstu leiki íslenska kvenna- landsliðins í knattspyrnu í lokakeppni Evr- ópumótsins á Englandi sem nú stendur yfir. Þrátt fyrir tvö jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu gegn Belgíu og Ítalíu á íslenska liðið ágætismögu- leika á því að komast upp úr riðlinum. Ísland er sem stendur í öðru sæti D-riðils með 2 stig, fjórum stigum minna en Frakkland sem er komið áfram í 8 liða úrslitin, og stigi meira en Belgía og Ítalía. Ísland þarf því á sigri að halda gegn Frakklandi í loka- umferðinni til þess að gulltryggja sér sæti í 8 liða úrslitunum en gæti þó komist áfram á jafntefli, mögulega þótt leikurinn tapist. Markmiðið var að vinna leik „Tvö stig úr fyrstu tveimur leikj- unum er ekki alslæmt en það er hins vegar þannig að markmið liðsins fyrir mótið var að vinna leik og það hefur ekki enn þá tekist,“ sagði Freyr sem stýrði liðinu frá 2013 til 2018. „Liðið hefur hins vegar verið djöf- ulli nálægt því. Að mínu mati eru miklu fleiri jákvæðir hlutir en nei- kvæðir og eitt það allra jákvæðasta er varnarleikurinn sem hefur verið virkilega öflugur. Við höfum fengið afar fá færi á okkur og flest þeirra hafa verið einhver langskot. Á sama tíma höfum við heldur ekki fengið margar skyndisóknir á okkur og þar vil ég hrósa varnarvinnu alls liðsins. Mér finnst Dagný líka hafa nýst mjög vel í þeim sem djúpur miðjumaður. Bara með því að spila góðan varn- arleik er upplifunin sú að þetta mót, hingað til, hafi aðeins verið stöngin út hjá okkur. Við höfum fengið mjög stór marktækifæri á þessu móti en það er hins vegar neikvætt hversu illa hefur gengið að klára þau betur. Öll okkur föstu leikatriði hafa verið stór- kostleg, sérstaklega löngu innköstin. Leikmenn liðsins hafa mikla trú á þeim og þeir trúa því að við séum að fara skora úr þeim öllum,“ sagði Freyr. Ekki sjálfsagður hlutur Landsliðsþjálfarinn fyrrverandi hrósaði samheldninni í íslenska lið- inu í hástert. „Það sem einkennir þetta lið er ofboðsleg samheldni og þótt hún eigi að vera sjálfsagður hlutur þá er hún það bara alls ekki. Það er til dæmis ekkert eðlilegt við það hvernig Sif og Elísa vinna sam- an, þótt þær séu í samkeppni um stöðuna. Þegar Gunnhildur fór af velli gegn Ítalíu stappaði hún stálinu í Alex- öndru sem kom inn á fyrir hana. Hallbera gerði það sama þegar Ás- laug Munda kom inn á fyrir hana. Það eru allir að róa í sömu átt og þetta er lykillinn í því að ná árangri sem lið.“ Karólína og Sveindís frábærar Ákveðnir leikmenn liðsins hafa fengið gagnrýni fyrir frammistöðu sína á mótinu. „Án þess að pikka út einhverja ákveðna leikmenn þá hefur enginn leikmaður átt slæmt mót að mínu mati. Sumir hafa spilað á pari á með- an aðrir hafa bókstaflega skinið mjög skært. Karólína Lea sem dæmi er stórkostlegur leikmaður og hún hef- ur átt frábæra spretti. Það er ekki hægt að ætlast til þess að hún búi eitthvað til í hverri einustu sókn en samt gerist alltaf eitthvað þegar hún fær boltann. Sveindís er sífellt ógnandi og bara það að hafa hana inni á vellinum gef- ur öðrum leikmönnum auka pláss til þess að vinna með. Það eru ein- hverjir sem vilja að Sveindís og Kar- ólína séu hluti af öllu sem liðið gerir en það er erfitt að spila upp á það í því leikkerfi sem liðið spilar. Þeirra frammistaða hefur verið ótrúlega já- kvæð og þeirra framtíð með liðinu er svo sannarlega spennandi.“ Værum með 6 stig En er hægt að gagnrýna liðið fyrir frammistöðuna í þessum fyrstu tveimur leikjum mótsins? „Í fyrsta lagi þá eru það dauðafær- in sem hafa farið forgörðum. Ef við hefðum nýtt færin okkar á þessu móti þá værum við með sex stig núna. Hjá mér eru þetta þrjú færi sem standa upp úr og við skorum úr þessum fær- um í 9 af hverjum 10 skiptum undir eðlilegum kringumstæðum. Það er hins vegar lítið hægt að gera í því núna og færanýtingin helst í hendur við bæði þreytu og svo spennustig. Í öðru lagi slitnar liðið of mikið í sundur á síðustu 20-25 mínútum leikjanna. Það gerist líka hjá and- stæðingum okkar en hefur meiri áhrif á íslenska liðið því við spilum á mjög háu orkustigi og verjumst og sækjum sem lið. Það er ekki mitt að dæma um form leikmanna en bæði spennustig og hátt hitastig í leikj- unum gæti haft eitthvað með þetta að gera.“ Kemur niður á uppspilinu Íslenska liðinu hefur ekki gengið vel að halda í boltann í fyrstu tveimur leikjunum. „Í þriðja lagi þá hefur okkur ekki gengið nægilega vel að halda í bolt- ann og uppspil liðsins hefur verið gagnrýnt. Ég skil þá umræðu en ég skil líka orsökina á bak við þetta. Staðan er sú að við erum með þrjá af betri stríðsmönnum Evrópufótbolt- ans á miðsvæðinu hjá okkur. Það er margt mjög jákvætt sem fylgir því og það gefur okkur heilan helling. Það kemur hins vegar niður á uppspilinu og það hefur vissulega verið stirt. Dagný er ekki vön að spila sem djúp- ur miðjumaður né leikstjórnandi. Við gerum kröfu á það að hún sé að stjórna spilinu gegn liðum sem eiga að vera betri en við mörg hver. Þá eru þeir bakverðir, sem við kjósum að nota, ekki þekktir fyrir að vera sterk- ir í stutta spilinu en þær búa yfir öðr- um kostum. Við veljum okkur ákveðnar týpur af leikmönnum til þess að spila þessa leiki, týpur sem eru kannski minna góðar að skila boltanum frá sér undir pressu.“ Kostir og gallar Einhverjir hafa kallað eftir því að Karólína Lea verði færð inn á mið- svæðið til þess að bæta upp- og miðjuspilið. „Það er mitt mat að Karólína sé að spila á kantinum til þess að hún fái meira frísvæði til þess að fá boltann í lappir og skapa þannig hættu. Ef þú ætlar að taka einhvern af stríðs- mönnunum á miðjunni út úr liðinu og færa Karólínu inn á miðjuna þá er hættan sú að við förum að tapa fleiri návígjum á miðsvæðinu sem getur verið mjög hættulegur leikur. Við höfum unnið gríðarlega mikið af boltum á miðjunni en vissulega myndi tilkoma Karólínu á miðsvæð- inu gefa okkur meiri ró á boltann. Hún fengi hins vegar minni tíma til þess að skapa eitthvað þar. Þegar allt kemur til alls þá er þetta val þjálf- arans og það eru kostir og gallar í þessu öllu saman. Fyrir mitt leyti þá er miklu meira jákvætt í gangi hjá ís- lenska liðinu en eitthvað neikvætt. Við ættum því að einbeita okkur að jákvæðu punktunum og byggja ofan á þá,“ bætti Freyr við í samtali við Morgunblaðið. Að vera með þrjá stríðs- menn hefur sína kosti - Freyr Alexandersson segir miklu meira jákvætt í gangi en neikvætt hjá Íslandi Morgunblaðið/Eggert Miðjumenn Sara Björk Gunnarsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fagna gegn Belgíu. Freyr Alexandersson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.