Morgunblaðið - 16.07.2022, Side 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHRIS
HEMSWORTH
CHRISTIAN
BALE
TESSA
THOMPSON
TAIKA
WAITITI
RUSSELL
WITH CROWE
NATALIE
AND PORTMAN
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON
LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR 82%
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem ég geri viðlíka úttekt
(skrifaði svona pistling 2019
síðast ef ég man rétt, sjá arnar-
eggert.is) en hér vil ég semsagt
beina sjónum, nei eyrum, að nokkr-
um íslenskum pönkhljómsveitum,
nústarfandi. Neðanjarðarsveitum
sem eru að gefa út um þessar
mundir og eru virkar, skipaðar
æskulýð
með kaf-
rjóðar kinn-
ar. Svona að
mestu.
Þetta er
ekki tæm-
andi upp-
talning og
ég er ekki
að fara að tala um þungarokk svo
ég stilli upp smá skilyrðingum.
Fyrst langar mig til að tala um
hljómsveitina Gaddavír en hún gaf
út plötuna Haltu kjafti, ég hef það
fínt í apríl síðastliðnum. Tónlistin er
stórbrotið melódískt keyrslupönk
og maður fær eldgamlar harð-
kjarnaminningar við áhlustun og
hugsar óneitanlega til meistara eins
og Minor Threat. Sveitin gerir út
frá Akranesi og þar hefur myndast
sæmilegasta pönkmenning. Krist-
ján Alexander Reiners Friðriksson
er þar aðalsprautan og er hann
meðlimur í mörgum sveitum, t.d.
Grafnár (sem eru með deiliplötu í
bígerð á þessu ári ásamt Forgarði
helvítis), Góðæri, sem er vélrænn
pönkdúett og Snowed In, sem leik-
„Hvernig fílarðu pönkið?“
Ljósmynd/Þorri Líndal
ur melódískt tilfinningapönk. Mjög
íslenskt verður að segjast, þar sem
einn aðili fer oft mikinn við að
halda hlutunum gangandi. Eldsálir
eins og þessar eru ómissandi.
Ég ætla líka að nota þetta
tækifæri og ræða nýju plötuna með
Börn og ekki er það leiðinlegt.
Þessi stórkostlega sveit var að gefa
út plötuna Drottningar dauðans í
gegnum Iron Lung Records og kom
hún út í ársbyrjun. Algerlega frá-
bær plata, tónlistin á sama tíma
undir áhrifum frá síðpönki að hætti
Siouxsie and the Banshees og grjót-
hörðu harðkjarnapönki. Alexandra
söngkona er meiri háttar, gítar-
hljómurinn hjá Önnu glæsilegur og
svo má áfram telja. Einstakt.
Ég gerði smá rannsókn fyrir
þessi skrif á veraldarvefnum og
fékk ýmsar skemmtilegar ábend-
ingar. Æð er m.a. skipuð Birni úr
Mosa frænda og Flosa úr Ham og
þar er framreitt hrátt pönk eins og
það kemur af kúnni (tékkið á stutt-
skífunni Á nálum). Tilkynning hefur
þá borist um stofnun nýrrar sveit-
ar, Duft, sem hefur m.a. á að skipa
liðsmönnum úr The Moronic, sem
hefur nú þrotið örendi. Mun hún
halda sínu fyrstu hljómleika í sum-
ar. Nefni líka Final Snack sem
kemur frá post-dreifing mann-
skapnum, mjög skemmtilega hrátt
rokk. Vírað dálítið og smá Big
Black yfir vötnum.
Þetta er svona það helsta sem
ég veiddi upp úr þessum polli í
þetta sinnið. Líf og fjör og bless-
unarlega er tiltölulega auðvelt að
nálgast tóndæmi frá þessu öllu sök-
um dásemda lýðnetsins. En tónlist-
armenning þessi hangir líka óskap-
lega mikið á tónleikaframkomu og
þar er mikil gróska, sýnist mér á
öllu, nægilega mikið framboð af
glúrnum rýmum og reglulegar há-
tíðir sem ég mun m.a. koma inn á
hér í endann.
Eðlilega hefur eitthvað
gleymst og þið megið senda mér
leiðréttingar og ábendingar í tölvu-
pósti. Helst var miðað við sveitir
sem hafa verið að gefa út á síðustu
misserum og/eða eru virkar tón-
leikalega eins og segir í upphafi
pistlings. Þess má þá geta að lokum
að flest þessara banda munu koma
fram á Norðanpaunkhátíðinni sem
haldin verður í lok júlí á Laugar-
bakka. Sjá: nordanpaunk.org. Þá
léku einhverjar þeirra á hinu dás-
amlega Eistnaflugi, en sú hátíð er
afstaðin.
»
En tónlistarmenn-
ing þessi hangir líka
óskaplega mikið á tón-
leikaframkomu og þar
er mikil gróska sýnist
mér á öllu
Nokkrar hljómsveitir,
íslenskar, leggja sig
eftir grjóthörðu, vel
rifnu og skítugu pönk-
rokki. Hér verður farið
í smáræðis úttekt á
þeim allra helstu.
Harðir Skagamenn
skoruðu mörkin ...
og léku pönk!
Sýning á verkum Bjargar Örvar
verður opnuð í dag, laugardag, kl.
16 í galleríinu Þulu við Hjartatorg í
miðbæ Reykjavíkur og ber hún tit-
ilinn Í jörðu djúpt undir umferðinni
bíður ófæddur skógur þögull í þús-
und ár sem er tilvitnun í ljóð eftir
Tomas Tranströmer.
Björg útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla Íslands árið 1979
og stundaði myndlistarnám við Uni-
versity of California 1981-1983.
Hún hefur sýnt víða og er þekkt
fyrir málverk sín sem í tilkynningu
segir að erfitt sé að skilgreina en
tenging við náttúruna, tilfinningar
og manneskjuna sé þó augljós.
Halldóra Kristín Thoroddsen,
skáld og rithöfundur, skrifar m.a.
um Björgu og verk hennar: „Nátt-
úrulífsmálarinn Björg Örvar fjallar
um kjarna málsins. Hið smæsta og
hið stærsta. Alheim og öreind. Í
hugleiðsluástandi skynjum við
stundum að innst inni erum við hið
sama og umhverfi okkar, örsaga í
því heildarverki, byggð því sama
efni. Maður, jörð og alheimur eru
eitt.“
Listmálari Björg Örvar sýnir í Þulu.
Ófæddur skógur
bíður þögull
Tónlistarhátíðin
Englar og menn
stendur nú yfir í
Strandakirkju
og á morgun kl.
14 koma fram
sópransöng-
konan Margrét
Hrafnsdóttir,
básúnuleikarinn
Stefán Ómar
Jakobsson og
gítarleikarinn Mikael Máni Ás-
mundsson sem leikur líka á harm-
óníku. Munu þau flytja íslensk
þjóðlög og sálma.
Þjóðlög og sálmar
Margrét
Hrafnsdóttir