Morgunblaðið - 16.07.2022, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022
Ljósmyndarinn Spessi mun fagna
uppsetningu á verki sínu „Alþýðu-
hetjur“ í Bryggjusal Edinborgar-
hússins í dag, laugardag, kl. 17. Er
verkið endurgerð Spessa á um
hundrað ára gamalli ljósmynd sem
tekin var í Neðstakaupstað á Ísa-
firði og mynd Spessa hluti af sýn-
ingarröðinni 4 Umhverfing sem
stendur yfir í sumar í Dölum, Vest-
fjörðum og á Ströndum.
Segir í tilkynningu frá Spessa að
menningarlegt og listrænt gildi
verkefnisins sé m.a. að gefa fólki
kost á að upplifa nútímamyndlist,
fræðast um listaverkin og fá tæki-
færi til samtals við listamennina.
Alþýðuhetjur Níu fiskverkakonur stilla sér upp fyrir myndatöku með verk-
stjóra sínum. Myndin er endursköpun Spessa á ljósmynd af saltfiskverka-
konum á 100 ára gamalli ljósmynd úr Neðstakaupstað á Ísafirði.
Endurgerði hundrað
ára gamla ljósmynd
Hundrað Myndin sem Spessi endur-
gerði, tekin fyrir um 100 árum.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýningin Ljómandi þægilegt verður opnuð í
dag, laugardag, í Gallery Porti við Lauga-
veg. Þar sýna hjónin Óskar Hallgrímsson og
Ma Riika ofin verk sem þau unnu í samein-
ingu í Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst
þar í landi, á vinnustofu sinni í miðborg
Kænugarðs.
Á Facebook segir um titil sýningarinnar
að hann vísi í ljósið sem hlýi í lægðum, ljósið
við endann á göngunum, ljómann sem skíni
af þeim sem sýni dug og spyrni á móti þegar
vindar blási. Verk þeirra hjóna eru hand-
saumuð teppi úr ull og akrýl og mynda eina
heild sem sería og skapa ímyndaðan heim,
eins og því er lýst. „Teppaserían er raun-
veruleikinn klæddur í ham ljómans og þægi-
leikans, ekki nýr heimur í gegnum aðra
vídd, heldur raunveruleikinn hlýjaður,“ seg-
ir um verkin og að listamennirnir hafi klætt
sinn veruleika í nýjan búning og ótti orðið að
andspyrnu. Eru sýningargestir hvattir til að
koma saman og snerta, knúsa og finna
hlýjuna í tímanum sem teppin boði.
Ósýnileg og sýnileg ógn
Óskar segir blaðamanni að þau hjón hafi í
fyrra haldið aðra „þægilegt“-sýningu og hét
sú Nokkuð þægilegt. Hann segir að pælingin
með fyrri sýningunni hafi verið að flýja hinn
ósýnilega óvin Covid-19. „Við hurfum inn í
þennan heim að losna frá því og komast inn í
eitthvert þægilegt umhverfi,“ útskýrir Ósk-
ar. Að þessu sinni hafi verið erfiðara að
hoppa inn í annan heim þar sem stríð geisar
í heimaborg þeirra hjóna.
Óskar hefur verið að ljósmynda og vinna
fréttir í Úkraínu frá því innrásin hófst og
hefur það efni verið birt hér í Morgun-
blaðinu. Þegar stundir gáfust vann hann
með eiginkonu sinni að listaverkunum. Þau
eru nú stödd hér á landi til að setja upp sýn-
inguna og opna hana og halda eftir það til
Spánar í frí, að sögn Óskars. Hann segir eig-
inkonu sína ætla að fríi loknu að hitta vin-
konur sínar sem orðnar séu flóttamenn í
ólíkum löndum Evrópu. „Ég fer síðan beint
aftur til Úkraínu og held áfram að mynda,“
segir Óskar.
Hann er spurður að því hvort hann sé
ekki að stefna sér í hættu með því og segir
hann að jú, hann geri það en á móti komi að
innrás Rússa í Úkraínu sé einn stærsti við-
burður 21. aldarinnar. „Maður reiknar út
hættuna, ég er ekki alveg að fara að framlín-
unni,“ útskýrir Óskar. Hann hafi þó verið á
átakasvæðum.
Óskar segist einkum fjalla um afleiðingar
stríðsins í ljósmyndum sínum. „Ég vil frekar
segja persónulegar sögur sem fólk getur
tengt við,“ segir Óskar. Hann sé því ekki
stríðsljósmyndari á framlínunni, aðrir séu í
því hættulega starfi. Óskar segist ætla að
halda áfram þessari skrásetningu að stríðinu
loknu, á lífi fólks í Úkraínu.
Baðherbergið veitti skjól
Óskar segir nokkur verkanna á sýning-
unni mikilvæg þeim hjónum og sitja fast í
þeim. Eitt þeirra, mjög stórt, sýni sprengju-
byrgi sem þau hafi komið sér upp inni á baði
heima hjá sér í Kænugarði. „Það var örugg-
asti staðurinn og við vörðum svakalega mikl-
um tíma þar,“ segir Óskar. Þau hafi verið
með dýnu á gólfinu til að liggja á. „Við erum
að reyna að klæða raunveruleikann í þennan
búning,“ útskýrir Óskar og nefnir sem dæmi
að í verkunum sjáist vegartálmar líkt og
þeir sem hlaðnir hafi verið úr sandpokum
víða um borgina.
Hvað varðar miðilinn sem þau vinna með,
teppi, segir Óskar hann vísa í þægindi, ör-
yggi og mýkt. „Snerting er líka mjög mikil-
væg fyrir okkur, það má koma við teppin
okkar,“ segir Óskar. Efniviðurinn sé slíkur
að fólk langi að snerta hann.
Engin harmsaga
Óskar segir verkin á sýningunni tengjast
hvert öðru og mynda eina sögu sem sé þó
ekki harmsaga. „Þetta á að vera þægilegt,
gott og hlýtt, vekja von. Þetta er ljósið við
endann á göngunum og hlýja. Það er tilfinn-
ingin sem við erum með úti í Úkraínu, fyrstu
vikurnar af stríðinu fundum við fyrir ótta-
tilfinningu en tilfinningin hjá okkur núna er
þessi andspyrna og samhugur. Það er eng-
inn að fara að gefast upp,“ segir Óskar og
vonast til þess að þessar tilfinningar skíni í
gegnum verkin á sýningunni.
Óskar er með BA-gráðu í grafískri hönn-
un og hefur starfað sem ljósmyndari í 18 ár,
gefið út ljósmyndabækur og tekið þátt í
myndlistarsýningum. Ma Riika er með
myndlistarnám að baki og nam einnig list-
meðferð. Hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga og haldið einkasýningar víðsvegar
um Úkraínu ásamt því að vinna sem húðflúr-
ari í lausaverkum. Sýningin í Gallery Porti
stendur yfir til 30. júlí.
Ljósið við enda ganganna
- Óskar Hallgrímsson og Ma Riika opna sýninguna Ljómandi þægilegt í Gallery Porti í dag - Verk
unnin í Kænugarði á stríðstímum - Klæddu veruleikann í nýjan búning og ótti varð að andspyrnu
Listahjón Óskar Hallgrímsson og Ma Riika innan um nokkur verka sinna. Þau opna sýningu í dag í Gallery Porti sem er á Laugavegi 32.