Morgunblaðið - 16.07.2022, Side 37

Morgunblaðið - 16.07.2022, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 2022 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúð, Matarbúðin, Frú lauga, Gott & blessað, Skagfirðingabúð og Matarbúr Kaja Akranes Lífrænt og ljúffengt Tvennir tónleikar verða haldnir núna um helgina í sumartónleika- röðinni Orgelsumar í Hallgríms- kirkju. Í dag, laugardag, kl. 12 munu Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti í Grafarvogskirkju, og Dorthe Højland, saxófónleikari frá Danmörku, snúa bökum saman sem Duo BARAZZ. „Tónleikarnir eru spunaferðalag um lendur tónlistar- innar þar sem kunnugleg lög bíða áheyrenda við hverja óvænta beygju, og til að spilla ekki óvissu- ferðinni verður efnisskráin ekki af- hent fyrr en að tónleikunum lokn- um,“ segir í tilkynningu og að miða- sala fari fram við innganginn og einnig á tix.is. Á morgun kl. 17 mun Damin Spritzer, organisti frá Okla- homa í Bandaríkjunum, leika verk eftir Becker, Howe, King, Widor og Bach og fer miðasala fram með sama hætti. Dúett Lára Bryndís og Dorthe Højland. Óvissa og organ- isti frá Oklahoma Pólska þáttaserían Drottning (Królowa) kom út á Netflix 23. júní sl. Er það dramasería skrifuð af Árna Ólafi Ásgeirssyni og Kacper Wysocki en leikstjóri er Lukasz Kosmicki. Kosmicki er vinsæll pólskur kvikmyndatöku- maður, handritshöfundur og leik- stjóri. Hann er þekktur fyrir að hafa leikstýrt The Coldest Game (2019) og The Dark House (2009). Drottning er byggð á hugmynd Árna Ólafs og er hann titlaður höfundur (e. creator) þáttanna. Samkvæmt frétt á vefsíðu Klapp- trés stóð til að Árni leikstýrði þáttunum en hann lést í fyrravor. Þættirnir fjalla um um Sylwester, klæðskera á eftirlaunum í París, sem fær bréf frá barnabarni sínu, Iza/Izabelu, sem segir að dóttir hans þurfi nauðsynlega á nýrna- ígræðslu að halda. Sylwester snýr aftur heim til Póllands og er dótt- ur hans, Wiolettu, ekki skemmt við að sjá föður sinn sem yfirgaf þau fyrir mörgum árum. Samband föður og dóttur Drottning er fjölskyldudrama um samband föður og dóttur og hvernig þau bæta upp fyrir liðin ár. Þar að auki fjallar þáttaröðin um mikilvægi þess að tjá og samþykkja sitt sanna sjálf fyrir framan ástvini, eins og Sylwes- ter gerir en hann er jafn- framt fræg dragdrottning í París að nafni Loretta. Í hlutverkum Sylwesters og Wiolettu eru pólsku leikararnir Andrzej Seweryn og Maria Peszek sem léku t.d. áður saman í Schind- ler’s List (1993) eftir Steven Spiel- berg. Seweryn er þekktur leikari og leikstjóri í Póllandi. Hann hefur leikið í yfir 50 kvikmyndum í Pól- landi, Frakklandi og Þýskalandi og er forstjóri pólska leikhússins í Varsjá, að því er fram kemur á vefsíðunni Meaww. Fleiri þekktir leikarar verða í þáttunum, meðal annarra Julia Chetnicka, Piotr Witkowski og Antoni Porowski úr Queer Eye. Þættirnir eru aðeins fjórir í Drottningu og því tilvaldir til hámáhorfs núna um helgina. jonagreta@mbl.is Dragdrottning, klæð- skeri og faðir í senn - Netflix-þáttaröð skrifuð af Árna Árni Ólafur Ásgeirsson S tella Blómkvist kemur hress inn í sumarið með Morðinu í Öskjuhlíð og þó hún sé að hasla sér völl í ríkjandi karlaveldi 1995 eru mark- miðin skýr með Stellusjóðinn í for- gangi. Hér er ég komin, er boð- skapurinn á milli línanna. Sagan fjallar annarsvegar um morð á blaðamanni og hinsvegar um nauðgun. Tvö óskyld mál í Reykjavík en nýútskrifuðum lögfræðingi er ekkert óvið- komandi og hann hefur ráð undir rifi hverju. Gaman er að lesa um hvernig Stella vefur fólki, sérstaklega valdamiklum körlum, um fingur sér. Hún getur allt, er með ofur- kraft og hikar ekki við að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur. Hún hræðist hvorki eftirlýstan glæpamann í Evrópu né verðandi áhrifamann í pólitík þegar réttlætið er annarsvegar. Allt fyrir Stellu- sjóðinn. Að sama skapi eru endur- tekningarnar frekar hvimleiðar að ónefndum hikorðunum úff, umm og svo framvegis. En tilgangurinn helgar meðalið og allt þjónar til- gangi hjá Stellu. Morðið í Öskjuhlíð er þrettánda bókin um Stellu en hér segir frá atburðum sem gerðust fyrir tæp- lega 30 árum. Horft er í baksýnis- spegilinn og málin leyst með nútímaaðferðum, sem kemur ekki á óvart, því Stella er margslungin og sér áratugi fram í tímann. Stella ætlast sennilega ekki til þess að samnefnd söguhetja sé tek- in alvarlega enda er hugmyndin líklega frekar sú að gantast með menn og málefni, vekja athygli á stirðbusalegu kerfinu og þeim sem því ráða, og sýna fram á að konur geta gert allt sem karlar gera og jafnvel mun betur, hvort sem er í vinnunni eða einkalífinu. Stundum hittir Stella algerlega í mark, stundum ekki. Það er til dæmis gott að lesa þessa bók eftir að hafa verið gripinn af svartstökk- um í bólinu á um tíu km of miklum hraða, eins og í Ártúnsbrekkunni, þar sem engin hætta er í þurru og góðu veðri. Við slíkar aðstæður er Stella ómissandi. Hörkukvendi Þar sem Stella Blómkvist er hulduhöfundur er ekki til ljós- mynd af henni en hér má sjá Heiðu Rún Sigurðardóttur í hlutverki Stellu í sjónvarpsþáttum sem gerðir voru eftir bókum hennar og nutu vinsælda. Glæpasaga Morðið í Öskjuhlíðbbbmn Eftir Stellu Blómkvist (höfundarnafn). Kilja. 252 bls. Mál og menning 2022. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Stella kemur undir sig fótunum Torfa nefnist sýning þýska mynd- listarmannsins Philipps Valenta sem opnuð verður kl. 16 á morgun, sunnudag, í galleríinu Úthverfu á Ísafirði. Galleríinu hefur verið breytt í fiskabúr þar sem verkið „Síldarævintýri“ er sýnt sem stað- bundin innsetning á öllum veggjum rýmisins, að því er fram kemur í til- kynningu og segir þar að sýningin sé tilvísun í síldarævintýrið svokall- aða á Íslandi. Efniviður síldartorfu Valenta er ál þar sem álframleiðsla er sögð mikilvægur iðnaður á Ís- landi í dag. „Árið sem síldarævin- týrinu lauk var fyrsta álverið tekið í notkun í Hafnarfirði og þá hófst hið eiginlega „álævintýri“ á Íslandi. Hljóðverkið „Fish Factory“ er hluti af sýningunni og fyllir salinn hljóði. Verkið er sam- starfsverkefni bandaríska tón- skáldsins Nathan Hall og Philipp Valenta,“ segir í tilkynningu og að myndbands- verkið „Warte“ verði einnig til sýnis í tengslum við sýninguna. Það sýnir listamann- inn í ólíku íslensku landslagi þar sem hann bara bíður og horfir í kringum sig. „Warte“ er þýska og hefur orðið tvenns konar merkingu, þ.e. varða og bíða og sameinar þetta tvennt, bið og varðaðan stað eða útsýn- isstað, eins og segir í tilkynningu. Síld úr áli á sýningu Valenta í Úthverfu Philipp Valenta Kvartett Barkar Hrafns Birgis- sonar og Rebekku Blöndal kemur fram á sjöundu tónleikum sum- arsins í tónleikaröð Jómfrúar- innar við Lækjargötu. Daði Birgisson leikur á píanó og orgel, Scott McLemore á trommur og Snorri Sigurðarson á trompet. Fyrir hlé verður frum- flutt tónlist af væntanlegri plötu Barkar, Bara blús, og eftir hlé bætist söngkonan Rebekka Blön- dal í hópinn og tekur nokkra vel valda standarda. Tónleikarnir fara að venju fram á Jómfrúartorginu fyrir aft- an veitingastaðinn og hefjast kl. 15. Aðgangur að þeim er ókeypis og gengið inn á torgið frá Lækj- argötu. Kvartett Barkar og Rebekku á Jómfrú Blámi Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari gefur brátt út plötuna Bara blús. Helgi Björnsson heimsækir alla landsmenn um verslunarmanna- helgina en hann verður með tón- leika í beinu streymi frá Tjörninni á laug- ardagskvöldið. Helgi verður með úrval gesta með sér eins og venjulega en eins og venjan er þá kemur gestalistinn á óvart. Reið- menn vindanna verða á sínum stað og efnisskráin að vanda við al- þýðuskap. Streymið hefst klukkan 21 og meðal annars hægt að tryggja sér aðgengi í gegnum Sím- ann. Í beinni um versl- unarmannahelgina Helgi Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.