Morgunblaðið - 16.07.2022, Síða 40

Morgunblaðið - 16.07.2022, Síða 40
70% afsláttur af öllum vörum Rýming Troðfull verslun af merkjavöru! laugardaga frá kl. 11 til 17 sunnudaga frá 13 til 17Opið virka daga frá kl. 11 til 18 Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen) Tvær sýningar verða opnaðar kl. 14 í dag, laugardag, í Ás- mundarsal. Það eru sýningar Claire Pau- gam, Essentially un- titled, og Ásgeirs Skúlasonar, „Getur þú ekki gert eitt- hvað úr þessu?“ Claire vinnur með afbyggingu, rým- isskynjun og sjón- hverfingar og leyfir gestum að ganga inn í myndirnar, hreyfa við þeim og sjá nýja möguleika á meðan Ásgeir hefur endur- unnið fundnar golfkúlur og tileinkar sýninguna föð- ur sínum sem hefur safnað kúlunum á göngutúrum sínum síðustu ár, að því er fram kemur í tilkynn- ingu. Rýmisskynjun og golfkúlur LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 197. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Austurríki lagði Noreg að velli í úrslitaleik liðanna um sæti í átta liða úrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta á Englandi í gærkvöld með 1:0 sigri. Það verða því Austurríki og Þýskaland sem mætast í átta liða úrslit- um en Norðmenn eru á heimleið ásamt Norður-Írum sem töpuðu 5:0 fyrir Englendingum. »32 Austurríki sendi Norðmenn heim ÍÞRÓTTIR MENNING Ásthildur Hannesdóttir asthildur@mbl.is Aldrei í sögu Þjóðhátíðar hafa ein- ungis kvenkyns flytjendur staðið á sviðinu í Herjólfsdal og flutt þjóðhátíðarlag fyrir augum og eyrum mörg þúsund þjóðhátíð- argesta. Það verður því stór og söguleg stund þegar Klara Elías, höfundur þjóðhátíðarlagsins í ár, sem nefnist Eyjanótt, kemur til með að flytja lagið ásamt Kvenna- kór Vestmannaeyja. Kristín Halldórsdóttir, formaður Kvennakórs Vestmannaeyja, er að vonum spennt fyrir uppákomunni sem á sér engin fordæmi í sögu Þjóðhátíðar. Fyrsta æfing Klöru og kvennakórsins átti sér stað í húsi Tónlistarskólans í Vest- mannaeyjum í gær og gekk glimr- andi vel, að sögn Kristínar. „Við vorum staddar í kvenna- kórspartíi eftir vortónleika sem við gátum loksins haldið eftir Co- vidpásu, þegar við heyrum þjóðhátíðarlagið í fyrsta skipti og við fórum strax að tala um það hvað það væri geggjað að hafa kvennakór á sviðinu,“ segir Krist- ín um tildrögin en aðeins eru tvö ár liðin frá því að Kvennakór Vestmannaeyja var stofnaður. Tóku málin í sínar hendur „Karlakórinn okkar hefur áður fengið að taka þátt í skemmtana- haldinu á Þjóðhátíð og var með Sverri Bergmann á sviðinu á sín- um tíma og hafa meðlimir kórsins talað um hvað það hafi verið mikil upplifun. Okkur fannst bara kom- ið að okkur núna,“ segir Kristín sem ákvað að taka málin í sínar hendur og sendi skilaboð á Klöru til að viðra hugmyndina við hana. „Þá hafði hún verið búin að skoða kóra en hafði ekki fundið neitt um kóra í Vestmannaeyjum en hana langaði og hafði séð fyrir sér að hafa kór á sviðinu en fann ekkert um okkur,“ segir Kristín, sannfærð um að þær Klara hafi fengið hugskeyti hvor frá annarri. Söguleg stund „Þetta verður í fyrsta skipti í sögu allra þjóðhátíðarlaga sem það verða bara konur á sviðinu að flytja lag,“ útskýrir Kristín en samkvæmt venju verður þjóðhá- tíðarlagið frumflutt á kvöldvöku föstudagskvöldsins á Þjóðhátíð fyrir fullum Herjólfsdal af hátíð- argestum. „Ég vann tvisvar Söngvakeppni barna á Þjóðhátíð þegar ég var krakki og hef því stigið á sviðið áður, en þetta verður svolítið stærra augnablik. Ég alla vega vona að það verði aðeins fleiri í brekkunni núna heldur en þegar ég söng í Söngvakeppni barna,“ segir Kristín og hlær. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Eyjar Söngkonan Klara Elías æfði þjóðhátíðarlagið sitt í ár ásamt Kvennakór Vestmannaeyja í gær. Konur í aðalhlutverki á Þjóðhátíð í Eyjum - Söguleg stund í sögu hátíðarinnar - 30 konur á sviðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.