Læknablaðið - 01.11.2021, Blaðsíða 51
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 555
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Í þessu tölublaði Læknablaðsins birtist
grein eftir læknana Rögnu Sif Árnadóttur
og Hjalta Má Björnsson þar sem farið
er yfir útköll björgunarsveita landsins
á tveggja ára tímabili, 20172018.1 Eftir
því sem næst verður komist er þetta í
fyrsta sinn sem ritrýnd, læknisfræðileg
vísindagrein er birt um viðfangsefni
íslenskra björgunarsveita. Er það vel og
gleður auga þess er hér ritar því þó að
björgunarsveitarfólk teljist ekki formlega
til heilbrigðisstétta reynist margt líkt með
skyldum þegar að er gáð.
Eins og fleiri heilbrigðisstéttir hafa
læknar oft átt samstarf við björgunarsveit
ir landsins og með ýmsum hætti. Segja
má að björgunarsveitirnar séu framan við
fremstu víglínu heilbrigðisþjónustunn
ar því þeim er ætlað að bregðast við til
bjargar nauðstöddum í aðstæðum þar sem
aðrir viðbragðsaðilar þjóðfélagsins, þar á
meðal heilbrigðiskerfið, ná ekki til hinna
hjálparþurfi með sínum venjulegu úrræð
um. Kemur þá í hlut björgunarsveitafólks
að veita fyrstu hjálp og koma þeim sem
með þurfa í hendur heilbrigðisstarfs
manna. Á síðari árum hefur á vissum
stöðum á Íslandi komist á samstarf björg
unarsveita og sjúkraflutninga þar sem
vettvangsliðar koma inn í fyrsta viðbragð
við útkall hinna síðarnefndu og eru þar
með orðnir beinir þátttakendur í heil
brigðisþjónustu.
Læknar og björgunarsveitir
Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn
hafa sumir gengið alla leið ef svo má segja
og verið virkir félagar í björgunarsveitum
um lengri eða skemmri tíma. Í tilefni
af erindi sem flutt var á Læknadögum
fyrir áratug síðan rifjaði sá er þetta
ritar upp til gamans nöfn þeirra lækna
sem hann hafði haft veður af við störf í
björgunarsveitunum síðustu áratugina.
Með hjálp nokkurra úr þeim hópi náði
fjöldinn nærfellt þremur tugum og
Lækningar og björgunarstörf
Jón Baldursson
læknir
jonbald@landspitali.is
með betri aðferðafræði hefði sú tala
eflaust orðið hærri. Tekið skal fram
að hér var eingöngu átt við þá lækna
sem lokið höfðu nýliðaþjálfun og gerst
fullgildir félagar í björgunarsveit.
Einnig hafa læknar starfað með íslensku
alþjóðabjörgunarsveitinni og nokkrir lagt
með henni í leiðangra til hjálparstarfa á
fjarlægum slóðum.2
Leiðir heilbrigðisstétta og björgunar
sveitafólks liggja að sjálfsögðu saman
undir formerkjum almannavarna. Þar
er eitt af hlutverkum björgunarsveita að
koma til liðs við heilbrigðisþjónustuna,
svo sem við störf á vettvangi hópslysa.
Allir björgunarsveitamenn fá lágmarks
þjálfun í fyrstu hjálp en sumir þjálfa sig
sérstaklega á því sviði, meðal annars til
að búa sig undir þátttöku í verkefnum
þar sem reynir á almannavarnir. Læknar
og landlæknir hafa stutt við þjálfun og
skipulag vettvangshjálpar í óbyggðum
(Wilderness First Responder – WFR)
sem getið er um í grein þeirra Rögnu og
Hjalta.1 Mörg dæmi eru um að læknar
veiti ráðgjöf um störf björgunarsveita og
taki þátt í kennslu fyrir björgunarsveita
fólk og þjálfun þess. Á okkar dögum er
líka til komin fjarlækningatækni sem
snjallt væri að læknar og björgunarsveita
fólk nýttu sér til samstarfs með skipuleg
um hætti.
Nálgast hundrað aðgerðir árlega
Niðurstöður rannsóknarinnar sem nú
birtist eru um margt áhugaverðar eins
og vænta mátti. Ber þar fyrst að nefna að
fjöldi aðgerða sem björgunarsveitir taka
þátt í árlega til hjálpar slösuðum og veik
um slagar upp í hundraðið. Það er dágóð
tala í ekki fjölmennara þjóðfélagi þegar
haft er í huga sem fyrr sagði að björg
unarsveitir eru ekki kvaddar til úrlausnar
hversdagslegra verkefna heldur óvenju
legra. Undan eru skilin þau tilfelli þar
sem vettvangsliðar björgunarsveita voru
til kallaðir vegna sjúkraflutninga eins og
fyrr var lýst.
Helmingur útkalla var vegna
erlendra ferðamanna, enda mikill fjöldi
þeirra á ferð hér á landi á árunum fyrir
yfirstandandi heimsfaraldur. Mikill
meirihluti verkefna kom til vegna
slasaðra, mun færri vegna veikinda.
Alvarlegir áverkar voru ekki eins algengir
og meðal þeirra sem fluttir voru með
þyrlu, sem bendir til að sú þjónusta
sé vel og réttilega nýtt.3 Niðurstöður
rannsóknarinnar undirstrika jafnframt að
sumum verður ekki til hjálpar komið með
neinum úrræðum öðrum en þeim sem
björgunarsveitir búa yfir.
Loks má segja að nú sé kveðin niður
sú hviksaga að björgunarsveitir fáist að
allega við að bjarga eigin liðsmönnum
úr klandri. Þótt höfundi þessara lína séu
kunn örfá slík tilvik á nærfellt hálfrar
aldar ferli reyndist ekkert slíkt hafa komið
upp á því tveggja ára rannsóknartímabili
sem hér var frá sagt.
Björgunarhreyfingin á Íslandi hefur
eflst og þroskast vel síðustu hálfa öldina.
Um það getur höfundur þessara lína
vitnað af eigin raun. Eftir því sem starf
seminni vex fiskur um hrygg, kunnátta
og þekking eykst og sérhæfing þar með,
verður þörf björgunarsveitafólks meiri
fyrir bakstuðning sérfræðinga úr hinum
ýmsu stéttum þjóðfélagsins. Læknar eru
ágætt dæmi um það og hafa sýnt þessu
hlutverki áhuga. Mikilvægur liður í að
rækja þetta hlutverk er að beita vísinda
legum aðferðum læknisfræðinnar til að
afla frekari þekkingar og skerpa skilning
á starfi björgunarsveitanna. Hér hefur
mikilsvert skref verið stigið í þá átt.
Höfundur er læknir og félagi
í hjálparsveit frá unga aldri,
fyrrverandi sveitarforingi, nú
ekki lengur á útkallsskrá en
virkur í hópi eldri félaga.
Heimildir
1. Árnadóttir RS, Björnsson HM. Útköll Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, vegna slysa og bráðra veikinda, á árunum
20172018. Læknablaðið 2021; 107: 51521.
2. Guðnadóttir KE. Hamfarir á Haití. Slysavarnafélagið
Landsbjörg. Reykjavík 2010.
3. Pétursdóttir SG. Neyð í óbyggðum á Íslandi. skemman.
is/bitstream/1946/29518/1/ms_lokaritgerd_sigrun_
juni_2017.pdf október 2021.