SÍBS blaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 3
3
2. tbl. 2022
Það getur virst yfirþyrmandi verkefni
að takast á við lífsstílinn. Það getur
hljómað eins og allir eigi að fara út að
hlaupa eða í ræktina og á okkur dynja
misvísandi skilaboð um að eitthvað sé
ofurfæða og annað eigi að forðast. Svo
verðum við auðvitað að sofa nóg og
huga að andlegri heilsu.
Jafn óreiðukennd og umræðan
getur virst okkur er það þó alveg óum-
deilt að lífsstíll hefur gríðarleg áhrif á
heilsu. Málið er bara að það eru engar
töfralausnir til. Lífsstíll er ekkert annað
en samansafn lítilla ákvarðana sem við
tökum á hverjum degi. Með því að bæta
þessar ákvarðanir mun mikið ávinnast
hvað varðar heilsu og líðan.
Þá erum við komin að kjarna málsins: ákvörðunum. Við tökum fleiri
ákvarðanir en við gerum okkur grein fyrir yfir daginn, því við erum föst í
viðjum vanans. Við setjumst kannski niður, kveikjum á sjónvarpinu, náum
í súkkulaði, horfum á einn spennuþátt í viðbót þótt klukkan sé orðin margt
og sækjum okkur meira súkkulaði.
Án þess að taka eftir því áttum við þarna mörg tækifæri til að gera þessa
kvöldstund hollari og betri fyrir okkur sjálf. Hvað með að reyna að láta sér
alltaf detta í hug einhvern hollari valkost og velja svo á milli í stað þess að
keyra á sjálfstýringunni? Dæmið hér að ofan gæti þá hljómað svona: Sjón-
varp eða göngutúr, súkkulaði eða ávöxtur, spennuþáttur fyrir svefninn eða
bara fara beint í háttinn?
Besta hvatningin felst í gleðinni yfir því að stíga fyrstu skrefin. Gerum
það fyrir okkur sjálf að gefa okkur hollari valkost og gleðjumst þegar við
getum valið hann. Við skulum heldur ekki álasa okkur þegar það mistekst
heldur halda áfram að bæta allar litlu ákvarðanirnar sem geta bætt árum við
lífið og lífi við árin.
Leiðari
Úr viðjum vanans
SÍBS-blaðið
38. árgangur | 2. tölublað | júní 2022
ISSN 1670-0031 (prentuð útgáfa)
ISSN 2547-7188 (rafræn útgáfa)
Útgefandi: SÍBS
Borgartúni 28a
105 Reykjavík
sibs@sibs.is, www.sibs.is
Ábyrgðarmaður: Guðmundur Löve
gudmundur@sibs.is
Ritstjóri: Páll Kristinn Pálsson
pallkristinnpalsson@gmail.com
Auglýsingar: Öflun ehf.
Umbrot og prentun: Prentmet Oddi ehf.
Upplag: 10.000 eintök
Hlutverk SÍBS er að stuðla
að heilbrigði þjóðarinnar.
SÍBS á og rekur
endurhæfingar miðstöðina Reykjalund,
öryrkjavinnustaðinn Múlalund,
Heilsumiðstöð SÍBS og
Happdrætti SÍBS.
Efnisyfirlit
3
Úr viðjum vanans
4
Bætt heilsa með betra mataræði
8
Hreyfing – Lykill að betri líðan
12
Ég elska að reyta arfa
16
Setur þú svefninn í forgang?
20
Af stað gegn streitu og kulnun
Guðmundur Löve
framkvæmdastjóri SÍBS
til
gó ger ar-
málaauka
vítamín
smáir
drykkir
stórir
draumar
innocent
smoothies
með dálitlu
auka
Auka vítamín og
auka góðverk