SÍBS blaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 10

SÍBS blaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 10
10 SÍBS-blaðið Hreyfing þarf að vera reglubundin til þess að hún geri gagn og skili árangri. Ef hreyfing er lítil hverju sinni er mælt með því að hún sé stunduð oftar yfir daginn. Líkaminn bregst fljótt við hreyfingunni og fólk finnur fyrir auknum styrk og vellíðan. Álag þarf síðan að auka jafnt og þétt eftir því sem fólk hreyfir sig meira. Þægilegt er að tengja hreyfingu við vinnu eða dagleg störf ef sá möguleiki er fyrir hendi. Sem dæmi má nefna að ganga eða hjóla í vinnuna, ganga upp og niður tröppur í stað þess að taka lyftur og leggja bifreið einhvern spöl frá áfangastað. Þau sem ekki hafa tækifæri til að hreyfa sig á þennan hátt geta framkvæmt hreyfingar sitjandi, svo sem að rétta úr fótum og höndum og hreyfa axlir og háls. Einnig má nefna gildi þess að standa upp reglulega, teygja úr sér, ganga að glugga eða dyrum og anda að sér fersku lofti. 2. Rólega Eitt af grundvallaratriðunum þegar byrjað er að stunda hreyfingu er að fara ekki of geyst af stað og ætla sér ekki of mikið heldur verja lengri tíma frekar en styttri í rólega fas- anum. Með því er átt við að byrja hægt, hafa hægan stíganda í hreyfingunni og leyfa sér að njóta þess að hafa stigið fyrsta skrefið í átt að lífi þar sem hreyfing er hluti af lífsmynstrinu. Mikilvægt er að dvelja í núinu og einbeita sér að því augna- bliki sem viðkomandi manneskja er stödd í hverju sinni. Ef til dæmis verið er á göngu, er gagnlegt að tengja við jörðina undir fótum sér, hlusta á hljóðin í kringum sig svo sem vindinn, fuglasöng eða lækjarnið, huga að öndun, og að með- taka það sem stundin gefur. Hreyfingarálag á að auka jafnt og þétt, hlusta á líkamann, ekki fara fram úr sér heldur setja sér raunhæf markmið. Ef álagið er of mikið þá verður hreyfingin erfið, líkaminn fram- kvæmir þá of mikla vinnu miðað við getu og líkamleg ein- kenni gera vart við sig svo sem verkir, tognanir eða súrnun í vöðvum sem er afleiðing súrefnisskorts til vöðva líkamans. Í þessu samhengi er vert að minna á að hér er verið að tala um fólk sem er að taka fyrstu skrefin í hreyfingu og hefur lítið sem ekkert stundað líkamlega þjálfun. Það þarf að gæta sín í markmiðasetningu, setja sér smærri markmið í átt að hinu stóra. Í þessu samhengi er vert að muna orðatiltækin margt smátt gerir eitt stórt og það safnast þegar saman kemur. Varðandi alla hreyfingu er grundvallaratriði að fara rólega af stað til þess að hvatinn að því að vilja hreyfa sig sé fyrir hendi til lengri tíma. Ef farið er of geyst er hætta á því að ekkert meira verði af hreyfingu, þar sem bæði líkamleg og andleg áreynsla verði of mikil og að fólk treysti sér ekki af stað á nýjan leik. Þetta er því miður raunin í allt of mörgum tilfellum. Oft er fólk að miða sig við afreksíþróttafólk sem er ekki fýsilegur kostur. Sú hreyfing sem hér er til umfjöllunar snýr að lýðheilsu og uppbyggingu líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar færni. Hver manneskja þarf að huga að sínum persónulegu viðmiðum og hægja á sér ef hún finnur fyrir vanlíðan, verkjum eða öðrum álagseinkennum. Því er mik- ilvægt ,,að finna sér sinn takt“, halda sér við það sem fólk finnur að það ræður við og ekki miða sig um of við hvernig annað fólk gerir hlutina. Það getur tekið langan tíma að gera hreyfingu að lífsstíl til framtíðar og getur krafist vissrar andlegrar og líkam- legrar uppbyggingar. Því munar um hvert skref sem tekið er í þessum efnum og öll hreyfing sama hversu lítil hún kann að vera gerir engu að síður ákveðið gagn. Þegar vel tekst til vex fólki ásmegin, það finnur mun á líðan sinni og öðlast þar með hvata til að halda áfram og gefast ekki upp þó erfitt geti reynst. Þess má einnig geta að þegar fólk fer að hreyfa sig breyt- ist margt í lífinu og eitt af því eru matarvenjur. Fólk finnur betur hvaða matur það er sem gerir því gott og hvers konar mataræði hentar þegar hreyfingin er orðin hluti af daglegu lífi. Matur sem álitinn er hollur svo sem grænmeti, ávextir og ferskar óunnar afurðir verða því oftar fyrir valinu en áður. Hreyfingin stuðlar því að betri lífsstíl á öðrum sviðum lífsins einnig. 3. Rétt hjá Til þess að fólk nái að stunda hreyfingu á reglubundnum grunni þarf að huga að því að tengja hana við nærumhverfi. Mikilvægt er að hver manneskja skoði hverjir séu möguleik- arnir á hreyfingu í því umhverfi sem hún lifir og hrærist í. Hvernig er með göngu- eða hjólaleiðir, nálægð við sundlaugar eða líkamsræktarstöðvar, fell eða fjöll þannig að aðgengið að ólíkum hreyfingarmöguleikum sé sem best? Það er meiri fyr- irhöfn að fara langan veg til að iðka hreyfingu og getur verið hindrun sérstaklega ef fólk er að byrja að hreyfa sig. Það getur orðið afsökun fyrir því að fara ekki af stað eða hafa ekki orku né kraft í að drífa sig. Þess vegna skiptir máli að draga úr öllum hugsanlegum hindrunum sem kunna að liggja í veg- inum svo að fólk geti frekar fylgt eftir ákvörðun sinni um að hefja hreyfingu. Því er ekki verra að aðgengi að hreyfingunni sé innan seilingar, til dæmis nálægt vinnu eða heimili. Fáðu góðar vörur á góðu verði og láttu gott af þér leiða – þá vinna allir! Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær Sími 562 8500 www.mulalundur.is Möppur Úrval af möppum í öllum stærðum og gerðum Handavinna Við getum pakkað, brotið, merkt og ýmislegt annað Allt fyrir skrifstofuna Ritföng, pappír og aðrar skrifstofuvörur Kíktu á heimasíðu múlalundar – www.mulalundur.is Þú pantar og við sendum til þín hvert á land sem er Pappírspokar Með og án áletrunar – margar stærðir og litirSÍÐAN 2001 Þ EKKING & ÞJÓNUSTA

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.