SÍBS blaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 11

SÍBS blaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 11
11 2. tbl. 2022 Ávinningur og gildi hreyfingar Hreyfing hefur bæði forvarnargildi og er stór þáttur í endur- hæfingu og virkniþjálfun eftir slys, sjúkdóma eða önnur áföll. Rannsóknir hafa sýnt fram á gildi hreyfingar fyrir andlega líðan og hvernig andlegur styrkur og vellíðan eykst þegar hreyfing er stunduð. Í tengslum við öldrun er lögð áhersla á mikilvægi hreyf- ingar til að viðhalda eins góðu heilbrigði og mögulegt er. Ávinningur þess er meðal annars geta til að viðhalda sjálf- stæði og ákveðnum lífsþrótti og virkni. Einnig má nefna þætti eins og að finna sig hafa tilgang og upplifa aukin lífsgæði þrátt fyrir hugsanleg veikindi, slys og aðra áhættuþætti sem hafa áhrif á heilsufar. Regluleg hreyfing getur dregið úr hættu á byltum og vöðvastyrkur rýrnar síður. Auk þess hefur hreyf- ing jákvæð áhrif á stoðkerfisvandamál og verki. Því miður ná margir aldraðir ekki að hreyfa sig eins mikið og æskilegt þykir. Aldrei er þó of seint að byrja að hreyfa sig. Eftir að hafa stundað hreyfingu í ákveðinn tíma finnur fólk mun á andlegri og líkamlegri líðan og metur lífsgæði sín betri en áður. Jafnvel hefur fólk það á orði að hafa komist ,,upp úr holunni sinni“ og ætli aldrei í hana aftur. Gildi hreyfingar er óumdeilt. Ef til vill gleymist þó oft að leggja meiri áherslu á áhrif hennar á andlega líðan því fátt er í raun mikilvægara en líðan okkar dags daglega. Í raun verða áhrif hreyfingar á líkamlega, andlega og félagslega þætti illa aðskilin því allt tvinnast þetta saman. Líf með hreyfingu er því betra líf ekki bara vegna mælanlegra áhrifa á líkamlegt atgervi heldur einmitt fyrst og fremst vegna bættrar líðanar frá degi til dags. Höfum heilræðin þrjú; reglulega, rólega og rétt hjá, bak við eyrað til að aðstoða okkur að skapa vana. Útbúum okkur og undirbúum eins og tilefni er til. Veljum hreyfingu sem við höfum ánægju af og samræmist okkar áhugasviði og munum umfram allt að hafa gaman og njóta. Heimildir Carek, P. J., Laibstain, S. E. og Carek, S. M (2011). Exercise for the Treatment of Depression and Anxiety. The International Journal of Psychiatry in Medicine, 41(1), 15-28. doi: 10.2190/PM.41.1.c. Eckstrom, E., Neukam S., Kalin Leah og Wright, J. (2020). Physical Acti- vity and Healthy Aging. Clinics in Geriatric Medicine, 36(4), 671-683. doi:10.1016/j.cger.2020.06.009. Fáðu góðar vörur á góðu verði og láttu gott af þér leiða – þá vinna allir! Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær Sími 562 8500 www.mulalundur.is Möppur Úrval af möppum í öllum stærðum og gerðum Handavinna Við getum pakkað, brotið, merkt og ýmislegt annað Allt fyrir skrifstofuna Ritföng, pappír og aðrar skrifstofuvörur Kíktu á heimasíðu múlalundar – www.mulalundur.is Þú pantar og við sendum til þín hvert á land sem er Pappírspokar Með og án áletrunar – margar stærðir og litir

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.