Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Side 8
8 – Sjómannablaðið Víkingur
Breyttist úr því að það þyrfti „siglinga-
fræðing“ til að sigla í það að þyrfti bara
tölvuspeking í verkefnið, eða er það svo?
Finnst grátbroslegt að heyra fólk tala um
GPS kort eða GPS hnit þegar um er að
ræða sjókort þ.e. „nautical chart“ og
breidd og lengd sem hefur verið til staðar
um aldir.
Hvaða breytingar hafa helstar orðið
hjá Gæslunni síðan þú hófst þar störf?
Hvað þetta varðar verður að horfa í þá
staðreynd að varnarliðið fór í burtu með
4-5 þyrlur árið 2006. Þetta hefur breytt
svo mörgu hjá LHG og orðið til þess að
rekstrarhlutföll varðskipa versus flug-
reksturs hafa breyst mikið. Einnig hefur
sú staðreynd að LHG tók yfir starfsemi
Varnarmálastofnunar breytt miklu í
rekstri stofnunarinnar. Erlend samskipti
hafa einnig í auknum mæli orðið mikil-
vægur hluti af starfsemi stofnunarinnar.
Engu að síður er það mjög mikilvægt
fyrir stofnunina að líta inn á við og skoða
vel hver hennar helstu og mikilvægustu
verkefni eru, það er leit og björgun og
eftirlit á hafinu umhverfis Ísland. Þau
munu ávallt verða grunnurinn að kjarna-
starfsemi stofnunarinnar.
Sérðu fyrir þér að starfsemi Gæslunn-
ar breytist á næstu árum eða áratugum?
Þá í hvaða veru?
Landhelgisgæslan mun þurfa að sam-
lagast erlendum samstarfsstofnunum í
framtíðinni. Í því sambandi er ég ekki
að tala um að stofnunin breytist í sjóher
heldur þarf að einhverju leyti að taka upp
fyrirmyndir frá nágrannalöndum okkar
þar sem rekin er sérstök strandgæslu-
stofnun. Við erum í samstarfi við slíkar
stofnanir í nágrannalöndum okkar. Ýmis
kjarnastarfsemi stofnunarinnar mun í
framtíðinni byggja meira og meira á
þessu alþjóðlega samstarfi og til að það
verði sem farsælast þarf að aðlagast
þannig að takmarkanir verði sem
minnstar á möguleikum í því.
Hefur þér tekist að vekja áhuga
afkomendanna (ef einhverjir eru)
á sjómennsku?
Já, ég reyndi að kynna sjómennsku á
jákvæðan hátt fyrir dóttur minni og syni.
Þau höfðu sannarlega gaman af því en
hafa engu að síður lagt allt annað fyrir
sig. Sonur minn lærði meira að segja að
sigla eftir kompás á sínum tíma. Hef hins
vegar lokkað ýmsa ágætis aðila til sjós í
gegnum tíðina og vona að það hafi ein-
göngu verið til góðs.
Mundir þú mæla með sjómennsku eða
skipstjórn sem starfsvettvangi fyrir ungt
fólk í dag?
Já, ég mæli með því. Það eru svo
óendanlegir möguleikar í þessu í dag.
Ekki bara á Íslandi heldur um allan heim.
Vil vekja athygli á því sem á eftir kemur,
það er eftir nám og reynslu. Það þarf að
ráða fólk í siglingastofnanir, landhelgis-
gæslu, umhverfisstofnanir, hafnarstarfs-
menn, hafnsögustarfsmenn og margt
fleira. Það þarf og mun þurfa starfsfólk
með þessa menntun og reynslu í framtíð-
inni.
Og að lokum fyrir bókaorma, áttu þér
uppáhaldsbók og hvaða bók ertu að lesa
núna?
Nei, ég á mér ekki neina uppáhalds-
bók en ég les gjarnan þessar spennubók-
menntir eftir Yrsu og Arnald. Stundum er
Óttar líka með eitthvað spennandi á tak-
teinum og þá les maður um það.
Ásgrímur stjórnar fylkingu starfsmanna Landhelgisgæslunnar við minningarathöfn á Sjómannadegi fyrir
nokkrum árum.
sendir félögum sínum
og fjölskyldum þeirra
bestu kveðjur og hamingjuóskir
í tilefni Sjómannadagsins.Félag skipstjórnarmanna