Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Blaðsíða 20
20 – Sjómannablaðið Víkingur É g hef verið skipstjóri á norskum skipum síðan síðsumars 2008 eða frá því um mánuði fyrir hrun en þá hafði ég vistaskipti þegar olíuskipið Keilir var selt úr landi. Ég hafði þá ver- ið skipstjóri á íslenskum olíuskipum í ellefu ár. Óneitanlega voru það nokkur viðbrigði að breyta yfir í erlendar út- gerðir, sérstaklega þar sem ég hef verið eini Íslendingurinn um borð síðan. Brovig og Fjord Shipping Ég fór út í byrjun september 2008 og tók við skipstjórn á frystiskipinu Green Snow. Þar var ég í um það bil eitt ár og sigldum við töluvert til Íslands að sækja frosinn fisk á ströndina. Skipið var selt til Rússlands 2009. Sama ár bauðst mér starf hjá Brovig í Farsund sem var afskaplega góð og rótgróin útgerð í Noregi, sú elsta reyndar – stofnsett 1889. Þegar ég hóf störf hjá Brovig rak fyrir- tækið eingöngu efnaflutningaskip (chem- ical tankers) en hafði um miðbik síðustu aldar og fram eftir öldinni verið eitt öfl- ugasta útgerðarfélag Noregs með mörg skip í rekstri af öllum stærðum og gerð- um. Nafnið Brovig var heimsfrægt enda sigldu skip fyrirtækisins um öll heimsins höf í mörg ár. Því miður var ákveðið að loka skrifstofu Brovig sumarið 2014 eftir um 125 ára rekstur og var skipið mitt, Brovig Breeze, flutt undir stjórn Fjord Shipping AS í Maaloy í Noregi og hét eft- ir það Key Breeze. Áður hafði ég verið skipstjóri á tveimur skipum félagsins, Brovig Vindur og Brovig Viento, eitt ár á hvoru skipi. Það var mikil eftirsjá í Brovigútgerð- inni, gott að vinna fyrir þá og öll sam- skipti voru með miklum ágætum. En við tók annað gott fyrirtæki, Fjord Shipping AS, sem sér um rekstur skipsins eins og áður sagði. Við þá hef ég líka átt fínt samstarf undanfarin 5 ár. Fjord Shipping AS hefur séð um rekstur skipa (Management) í um 30 ár og rekur í dag rúmlega 20 skip, aðallega tank- og frystiskip. Þar hefur Magni Aarvik aðaleigandi og meðstjórnandi fyrirtækisins staðið vaktina frá fyrsta degi ásamt framkvæmdastjórum á hverjum tíma. Magne hefur meðal annars átt sam- starf við íslenskt skipafélag um árabil og er því kunnugur skiparekstri okkar Íslendinga. Siglingasvæðið er víðfeðmt Árið 2016 var ég beðinn um að taka við skipstjórn á nýlegu skipi, Key South, sem er nokkuð stærra skip en hin sem fyrir- tækið rekur, 6412 tonn – (deadweight). Eigandi skipsins er Sea Tank Chartering AS í Bergen en með útgerðarstjórn fer sem áður Fjord Shipping AS. Í rekstri Sea Tank eru um 15 tankskip og er „Key“ fyrra nafn flestra þeirra. Fyrirtækið var stofnsett 2006 af tveimur eldhugum, Sigbjorn Tysse og Tornbjorn Vedå og hefur umfang og vöxtur fyrir- tækisins aukist hratt og reglulega bæst ný skip í flotann. Sea Tank sér sem sagt um að „megla“ eða finna farma í skipin út um alla Evrópu og stundum Afríku. Siglingasvæði okkar á Key South er víðfeðmt en yfirleitt er það norska ströndin en einnig siglum við mikið inn í Eystrasaltið og lestum farma aðallega til Noregs fyrir stórfyrirtæki sem sérhæfa sig í framleiðslu á fóðri fyrir norska fisk- eldið. Oftast lestum við farma í Póllandi, Rússlandi, Litháen og Lettlandi. Algengir farmar eru til dæmis Rapeseed olía, Soya- bean olía, Lýsi, Caustic Soda, Molasses, Camelina, Lecithin, Crude palm olía og einstaka sinnum Ethanol auk nokkurra annara tegunda. Þrífa þarf farmgeymana vandlega þegar skip er á milli tegunda og geta slík þrif stundum tekið yfir sólar- hring eða lengur, tankarnir þurfa undan- tekningarlaust að vera tandurhreinir, þurrir og lyktarlausir fyrir skoðanir annars er skipinu einfaldlega hafnað sem getur haft alvarlegar afleiðingar. Það ger- ist afar sjaldan sem betur fer. Í Eystrasaltinu siglum líka töluvert á sænsku ströndinni og til hafna beggja vegna Kattegatsundsins svo sem Helsing- borgar, Varberg og Malmö, Árósa, Óðins- vé og Skagen í Danmörku og síðan til Rostok og Hamborgar í Þýskalandi. Tölu- vert er siglt til Rotterdam, Amsterdam og Gent og þaðan fluttur farmur um alla Evrópu, mest þó til Noregs, Bretlands og Frakklands en einnig af og til suður til Marokkó og þá gjarnan lestað lýsi í Máritaníu til baka. Páll Ægir Pétursson skipstjóri: „Ef ég væri að byrja í dag sem ungur yfirmaður myndi ég hiklaust feta sömu braut og velja tankskipabransann.“ Páll Ægir Pétursson skipstjóri Siglingar á norskum skipum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.