Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Blaðsíða 40
Mikilvægar tekjur
Á síðasta ári sendu fillippínskir sjómenn,
sem sigldu á erlendum skipum, 6,14
milljarða bandaríkjadala í gegnum banka-
kerfið þar í landi. Aldrei áður hafa svo
miklir peningar komið í gegnum banka-
kerfið vegna sjómanna sem sigla utan
landsins. Þetta eru sjómenn sem vinna á
gámaskipum, búlkskipum, skemmtiferða-
skipum, olíuskipum, bílaflutningaskipum
og almennum vöruflutningaskipum undir
öðrum fánum en þeirra eigin. Er þetta
4,6% hærri upphæð eða 270 milljónum
dollurum meira en árið 2017. Samkvæmt
heimildum koma um 2,3 milljarðar frá
Bandaríkjunum en næst á eftir eru
greiðslur frá Singapúr eða 563 milljónir.
Þá koma greiðslur upp á 560 milljónir frá
Þýskalandi, 435 milljónir frá Japan, 331
milljón frá Bretlandi, 275 milljónir frá
Hong Kong, 259 milljónir frá Hollandi
og 174 milljónir frá Grikklandi.
Hér er aðeins um að ræða bankayfir-
færslur og er þá ótalið það fjármagn sem
þeir koma með heim í frí eða eru sent
með öðrum hætti en í gegnum banka-
kerfið. Í heiminum eru starfandi 1,2
milljónir sjómanna á heimsflotanum en
það eru um það bil 378 þúsund Fillipps-
eyingar og eru þeir leiðandi þjóð í að út-
vega sjómenn á flotann. Daglega er talið
að um 250 þúsund Fillippseyingar séu á
sjó í einu og má segja að ef ekki væri
fyrir þessa sjómenn myndi efnahagur
þjóðarinnar dala verulega. Um 10 millj-
ónir Fillippseyinga starfa utan heima-
landsins sem er einn tíundi af íbúum
landsins en þar tróna sjómennirnir á
toppnum enda eru þeir að koma með
fimmtung allra tekna til landsins. Draum-
ur sjómannanna er að geta búið fjöl-
skyldum sínum gott lífsviðurværi, í eigin
húsnæði, fjárfest í landbúnaði, stofnað
eigin fyrirtæki og menntað börn sín.
Upptekinn í símanum
Í október síðastliðnum varð árekstur á
milli túnísku ferjunnar Ulysse og gáma-
skipsins CSL Virgina sem lá til akkeris
undan Korsíku. Allar aðstæður voru
hinar ákjósanlegustu til siglinga nema að
vakthafnadi stýrimaður var í símanum að
sinna einkaerindum þegar hann sigldi
inn í miðja síðu gámaskipsins. Það þótti
sérstakt og umdeilanlegt að áhöfnin sendi
frá sér myndband skömmu eftir árekstur-
inn sem var kynnt á eftirfarandi hátt:
„Halló allir, við erum áhöfnin á skipinu
Ulysse. Sjáið okkur, við erum í góðu
skapi. Við lentum í smávegis vandamáli
en slíkir hlutir geta komið fyrir öll skip“.
Varasamir kastlínupungar
Nú hafa bresk hafnaryfirvöld skorið upp
herör gagnvart hættulegum kastlínum
sem skip eru að nota. Enn eru að koma
skip til breskra hafna sem búin eru kast-
línupungum sem búið er að þyngja auka-
lega og eru starfsmönnum hafna hættu-
legir. Hafa þau leitað með málið til
Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar sem
og hafnarríkja um allan heim að taka nú
höndum saman við að útrýma hættuleg-
um kastlínupungum.
Nýir klefar í skip
Skipafélagið Stena Line hefur ákveðið að
taka til prófunar nýja tegund klefa sem
ekki hafa áður þekkst í skipum útgerðar-
innar. Um er að ræða svefnbox að jap-
anskri fyrirmynd og er mjög þekkt í
Tokýó en boxin eru einungis um tveir
fermetrar að stærð. Hefur þessi svefnað-
staða notið vinsælda sökum þess hversu
ódýr hún hefur verið og gott fyrir ferða-
langa að ná í svefn í góðum rúmum í stað
stóla. Þegar hafa verið sett upp slíkir
svefnklefar í ferjurnar Mecklenburg-Vor-
pommern og Skåne sem sigla á leiðinni
milli Rostock og Trelleborg en ferðin tek-
ur um sjö tíma. Voru þessir klefar teknir
í notkun í byrjun apríl á þessu ári og eru
markhóparnir ungt fólk, bakpokaferða-
langar og aðrir sem vilja ferðast ódýrt en
þó á þægilegan máta. Hvert rúm er
búið dýnu, sængurfatnaði, loftkælingu,
hleðslustöð fyrir snjalltæki og síma auk
þráðlausrar nettengingar. Þá er aðstaða
fyrir utan klefana til að geyma töskur í
læstum skápum. Upphaflega voru þessir
svefnklefar hannaðir til að mæta þörfum í
Tókýó á lúxuslausum og ódýrum gisti-
möguleikum á al-dýrasta fasteignamark-
aði í heiminum. Nú hafa slík hótel einnig
risið í New York sem og á mörgum al-
þjóðaflugvöllum. Ætli næsta skref verði
að setja slíka klefa fyrir skipverja?
Flótti með litlu kaupskipin
Í eina tíð var danski fáninn góður sigl-
ingafáni en nú er orðin veruleg breyting
þar á. Danska skipafélagið Venus Shipp-
ing hefur gefist upp á að sigla skipum
sínum undir dönskum fána en útgerðin
seldi í lok síðasta árs síðasta skip sitt sem
sigldi undir þeim fána. Hafði skipið, Dan
Fighter, siglt undir dönskum fána í 14 ár
en útgerðin hefur langt í frá lagt niður
skiparekstur sinn. Útgerðarmaðurinn
sagðist ekki geta séð hvernig útgerðir
gætu rekið skip á dönskum fána en öll
skip hans, sex að tölu, eru nú skráð á St.
Vincents fána og hafa skipin því farið frá
dönskum heimahöfnum yfir til Kings-
town. Að vísu hefur útgerðin horft til
NIS fána og litið á hann sem annan kost
til að gera út skip sín í framtíðinni. Út-
gerðin hafði keypt skip í Noregi sem var
á norskum fána sem þeir ætluðu að færa
undir Dannebrog. Eftir samtal við dönsku
siglingastofnunina áður en til kaupanna
kom var svo metið að ekkert vandamál
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Stýrimaðurinn á ferjunni var upptekinn í símanum þegar skip við akkeri varð fyrir honum.
40 – Sjómannablaðið Víkingur