Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 41
yrði að flytja skipið inn enda hafði önnur
dönsk útgerð sett systurskip þess á
danskan fána. Skipt var um nafn á skip-
inu og það nefnt Dan Carrier og því siglt
til Álaborgar þar sem átti að setja það á
danskan fána eins og systurskipið. En
það var aldeilis ekki svo einfalt. Nú var
það mat Siglingastofnunar að skipið upp-
fyllti ekki eldvarnakröfur samkvæmt B60
þrátt fyrir að allir klefar hefðu stóra fer-
kantaða glugga sem flóttaleiðir út á þilfar.
Var gerð krafa um að rífa yfirbygginguna
af skipinu og smíða nýja en það hvarflaði
ekki að útgerðinni að leggja í slíka fjár-
festingu. Var þá ákveðið að setja skipið á
Bahama fána þar sem engar athugasemdir
voru gerðar við hönnun skipsins og hóf
það þá þegar siglingar. Útgerðarsamtök
minni skipa í Danmörku undu ekki
þessari niðurstöðu og eftir að þeir höfðu
átt samtal við stofnunina var skyndilega
hægt að flytja skipið inn. Að vísu var
skipið þá sett á danskan fána en útgerðin
hefur ákveðið að lenda ekki aftur í slík-
um samskiptum við Siglingastofnunina
og því hefur danski fáninn verið kvaddur
endanlega 82 árum eftir að faðir útgerð-
armannsins sigldi fyrsta skipi útgerðar-
innar úr höfn á dönskum fána.
Dóp í skólaskipi
Herlögreglan í Svartfjallalandi fann 50
kíló af eiturlyfjum um borð í skólaskipi
flotans, Jadran, nokkrum klukkustund-
um áður en nemendur mættu um borð.
Herlögreglan hafði fengið ábendingu um
tugi kílóa af geðlyfjum sem varð til þess
að snemma morguns var gert áhlaup á
skipið. Leitað var innan skips sem utan
en hópur kafara flotans skoðuðu botn
þess. Efnið sem fannst reyndist vera
kókaín en þegar þetta er skrifað var ekki
búið að handtaka neinn en hvorki nem-
endur né kennarar flotaskólans voru um
borð þegar leitin fór fram. Jadran, sem er
þriggja mastra seglskip, var eitt sinn aðal-
skólaskip sjóhers Júgóslavíu en var yfir-
tekið af flotastjórninni í Svartfjallalandi
eftir að landið lýsti yfir sjálfstæði frá Bel-
grad árið 2006. Það er notað eingöngu til
þjálfunar.
Harka færist í mengunarmálin
Yfirvöld í Singapúr hafa sent skilaboð til
skipaútgerða sem eru að hugleiða að
svindla á reglum sem ætlað er að draga
úr mengun og taka gildi á næsta ári að
láta það ógert. Það sé ekki leiðin til að
spara eldsneytiskostnað. Skipstjórar og
eigendur skipa sem munu freista þess að
brenna eldsneyti með of háu brenni-
steinsinnihaldi í landhelgi landsins geta
átt von á allt að tveggja ára fangelsi frá og
með 2020. Ef þessum refsingum verður
framfylgt verður Singapúr sennilega með
ströngustu refsingar sem þekkjast gagn-
vart útblæstri frá skipum en hún er talin
ástæða astma og súrs regns.
Frá og með næsta ári verða skip að
draga út brennisteinsútblæstri sem nemur
85% í flestum hlutum heimsins en þau
gera í dag. Önnur stærsta höfn heims
sendir því skýr skilaboð að skip sem ekki
hafa á einhvern hátt dregið úr brenni-
steinsmengun eru ekki lengur velkomin
til hafnarinnar. Gildir þetta hvort heldur
um sé að ræða skip á Singapúr fána eða
einhverjum erlendum fána sem koma til
hafnarinnar. Skipstjórar eiga áður en
komið er til hafnarinnar að send rafræna
yfirlýsingu um að skip þeirra uppfylli
kröfur landsins. Teknar verði prufur af
eldsneyti skipanna sem sent verður á
rannsóknarstofur til greininga.
Ný kynslóð gámaskipa
Það var mikil hátíð í Kína í ágúst síðast-
liðnum þegar hafinn var skurður í fyrstu
tvö skip af níu systurskipum fyrir
frönsku útgerðina CMA CGM. Skipin,
sem kallast Megamax 24, verða 22.500
TEU skip og verða knúin áfram með
fljótandi jarðgasi (LNG). Samhliða þess-
um skipum er verið að byggja áþekk skip
fyrir ítalska skipafélagið MSC í Suður-
-Kóreu en þau verða reyndar stærstu
gámaskip allra tíma og þau fyrstu sem
verða með 24 gáma í breidd á veðurþil-
fari.
Frönsku skipin verða þau fyrstu sem
ekki verða með perustefni en nú eru
gámaskipaútgerðir farnar að stefn á á að
minnka hraða skipa sinni til framtíðar.
Fagurlega hönnuð perustefni hafa verið
hluti af hönnun gámaskipa um áratugi en
hin nýja dráttarbátalega stefnishönnun
gæti orðið hið nýja norm á línuskipum
þar sem lægri flutningsgjöld hafa haft
vinningin yfir fljótari afhendingartíma.
Perustefninu er ætlað að breyta streymi
sjávar meðfram skipskrokknum sem
dregur úr mótstöðu frá sjónum og eykur
jafnframt hraða skipsins og dregur úr
eldsneytisnotkun. Rannsóknir sýna að
hægt sé að spara allt að 15% endsneyti á
nærri fullri ferð hjá gámaskipum. Hins-
vegar hefur komið í ljós að eftir að farið
var að sigla gámaskipunum á mun minni
hraða en áður sökum eldsneytisverðs að
perustefnin hafa dregið verulega úr þeim
hagnaði sem þau veittu á fullri ferð. Þá
eru gámaskip sem ekki sigla með mestu
djúpristu sökum fjölda tómra gáma, sem
dæmi, ekki að njóta þess ávinnings sem
perustefninu er ætlað að gera heldur hið
gagnstæða. Því hafa menn farið í að
endurhanna stefni þeirra gámaskipa sem
ætlað er að sigla með meiri hagkvæmni á
minni ferð og skipt út stefnum á eldri
gámaskipum undanfarin nokkur síðustu
ár.
CMA CGM hefur gert samning við
Total olíufélagið um kaup á 300.000
tonnum af jarðgasi sem nýju skipin eiga
að brenna og er ljóst að útgerðin vinnur
hörðum höndum að því að nýju skipin
verði sem hagkvæmust í rekstri og um-
hverfisvænni en áður hefur tíðkast hjá
útgerðinni.
Mislingar á sjó
Á karabísku eyjunni St. Lucia var far-
þegaskip sett í sóttkví þegar í ljós koma
að mislingar höfðu greinst um borð. Bæði
skipverjum og farþegum var meinuð
landganga en skipið átti viðkomu á leið
sinni um Karabíska hafið. Tvö tilfelli
höfðu komið upp í skipinu áður en það
kom til hafnarinnar og fyrirskipaði land-
læknir eyjarinnar einangrun skipsins
enda myndi stafa hætta af fyrir eyja-
skeggja. Skemmtiferðaskipið, sem heitir
Freewinds, er í eigu og rekstri Vísinda-
kirkjunnar og að þeirra sögn er skipið
notað til endurhæfingar trúarlegra þjóna
háþróaðasta stigs andlegrar ráðgjafar í
trúarbrögðum Vísindakirkjunnar. Um
borð í skipinu voru 300 farþegar og
áhöfn.
Þegar siglingayfirvöld kröfðust þess að skipt yrði um yfirbyggingu flaggaði útgerðin skipinu út.
(Ljósmynd: PWR)
Sjómannablaðið Víkingur – 41