Fréttablaðið - 23.08.2022, Síða 4
Markmiðið er að safna
440 milljónum króna.
JEEP.IS • ISBAND.IS
KEMUR ÞÚ
AF FJÖLLUM?
PLUG-IN HYBRID
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Íslensku fjöllin hafa mætt jafningja sínum.
Gerðu ferðalagið algjörlega rafmagnað með
Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Til stendur að byggja
nýtt hús sem hýsa mun starfsemi
Kvennaathvarfsins. Fengist hefur
f jármagn frá ríkinu upp á 60
milljónir króna en til stendur að
fara í landssöfnun fyrir húsinu í
byrjun október. Markmiðið er að
safna 440 milljónum króna.
Að meðaltali dvelja um 130
konur í Kvennaathvar f inu á
hverju ári og er meðaldvalartími
þeirra þrjátíu dagar. Mörg börn
dvelja að jafnaði í athvarfinu með
mæðrum sínum. Linda Dröfn
Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra
Kvennaathvarfsins, segir að alltaf sé
pláss fyrir konur sem leiti í athvarfið
í húsinu, það sé þó löngu sprungið.
„Við finnum alltaf pláss.“
Hún segist bjartsýn á að vel
takist til við að safna fyrir nýja hús
inu.„Við erum virkilega vongóð og
finnum mikinn velvilja og þakklæti
í okkar garð,“ segir Linda.
Hún segist vona að húsið verði
tilbúið eftir þrjú ár en að erfitt sé
þó að segja nákvæmlega til um
hvenær það verði. „Við erum komin
af stað með þetta verkefni. Erum
byrjuð að teikna og nú bíðum við
eftir deiliskipulagi,“ segir Linda en
Kvennaathvarfið hefur nú þegar
fengið vilyrði fyrir lóð undir húsið
hjá borginni.
Staðsetning Kvennaathvarfsins
er ekki opinber en Linda segir
drauminn vera þann að konurnar
sem þar dvelja upplifi sig það
öruggar í nýja húsinu að staðsetning
þess þurf i ekki að vera neitt
leyndarmál.
„Það væri auðvitað draumurinn.
Að öll starfsemin geti verið á sama
stað og að öryggið sé þannig að það
þurfi ekki að vera leyndarmál hvar
við erum,“ segir hún. ■
Safna fjármagni fyrir byggingu nýs Kvennaathvarfs
birnadrofn@frettabladid.is
REYK JAVÍK Grunnskólar Reykja
víkur voru settir í gær þegar 14.560
börn hófu nám í grunnskólum
borgarinnar.
Þar af hófu 1.260 börn nám í
fyrsta bekk og er sá árgangur
fjölmennastur í Langholtsskóla. Þar
eru 93 börn í fyrsta bekk.
Fjölmennustu skólar borgarinnar
eru Langholtsskóli og Árbæjarskóli,
með um 700 nemendur hvor.
N e m e n d u m D a l s s k ó l a í
Úlfarsárdal hefur fjölgað afar hratt
en þegar skólinn var stofnaður árið
2010 voru þar þrjátíu nemendur en
nú eru þeir 450 talsins. ■
Börnum fjölgar
hratt í Dalsskóla
Bóndinn á Fitjum í
Skorradal segir það rangt
og óheiðarlegt hjá Orku
náttúrunnnar að tala um
tímabundið starfsleyfi fyrir
Andakílsárvirkjun sem ígildi
virkjunarleyfis.
gar@frettabladid.is
ORKUMÁL „Það lítur afskaplega
fallega út að vísa til þess að fram
kvæmdir auki öryggi og séu til þess
að uppfylla nútímakröfur,“ segir
Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum og
vísar þar í ummæli samskiptastjóra
Orku náttúrunnar (ON) í Frétta
blaðinu 18. ágúst.
„Ég mótmæli því ekki að fyrir
hugaðar framkvæmdir ON í og við
inntakslón Andakílsárvirkjumar
kunni að vera nauðsynlegar út frá
rekstrarhagkvæmni orkuversins,“
segir Hulda. „En það er skortur á
heimildum til framkvæmdanna og
óskýrt heildarumfang þeirra sem ég
bendi á að Skipulagsstofnun virðist
hafa vanmetið.“
Hulda segir að þar sem ekkert
virkjunarleyfi sé til fyrir Anda
kílsárvirkjun liggi ekki fyrir skýr
skilyrði sem lúti ófjárhagslegum
þáttum á borð við umhverfisvernd,
landnýtingu og tæknilegum við
miðum sem tekið sé á í virkjunar
leyfum. Því þurfi framkvæmdirnar
að fara í mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun segir Hulda
taka gott og gilt er ON fullyrði að
ekki sé gert ráð fyrir að vatnshæð
í Skorradalsvatni fari út fyrir þau
mörk sem miðað sé við í rekstrinum
eða mörk í „úrskurði“ Orkustofn
unar um miðlunarleyfi.
„Ork u stof nu n hef u r aldrei
„úrskurðað“ um miðlunarleyfi
virkjunarinnar og þau „mörk“
sem ON notar hafa aldrei verið
staðfest með virkjunarleyfi og
um öll „mörk“ ríkir engin sátt
meðal heimamanna,“ segir Hulda.
Skipulagsstofnun dragi þá skökku
ályktun að „breytingar á vatnsborði
Skorradalsvatns og á rennsli Anda
kílsár verði innan heimilda ON til
að starfrækja virkjunina“.
Að sögn Huldu hefur ON ekki
skýrar heimildir til breytinga á
vatnsborði Skorradalsvatns og
Andakílsá ofan lóns né til breytinga
á stíflum.
„Því er allt tal um bætt öryggi, lag
færingar og úrbætur til þess fallið að
draga athyglina frá því að virkjunar
leyfið er ekki til og að aldrei hefur
farið fram mat á umhverfisáhrifum
Andakílsárvirkjunar sem þó er stór
notandi náttúrunnar í Skorradal.“
Hulda krefst þess í kæru til
úrskurðarnefndar umhverfis og
auðlindamála að ákvörðun Skipu
lagsstofnunar um að framkvæmd
irnar þurfi ekki í umhverfismat
verði ógilduð.
„Ákvörðun stofnunarinnar hvílir
því miður á röngum upplýsingum
framkvæmdaaðilans. Það er í sjálfu
sér alvarlegt mál,“ segir hún.
Sakar orkufyrirtæki um óheiðarleika
og rangt mál um Andakílsárvirkjun
Hulda Guð-
mundsdóttir á
Fitjum rær nú að
því öllum árum
að framkvæmd-
ir við Andakíls-
ársvirkjun fari í
umhverfismat.
MYND/AÐSEND
Haft var eftir samskiptastjóra ON
í Fréttablaðinu 18. ágúst, að rekstur
Andakílsárvirkjunar sé í samræmi
við starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands frá 2012.
„Fulltrúar ON hafa áður reynt að
vísa í tímabundið starfsleyfi sem ein
hvers konar ígildi virkjunarleyfis en
það er rangt, beinlínis óheiðarlegt
og í hróplegri mótsögn við siða
reglur OR og dótturfélaga,“ fullyrðir
Hulda. Heilbrigðiseftirlitið segi um
starfsleyfið að það feli aðeins í sér að
reksturinn uppfylli skilyrði gagnvart
lögum um hollustuhætti og meng
unarvarnir en sé ekki leyfi til að reka
virkjun og framleiða rafmagn.
Hulda segir að á meðan afmörkun
heimilda liggi ekki fyrir í virkjunar
leyfi verði tortryggni í garð allra
framkvæmda rekstraraðila Anda
kílsárvirkjunar. „Sama hversu
áferðarfalleg kynning þeirra er.“ ■
Ákvörðun stofnunar-
innar hvílir því miður
á röngum upplýsing-
um framkvæmdaaðil-
ans. Það er í sjálfu sér
alvarlegt mál.
Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum
jonthor@frettabladid.is
Ú K R A Í N A A ntón io Gut er re s ,
aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, skipaði í gær Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi
utanríkisráðherra, í nefnd sem
hefur það að markmiði að komast
til botns í því sem átti sér stað
í árásinni á Olinivkafangelsið
sem átti sér stað þann 29. júlí
síðastliðinn.
St jór nvöld í Rú ssla nd i og
Úkraínu hafa sakað hvort annað
um ábyrgð á árásinni. Í henni var
fangelsi sprengt upp með þeim
af leiðingum að 57 úkraínskir
stríðsfangar létust og 75 særðust.
Á s a mt I ng ibjör g u sk ipaði
Guterres Brasilíumanninn Carlos
Alberto dos Santos Cruz, sem er
fyrrverandi hershöfðingi, en hann
verður yfir rannsóknarnefndinni.
Auk þeirra var Youssoufou Yacouba
frá Níger skipaður. ■
Ingibjörg Sólrún í
rannsóknarnefnd
4 Fréttir 23. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ