Fréttablaðið - 23.08.2022, Page 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Það sem gerir Minigarðinn svo
frábæran fyrir hópefli fyrirtækja
er að hér er allt á einum stað.
Keppni, matur og drykkir. Sam-
starfsfólk mætir á einn stað og fær
að keppa sín á milli í minigolfi þar
sem allir geta verið með. Algengt
er að fyrirtæki komi sjálf með
verðlaun og eftir keppni er verð-
launaafhending og myndataka
af sigurliðinu. En við erum með
stóran verðlaunapall fyrir þá sem
vinna og myndavél á staðnum sem
sendir myndina beint í tölvupósti
og á sms-i svo að sigurliðið geti
montað sig í vinnunni,“ segir Vig-
dís Hind Gísladóttir, bókunarstjóri
Minigarðsins.
Snertilaus mathöll
„Við leggjum mikinn metnað í
matinn okkar í Minigarðinum. Við
erum að bjóða upp á fingramat
í formi smáréttahlaðborðs.
Við bjóðum fjölbreyttan mat,
til dæmis margar gerðir af soft
taco, fjölbreytta miniborgara,
kjúklingavængi, edamame og
fjölbreytta vegan valkosti. Innan
skamms munum við síðan breyta
veitingasalnum okkar í snertilausa
mathöll þar sem við bætist
pizzastaður, hamborgarastaður,
frönskustaður, vegan staður og
kjúklingastaður. Það er spennandi
verkefni sem við munum opna í
september. Hópar munu því geta
valið um fjölbreyttar veitingar
á viðráðanlegu verði,“ segir
Vilhelm Einarsson, veitinga- og
rekstrarstjóri Minigarðsins.
Vilhelm útskýrir að í snerti-
lausri mathöll pantir þú matinn frá
öllum stöðunum í einni pöntun í
gegnum símann. Allt er svo borgað
í einni greiðslu á einum stað.
„Þannig þarftu ekki að labba á
milli mismunandi bása og panta
eitt hér og annað þar og fá matinn
á mismunandi tíma. Maturinn
kemur allur á sama tíma. Þetta er
mathöll að því leyti að þetta eru
nokkrir staðir með mismunandi
matseðli en samt ólíkt venjulegri
mathöll. Það mætti kannski kalla
þetta matgarð,“ segir hann.
Allt á einum stað
„Kostirnir við Minigarðinn sem
hópeflisstaður fyrirtækja er að
allir geta tekið þátt í minigolfi. Það
eru engin átök og því getur fólk
keppt sín á milli í sínu fínasta pússi
án þess að þurfa fara í sturtu eða
farða sig upp á nýtt. Starfsmenn
mæta á einn stað, ekki þarf að
ferja fólk á milli staða því að
maturinn og drykkirnir eru einnig
á staðnum. Stemningin skemmir
síðan ekki fyrir með lifandi DJ
tónlist og eftir að dagskrá lýkur
hjá fyrirtækinu þá eru starfsmenn
á sínum eigin vegum miðsvæðis á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir Vigdís
Hind. Að hennar sögn eru bókanir
farnar að streyma inn fyrir haustið
og veturinn.
„Staðurinn okkar tekur 500
manns og þegar margir hópar
koma saman þá myndast mjög
Veitinga-
staðnum verður
fljótlega breytt
í snertilausa
mathöll. Þá geta
gestir pantað
matinn með
símanum sínum
frá öllum stöð-
unum í einu.
Í Minigarðinum er boðið upp á fingramat í formi smáréttahlaðborðs. Þar má
til dæmis fá miniborgara, kjúklingavængi og fjölbreytta vegan valkosti.
Boðið er upp á
margar gerðir af
soft taco.
skemmtileg stemning. Við erum
með þrjá stóra sali sem eru
stúkaðir af, þannig að stórir hópar
geta verið með afmarkað rými
fyrir sig í mat og drykk. Einnig
getum við boðið upp á rútuferðir
fyrir hópinn niður í miðbæ að
hópefli loknu,“ bætir hún við.
„Það er gaman að geta loksins
tekið á móti fyrirtækjahópum
hingað í Minigarðinn, en við
opnuðum staðinn í júlí 2020,
þegar allir héldu að Covid væri
búið. Loksins núna, haustið 2022,
fáum við tækifæri til að sýna fólki
hvað þessi staður hefur upp á
að bjóða. Þetta eru í raun fyrstu
vikurnar sem við sjáum staðinn
án takmarkana,“ segir Vilhelm
Einarsson.
„Móttökurnar hafa verið mjög
góðar og við erum oft fullbókuð.
Lífið er að detta í sinn vanagang,“
bætir hann við.
Allt sem snýr að stærri hópum
Í Minigarðinum er margt fleira
í boði en hópefli fyrir fyrirtæki.
Það er til dæmis hægt að halda
barnaafmæli og einnig má bóka
staðinn fyrir gæsanir, steggjanir og
svo framvegis.
„Það er hægt að bóka
Minigarðinn fyrir barnaafmæli
en þá fær afmælishópurinn sinn
stað í Minigarðinum. Við sjáum
um veitingar og krakkarnir geta
spilað minigolf. Við tökum líka á
móti íþrótta- og skólahópum og
höfum verið með sértilboð fyrir
slíka hópa,“ segir Vigdís Hind.
„Allt sem snýr að stærri hópum
rúmum við vel. En svo að sjálf-
sögðu tökum við líka á móti
gestum á eigin vegum, vina-
hópum og fjölskyldum. Djammið
er líka stórt hérna á föstudögum
og laugardögum en þá byrjum
við snemma með happy hour.
Við hlökkum til að taka á móti
ykkur!“
Eins og áður segir er
Minigarðurinn mjög miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu, eða
í Skútuvogi 2. Þangað er átta
mínútna akstursfjarlægð frá
miðborginni og næg bílastæði. n
Áhugasöm fyrirtæki geta sent
fyrirspurn á hopar@minigar-
durinn.is en allar upplýsingar um
hópatilboð er að finna á www.
minigardurinn.is/hopar
Kostirnir við
Minigarðinn sem
hópeflisstaður fyrir-
tækja er að allir geta
tekið þátt í minigolfi.
Það eru engin átök og því
getur fólk keppt sín á
milli í sínu fínasta pússi.
Vigdís Hind Gísladóttir
2 kynningarblað A L LT 23. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR