Fréttablaðið - 23.08.2022, Síða 28
Filippeyski ljósmyndarinn
Rami Harven Gallego auglýsti
eftir ástföngnum pörum til að
mynda á Íslandi. Eftirspurnin
var svo mikil að Rami neydd-
ist til að velja og hafna. Hann
segist elska Ísland.
odduraevar@frettabladid.is
„Þetta var alltaf eitthvað sem ég hafði
ætlað mér að gera áður en ég yrði
allur,“ segir Rami Harven Gallego,
sem starfar sem ljósmyndari og
kvikmyndagerðarmaður í Kanada,
um Íslandsheimsókn sína í júlí.
„Ég var á landinu í tvær vikur, enda
höfðu allir talað um hvað Ísland væri
fallegt. Það var alveg hárrétt og ég
kynntist fullt af fólki, meðal annars
ljósmyndara sem ég fylgdist með
taka ótrúlegar brúðkaupsmyndir í
íslensku landslagi.“
Með ókunnugum
Ljósmyndun á hug og hjarta
Rami sem fékk þá hugmynd í
Íslandsferðinni að taka sjálfur
brúðkaupsmyndir á Íslandi. „Þannig
ég bókaði bara um leið flugmiða til
Íslands og ætla í þetta skiptið að vera
næstum þrjár vikur á landinu.“
Rami kom hingað síðast í
fjölskylduferð en að þessu sinni
bókaði hann f lugið einn. „En svo
sagði ég frá því á samfélagsmiðlum að
ég væri að fara aftur og fann þannig
nokkra sem ætla bara að koma með
mér. Þetta er fólk úr ýmsum áttum
sem ég hef aldrei hitt áður!“ segir
Rami hlæjandi.
„Ein þeirra er frá Ástralíu, og
verður ansi langt að heiman í þessari
ferð. Þetta virðist ætla að verða mjög
fjölþjóðlegur hópur,“ heldur Rami
spenntur áfram.
Par frá Mexíkó
Rami auglýsti eftir pörum og
brúðhjónum til að mynda í Facebook-
hópi túrista á Íslandi, „Travel Iceland.“
„Ég fékk ótrúlega mörg svör, svo mörg
að ég hef ekki náð að svara þeim
öllum,“ útskýrir Rami.
Hann segir því að erfitt hefði orðið
að ætla að anna allri eftirspurninni.
„Þannig ég ákvað að velja fimm pör
til að mynda. Eitt parið er til dæmis
frá Mexíkó, er að koma hingað til
Myndar alþjóðlega ást
ókunnugra á Íslandi
Rami er kolfallinn fyrir Íslandi og ætlar að beina linsunni að ástföngnu fólki í íslenskri náttúru en áhugi fjölþjóðlegra
turtildúfna er slíkur að hann neyddist til að velja og hafna og færri komast að með honum en vilja. MYND/AÐSEND
Ljósmyndarinn fór víða þegar hann
fangaði íslenska náttúrufegurð.
Fólk verður í
forgrunni þeirra
mynda sem
Rami ætlar að
taka í næstu
Íslandsferð sinni
þótt heillandi
umhverfi og
náttúran verði
að sjálfsögðu
alltumlykjandi.
MYNDIR/RAMI
lands í fyrsta skiptið á svipuðum
tíma og ég og þau ætla að taka með
sér brúðarkjólinn sérstaklega fyrir
þetta!“
Hann segist enn vera að sjóða
saman ferðadagskrána sína. „Við
þurfum að stilla saman strengi
okkar, þannig að hvert og eitt par
geti ákveðið hvar þau vilji láta mynda
sig,“ útskýrir Rami sem mun ekki láta
brúðhjónamyndir duga.
„Ísland er fallegasti staðurinn í
öllum heiminum. Í síðustu ferðinni
minni tók ég ljósmyndir sem fylltu
200 gígabæta minniskort,“ segir Rami
hlæjandi. Hann segist þakklátur
landsmönnum fyrir gestrisnina og
ánægður með hvernig ferðamenn
virða umhverfið.
„Því það er auðvitað aðalástæða
þess að við komum til Íslands. Þessi
ótrúlega náttúra og þess vegna er
svo mikilvægt að virða reglurnar og
umhverfið.“ n
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
STÓLA
DAGAR
18. - 31. ágúst
20%
afsláttur
af öllum
stólum
Fullt verð: 199.900 kr.
Nú 159.920 kr.
AVIGNON
hægindastóll með skammel
Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum
skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður.
Fullt verð: 169.900 kr.
Nú 135.920 kr.
KOLDING
hægindastóll
með skammel
Stillanlegur hægindastóll
með skemli. Svart, rautt eða
grátt leður/PVC.
Fullt verð: 199.990 kr.
Nú 159.992 kr.
CANNES hægindastóll
með skammel
Vandaður, glæsilegur og þægilegur
hægindastóll með þykku leðri á
slitflötum á sterkum snúnings fæti.
Koníaksbrúnt, svart, grátt
eða rautt leður.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
16 Lífið 23. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 23. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR