Fréttablaðið - 23.08.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Hvað klikkaði á
menningarnótt?
Guðmundur
Heiðar
Helgason,
upplýsingafulltrúi
Strætó
„Það er alltaf
mikil stemning
hjá Strætó í
kringum menn-
ingarnótt,“ segir Guðmundur
Heiðar, upplýsingafulltrúi Strætó.
„Í stóru myndinni, þá gekk
dagurinn vel og okkur tókst að
flytja langflesta gesti til og frá
miðborginni,“ heldur hann áfram
og spyr síðan: „En af hverju náðum
við ekki að flytja alla?“ og svarar
sjálfum sér með því að benda á að
Strætó hafi ákveðinn fjölda starfs-
fólks og vagna, hver vagn geti
flutt ákveðinn fjölda fólks í einu
og að á menningarnótt kom fyrir
að fjöldinn sem ætlaði að taka
strætó var meiri en flutningsgeta
vagnanna.
„Umferðartafir í kringum mið-
borgina settu stundum strik í
reikninginn, sem orsakaði það
að vögnum seinkaði. Aukavagnar
voru til dæmis lengur að létta á
þeim leiðum sem voru orðnar
fullar,“ segir hann og bætir við að
nýta megi þessa reynslu að ári.n
Of margt fólk og of lítið pláss
n Lykilspurningin
Rúmur aldarfjórðungur er
liðinn síðan Fúsi Árnason,
eða Kafteinn Ísland, fyrsta
íslenska ofurhetjan, lét á
sér kræla en er nú genginn
í endurnýjun lífdaga. Kona,
Móa Líf, hefur tekið við nafn-
bótinni í nýrri bók eftir Ólíver
Þorsteinsson með góðfúslegu
leyfi Kjartans Arnórssonar.
toti@frettabladid.is
Bókin Kafteinn Ísland: Fyrsta
íslenska ofurhetjan, eftir Ólíver
Þorsteinsson, rataði nýlega í hillur
bókaverslana en höfundurinn taldi
vissara að gefa hana út með leyfi frá
Kjartani Arnórssyni, höfundi fyrstu
íslensku ofurhetjumyndasögunnar,
til þess að kenna hetjuna sína við
hinn eina sanna Kaftein Ísland,
Fúsa Árnason, sem átti sína gullöld
í kringum 1990.
„Ég var byrjaður að skrifa bók-
ina þegar ég áttaði mig á því að ég
þyrfti kannski að breyta um nafn
ef ég myndi ekki fá leyfi frá Kjarnó
sem gaf út fyrstu bókina um Kaftein
Ísland árið 1990,“ segir Ólíver.
„Hann gaf mér bara góðfúslegt
leyfi til að anda nýju lífi í þessa
merku persónu, sem er talin vera
fyrsta íslenska ofurhetjan,“ heldur
Ólíver áfram og hlær þegar hann
bætir við að Kjarnó sé meira að segja
býsna ánægður með útkomuna.
Allt önnur Kafteinn
„Hann fékk bókina í síðustu viku og
ég held hann hafi bara klárað hana á
einu kvöldi, sem er frábært, og sagði
að þetta væri stærsta og besta „fan-
fiction“ sem hefur verið skrifað um
hans menn.“
Ólíver leggur áherslu á að þótt
margt sé líkt með Fúsa, Kafteini
Kjarnós, og Móu Líf hans nái skyld-
leikinn ekki lengra en til titilsins og
nafna persóna. „Hún er barnabarn
Fúsa Hjaltasonar, sem var uppruna-
legi Kafteinn Ísland, en þetta er ekki
sami Fúsi og hjá Kjarnó.
Þannig að föðurnafnið er annað
vegna þess að ég vildi gera skýran
greinarmun vegna þess að þessi per-
sóna er allt öðruvísi en hjá Kjarnó.“
Ekkert grín
Ólíver bendir jafnframt á að bókin
hans sé ekki myndasaga, eins og hjá
Kjarnó, heldur skáldsaga og hann sé
ekkert að grínast með þetta. „Þetta
snýst um það hvernig það væri ef hér
væri í alvörunni til íslensk ofurhetja
og hvernig samfélagið væri þá.“
Ólíver segir söguna því kallast
beint á við samtímann og nefnir
sem dæmi að Kafteinn Ísland þurfi
mjög að vanda sig vegna þess að
ef henni verða á mistök logi net-
heimar og hún fái heldur betur að
heyra það óþvegið.
Góð byrjun
Bókaútgefandinn og höfundurinn
segir aðspurður að bókin fari vel
af stað og hann geti ekki annað en
vel við unað. „Já, hún er búin að
vera tvær vikur í röð í 1. sæti á lista
Eymundsson yfir ungmennabækur.
Maður er alveg himinlifandi.
Þetta hefur ekki gerst áður hjá Leó
þannig að þetta er alveg ótrúlega
skemmtilegt og góð byrjun. Mér
þykir líka svo vænt um þessa per-
sónu, Móu Líf, þannig að þegar
bókin er að koma út upplifir maður
bara alvöru stress. Vegna þess að
maður vill að fólk taki vel í þetta
en það er náttúrlega ekki hægt að
geðjast öllum.“
Hann segir þó að þegar sé byrjað
að krefja hann um framhald. „Þetta
á að vera þríleikur og bókin endar
svolítið þannig að ég er búinn að
fá nokkur skilaboð þar sem spurt
er hvenær næsta bók kemur út og
nokkrir vilja helst fá næstu bók
núna.“ n
18 Lífið 23. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
fri
ður
ky
rrð
ró
er gerð úr 70%
ull og 30% Jute
/ tága.
er úr 100%
Tencel, 5 litir
er úr 100%
náttúlegum Jute
160x240 cm.
109.990 kr.
160x300 cm.
135.990 kr.
200x300 cm.
169.990 kr.
300x400 cm.
325.990 kr.
80x200 cm.
29.990 kr.
160x240 cm.
69.990 kr.
200x300 cm.
99.990 kr.
Ø100 cm.
10.990 kr.
Ø140 cm.
19.990 kr.
Ø240 cm.
49.990 kr.
160x240 cm.
99.990 kr.
200x300 cm.
129.990 kr.
„Ég nota mottur
til að afmarka rými,
tengja saman húsgögn
og bæta hljóðvist.“
Rut Kára
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
NÝTT &SPENNANDI
Mottur hannaðar af Rut Kára
SKANNAÐU QR
KÓÐANN TIL AÐ
SKOÐA NÝJA
BÆKLINGINN
Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Kafteinn Ísland orðin kona
Ólíver
Þorsteinsson.
Ólíver þykir ákaflega vænt um hana Móu Líf sem er nýr Kafteinn Ísland.
Kafteinn Ísland
Kafteinn Ísland,
Fúsi Árnason,
er hugarfóstur
myndasögu-
höfundarins
Kjartans Arnórs-
sonar og steig
fyrst fram í
eigin bókum,
Kafteinn
Ísland og Árás Illhuga, sem
komu út 1990. Samkvæmt
káputexta fyrstu bókarinnar
var Fúsi Árnason ósköp venju-
legur maður sem dreymdi um
að verða ofurhetja. „Öll önnur
lönd eiga sína ofurhetju, sagði
hann. Hví þá ekki Ísland? Fúsi
náði símasambandi við hina
fornu guði og þeir bænheyrðu
hann. Þannig eignaðist
Ísland sína ofurhetju
og kjörorð hans
var: Ég nota
mátt minn að-
eins til góðs
fyrir Ísland.
Kjartan
Arnórsson