Fréttablaðið - 23.08.2022, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Hér sit ég við Como-vatn í lang-
þráðri brúðkaupsferð sem við
hjónakornin fórum í eftir afar vel
heppnað brúðkaup okkar.
Það er stundum sagt að það
þurfi heilt þorp til að ala upp barn
og ég hugsaði í undirbúningnum
að það þurfi líka heilt þorp til að
halda brúðkaup.
Það var sama hvað ég bað um,
svarið var „ekkert mál“.
Ég get ekki fullþakkað þeim
sem áttu þátt í því að gera daginn
okkar fullkominn.
Á Ítalíu höfum við átt góða
daga og fagra Ítalía staðið undir
væntingum.
Í Spámanninum eftir Kahlil
Gibran er fjallað um að sorgin og
gleðin séu systur. Þær fylgja okkur
flestum í gegnum lífið.
Áföll eru því miður líka ein
hliðin á teningum lífsins.
Á sama tíma og ég sit hér í para-
dís berast fregnir að heiman um
voveiflega atburði og ég finn til
samkenndar með öllum þeim sem
eiga um sárt að binda.
Þegar slíkir atburðir verða
skiptir miklu máli að sam-
félagið veiti þeim sem þurfa þann
stuðning sem þarf.
Veita þarf áfallahjálp til að
fræða fólk um að þau viðbrögð
sem við finnum fyrir við áföll eru
eðlileg viðbrögð við óeðlilegum
aðstæðum.
Það sem átti ekki að geta gerst
gerðist og heilinn þarf að vinna úr
því. Það er eðlilegt að finna fyrir
dofa, sveiflukenndri líðan og vija
forðast atburðina.
Mikilvægt er að hlúa að sér og
leyfa hugsunum og tilfinningum
að koma án þess að forðast.
Ef á þarf að halda er mikilvægt
að bjóða gagnreynda sálfræði-
meðferð við áföllum. n
Gleði og sorg
Kristbjargar
Þórisdóttur
n Bakþankar
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
VERSLANIR:
FRÍTT
ALLAN HRINGINN
KAFFI