Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Síða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Síða 8
8 – Sjómannablaðið Víkingur N ú spyrja margir, hvað er himin- glæfra? Það er íhvolfur brotsjór sem er holur að innan og líkist helst stóru grunnbroti. Þá vildi ég ryðja dekkið Haustið 1957 var ég stýrimaður á b/v Hallveigu Fróðadóttur. Mig minnir að það hafi verið í október sem ég leysti Sigurð Þórarinsson af. Undanfarna túra höfðum við fiskað við Nýfundnaland og þá bæði fyllt lest og dekkið eins og tolldi á því. Sigurður hafði þann hátt á að breiða segl yfir dekkfarminn og raða flatnings- borðum og plönkum þar ofan á og yfir allt saman voru strengdir bæði trollvír- arnir og gilsarnir. Það var svo vel gengið frá að þó að blessunin hún Hallveig hefði farið á hliðina þá hefði ekkert haggast á dekkinu. Þetta lánaðist allt vel um sumarið og fram að þessum túr sem ég leysti af og enn fórum við á Nýfundnalandsmið. Eins og að framan getur var þetta í október. Það gekk mjög vel að fylla bæði lest og dekk og ég lét ganga jafn rammlega frá dekkfarminum og fyrr greinir. Á heimleið þegar við vorum um það bil réttvísandi suður af Hvarfi á Grænlandi hrepptum við norðan storm og stórsjó og á annan sólarhring komust karlarnir ekki aftur í. Mikið hefði ég þá viljað gefa fyrir það að geta hleypt út því sem á dekkinu var en það var útilokað. Það var alls ófært að hreifa við því. Á meðan við slóvuðum sá ég marga himinglæruna rísa og hugsaði þá, ef þessi hefði lent á okkur þá hefði farið illa því blessunin hún Hallveig var þung í sjó. Það er algengt þegar slóvað er í vondu veðri að maður sjái holskeflur rísa en sem betur lenda þær oftast til hliðar við skipin. Nú ætla ég að segja frá tveimur tilfell- um þar sem himinglæran lenti á skipi. Úranus í kröggum Mig minnir að það hafi verið í febrúar 1961. Þá var ég skipstjóri á b/v Þorkeli Mána. Við vorum nýbyrjaðir túr og vor- um á Selvogstánni í sæmilegu kroppi af blönduðum fiski. Þá kemur skeyti frá út- gerðinni sem skipar okkur til Vest- mannaeyja að taka þar fullfermi af síld en um þetta leyti var mikil síldveiði við suðvestur- og suðurland. Við hættum veiðum og fórum til Vestmannaeyja. Þegar þangað kom var allt klárt, nóg af síld og var drifið í því að taka á móti henni, ísa og ganga sem best frá en það tók ekki langa stund að lúgufylla Mán- ann af silfri hafsins. Um svipað leyti var b/v Úranus í Vest- mannaeyjum að taka síld og fór hann stuttu á eftir okkur áleiðis til Þýskalands en bæði skipin áttu að selja farminn í Cuxhaven. Fyrst eftir að við fórum frá Eyjum var þokkalegt veður en fljótlega fór að hvessa af norðvestri og varð að lokum ofsarok, svo mikið að rokið bældi niður sjóinn sem skóf undan vindinum. Þegar svo var komið héldum við á Mánanum með tæplega hálfri ferð undan veðrinu. Svo er það að við eigum um það bil 10 sjómílur í Færeyjarbanka að ég ákveð að fara ekki upp á bankann í þessu veðri og sneri Mánanum upp í sjó og vind. Mér er minnisstætt að við urðum að hafa meira en togferð til að halda í horfinu. Þetta var um miðnætti og fór ég í koju og sagði stýrimanninum að vekja mig ef veður breyttist. Um klukkan 6 morguninn eftir kemur stýrimaðurinn inn til mín, vek- ur mig og segir: „Það munaði litlu að illa færi.“ Ragnar Franzson Himinglæfra er stórhættuleg Kallinn, Ragnar Franzson, í brúnni. Hallveig Fróðadóttir RE 203.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.