Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur
Hugsið ykkur. Að geta nánast snert
400 ára gamalt orustuskip. Fundið
af því þefinn og hvernig stríðs-
gnýrinn stígur upp af því. Kannað inn-
viði þess og áhöfn. Og ekki nóg með
það, við horfumst bókstaflega í augu
við nokkra er fórust með skipinu og
fræðumst um lífsbaráttu þeirra á 17.
öld. Þetta er lyginni líkast en verður
satt um leið og þið gangið inn í
Vasasafnið í Stokkhólmi.
Kóngi lá á
Allt eigum við þetta að þakka stór-
mennskudraumum eins manns. Sá kall-
aði sig ljón norðursins, Gustavus Adolp-
hus númer 2, og vildi láta til sín taka í
veröldinni en til þess þurfti hann voldug
orustuskip og þau lét hann byggja.
Samið var við hollenska skipasmiði
um smíði á heimsins mestu stríðsskipum
Texti og myndir: Jón Hjaltason
Vasasafnið í Stokkhólmi
Sundin við Stokkhólm þar sem
Vasa hvolfdi í ágúst 1628.
Djurgården og Vasasafnið, opnað fyrst sumarið 1989, þá enn á byggingarstigi. Árið eftir vígði Svíakonungur,
Karl Gústaf XVI, safnið formlega. Síðan hafa milljónir heimsótt Vasasafnið.
Risinn – 69 metra langt skip, yfir 50 metrar á hæð frá kili og upp á hæsta mastur, búin tíu seglum og yfir 1200 tonn á þyngd. Hinn örlagaríka ágústdag 1628 var
Vasa búið 64 fallbyssum og gat skotið 250 kílóum af járni á hljóðhraða þegar hleypt var af allri breiðsíðunni í einu.