Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 17
Sjómannablaðið Víkingur – 17 L augardaginn 15. maí 1943 var Snæ- fell EA 740 sett á flot í Skipasmíða- stöð KEA á Oddeyri á Akureyri. Ekkert skip hafði þá verið smíðað stærra á Íslandi, alls 165,25 brúttósmá- lestir. Mikill undirbúningur var að skírn skipsins og sjósetningu. Samt lá við að illa færi. Sérstök rennibraut hafði verið smíðuð fram í sjó og búkkum hlaðið að til beggja handa og rennisleðar meðfram. Var svo allt makað í grænsápu svo hvergi yrði fyrirstaða. Rann svo stóri dagurinn upp. Frúin kaupfélagsstjórans, Borghildur Jónsdóttir, braut kampavínsflösku á stefni skipsins og gaf því nafn en Egill Jóhannsson skip- stjóri hafði riðið netpoka utan um flösk- una og notað til þess lukkuhnúta, bæði svo engin glerbrot bærust í viðstadda og líka til að gifta fylgdi nafni. Rann skipið síðan af stað til sjávar, fyrst hægt en síð- an með vaxandi hraða. En þegar það átti skammt eftir brotnaði steingarðurinn undir rennibrautinni og þegar Snæfellið tók að hallast brotnuðu hliðarbúkkarnir og lagðist skipið þá á síðuna. En ferðin var svo mikil og skuturinn að nokkru kominn í sjó að biluð brautin kom ekki að sök en vísast er Snæfellið eina skipið sem sjósett hefur verið á hliðinni. Myndin er frá vígslunni en litlu mátti muna að fólkið á bryggjunni sópaðist í sjóinn þegar brast undan Snæfelli og það lagðist á hliðina. GAMLA MYNDIN Snæfell sjósett

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.