Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Page 27
Sjómannablaðið Víkingur – 27
mjög hátt metinn og talinn bera vott um
einlægni óskandans, að hann legði fram
einhvern fórnargrip til áherslu og hald-
gæða heillaóskanna. Þessvegna vildi
hann nú verða fyrstur til að leggja fram
slíka fórn. Gamlir menn, sagði hann,
fullyrtu, að ekkert væri áhrifameira en að
kasta höfuðfatinu í sjóinn, og vildi hann
nú fara að dæmi þeirra, og vænti hann
að aðrir gerðu eins og sýndu með því
hug sinn til fyrirtækisins.
Að svo mæltu þreif hann höfuðfat sitt,
sem var hattur, og fleygði honum eins
langt út á sjóinn og hann gat. Flestir
þeirra, er við borðið sátu, höfðu lagt
hatta sína í hrúgu á eitt borðið, og hvort
sem orsökin var sú, að menn voru orðnir
fullhátt uppi, eða að þeir urðu svo hrifn-
ir af ræðu Guðmundar, er ekki vitað, en
það tók engum togum, að þrír ungir
menn spruttu upp eins og elding,
hrifsuðu alla hattahrúguna og hentu fyrir
borð. Nokkrir menn, sem höfðu verið
svo framsýnir að skilja ekki hatta sína
við sig, sluppu við fórnfæringuna, þó
ekki án nokkurra stimpinga. Það voru
því höfuðfatasnauðir menn, sem stigu
upp úr Snæfelli þá um kvöldið og héldu
heim til sín.
Þetta varð talsvert bit fyrir kaupfélag-
ið, því kaupfélagsstjórinn sá sér ekki
annað fært en að bjóða þeim, sem hött-
unum töpuðu, nýja hatta fyrir innkaups-
verð. Flestir voru í sparifötunum í
ferðinni og þá vitaskuld með sparihatt-
inn líka. Flestir hattanna munu hafa ver-
ið Battersby-hattar, sem þá nýlega voru
komnir í hátísku og kostuðu mikið.“
Eins og áður segir hentu menn lengi á
eftir gaman að þessari hattafórn gestanna
um borð í Snæfelli. Þeir sem lengst
gengu í gárungaskapnum göntuðust með
að vísast hefði Guðmundi Péturssyni
vanhagað um nýjan hatt og því mætt
með þann gamla í reynslusiglinguna og
látið fjúka fyrir borð í trausti þess að fá
hann bættan. Auðvitað var þetta helber
uppspuni. Hitt var staðreynd að bráðlega
sáust veðurbarðir trillukarlar spóka sig á
götum kaupstaðarins með þessi líka fínu
höfuðföt. Var jafnvel haft á orði að sumir
þeirra hefðu reynt að drýgja tekjurnar
með sölu Batterspy-hatta en það var
lausahjal og lítið að marka.
Varðskip breska hersins á Eyjafirði, togari vopnaður fallbyssu. Til að forðast afskipti togarans var yfirmanni breska setuliðsins í Eyjafirði boðið
í jómfrúrferð Snæfells. Mynd: Imperial War Museums